Víkurfréttir - 14.07.2016, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 14. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á
vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi
/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari
upplýsingar um störfin.
AKURSKÓLI
FJÁRMÁLASVIÐ
LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL
VELFERÐARSVIÐ
Skólarliðar í Frístund
Sérfræðingar í launadeild
Íþróttakennari/
Íþróttafræðingur
Störf á heimili fatlaðs fólks
VIÐBURÐIR
UMHVERFISVIÐURKENNINGAR
Umhverfissvið mun veita umhverfisviðurkenningar við
upphaf Ljósanætur. Óskað er eftir ábendingum frá íbúum
bæjarins í netfangið berglind.asgeirsdottir@reykja-
nesbaer.is eða í síma 420-3200 milli kl. 8:00 og 16:00.
Ef nágranni þinn er að gera góða hluti segðu þá frá því.
Mannfélagið í Listasal Listasafns Reykjanesbæjar.
Sögur úr bænum í Gryfjunni á vegum Byggðasafns.
Duus Safnahús eru opin alla daga kl. 12:00 - 17:00.
SUMARSÝNINGAR Í DUUS SAFNAHÚSUM
Ráðinn verður starfsmaður við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
haust sem mun hafa það verk-
efni að þróa stuðningkerfi fyrir
þá nemendur sem eru í mestri
hættu á að hverfa frá námi. Að
sögn Kristjáns Ásmundssonar,
skólameistara Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, verður þetta tilraun
næsta vetur sem vonandi á eftir
að ganga vel. Hann segir brott-
hvarf nemenda skólans hafa ver-
ið meira en æskilegt geti talist.
„Það er þannig í framhaldsskól-
um sem taka inn alla nemendur sem sækja
um, að brotthvarfið verður meira en í þeim
skólum sem velja inn nemendur. Því erum við
alltaf að leita leiða til að draga úr brotthvarfi
því það er dýrt fyrir nemendur
að hætta í einstökum fögum eða
gera hlé á námi. Þá seinkar fólk
útskrift sem er dýrara fyrir það
til lengri tíma litið. Við viljum
að nemendur nýti tíma sinn
sem best og ljúki námi á þeim
hraða sem þeir ráða við. Þá ann-
að hvort kemst fólk út á vinnu-
markaðinn með sín réttindi að
lokinni útskrift eða í frekara
nám,“ segir Kristján.
Mennta- og menningarmála-
ráðuneytið auglýsti fyrr á árinu
styrk til framhaldsskóla sem vilja gera átak til
að vinna gegn brotthvarfi og var FS einn þeirra
skóla sem sótti um og hlaut styrk. Þessi tilraun
til að minnka brotthvarf nemenda verður því
reynd í framhaldsskólum víðar um land á næsta
skólaári.
Kristján segir samstarf við grunnskóla mikil-
vægan lið í því að minnka brotthvarf nemenda.
„Það er alltaf betra ef nemendur eru búnir að
ákveða hvað þeir vilja læra áður en nám í fram-
haldsskóla hefst. Þá er það áhuginn sem dregur
þau áfram. Ef nemendur vita ekki hvað þeir
vilja læra og eru að fylgja straumnum með því
að fara í framhaldsskóla þá er skuldbindingin
í huga þeirra oft ekki nógu mikil og þá aukast
líkur á brotthvarfi.“ Nú þegar víða vantar fólk
til vinnu er freistandi fyrir framhaldsskólanem-
endur að ráða sig í vinnu og fá aukapening og
hægja á náminu. Kristján segir að til lengri tíma
litið tapi fólk á slíku. „Þá seinkar fólk útskrift
um hálft til eitt ár en gæti þess í stað verið í 100
prósent vinnu þann tíma ef það útskrifast fyrr.
Við viljum fá nemendur til að meta hver raun-
verulegur ávinningur er af því að ljúka námi.“
Kristján bendir jafnframt á að sumir verði að
stunda vinnu með námi til að framfleyta sér og
að margir ráði vel við það. „Svo eru aðrir sem
ekki ráða við það og það eru fyrst og fremst þau
sem við viljum ná til.“
Ástæður brotthvarfs geta verið margvíslegar að
sögn Kristjáns og sumt er hægt að hafa áhrif á
en annað ekki. „Vinnan er stór þáttur, einnig
fjarvistir og brot á skólareglum sem leiða til
þess að nemendum er vísað úr námi. Það er
eitthvað sem við getum reynt að taka á.“ Þá
hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja gert samning
við Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar um að ráða
sálfræðing í 50 prósent stöðu við skólann sem
aðstoðar nemendur sem finna fyrir kvíða eða
annarri andlegri vanlíðan.
Sporna gegn brotthvarfi nemenda
l Vilja ná til nemenda sem eru í mestri hættu á að hverfa frá námi
Helga Guðrún Jónsdóttir, 11 ára
stúlka úr Reykjanesbæ, var á dögun-
um kosin rauðhærðasti Íslendingur-
inn á Írskum dögum á Akranesi.
Helga var mjög ánægð að hafa unnið
keppnina en að launum fékk hún
ferð til Dublin á Írlandi fyrir tvo og
hárvörur frá Eleven. Hún hefur ekki
enn ákveðið hverjum hún ætlar að
bjóða með sér til Dublin eða hvenær
ferðin verður farin, en er hún af-
skaplega spennt fyrir ferðalaginu.
Helga hefur í gegnum tíðina oft ver-
ið stoppuð úti á götu af fólki sem
dáðst hefur að rauða hárinu hennar
og Helgu hrósað fyrir það. Fólk hef-
ur jafnvel spurt um leyfi til að fá að
snerta það. Fjölskyldu Helgu hefur
ávallt fundist það sérstakt hve oft
hún er stoppuð, en fundist voðalega
gaman að heyra hrósin sem hún hef-
ur fengið fyrir hárið sitt. Helga sjálf
er rosa ánægð með hárlitinn sinn og
finnst hann voða fallegur.
Alls voru keppendur í keppninni um
rauðhærðasta Íslendinginn 34 og
fór hún þannig fram að teknar voru
myndir af þeim öllum og svo biðu þau
úrslitanna. Biðin var að sögn Helgu
ansi löng og var hún glöð þegar til-
kynnt var að hún hefði sigrað.
l Helga Guðrún sigraði í keppninni um rauðhærðasta Íslendinginn
Helgu hrósað fyrir rauða hárið
Píratar með
lokað prófkjör í
Suðurkjördæmi
Píratar halda lokað prófkjör í Suður-
kjördæmi fyrir næstu Alþingiskosn-
ingar. Þegar hefur verið opnað fyrir
framboð.
Kjörgengir eru allir skráðir Píratar
sem uppfylla skilyrði til Alþingiskosn-
inga. Kosningarétt í prófkjörum Pírata
hafa þeir sem eru skráðir Píratar sam-
kvæmt lögum Pírata eða þeir Píratar
sem skráðir hafa verið í flokkinn 30
dögum áður en kosningu lýkur. Þá er
skilyrði að hafa lögheimili í kjördæm-
inu. Kosning í rafrænu kosningakerfi
Pírata mun svo standa frá 2. til 12.
ágúst.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
Tölvupóstfangið er fusi@vf.is
VF-mynd: Aldís Ósk