Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.07.2016, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 28.07.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 28. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR Handtekinn á flótta eftir rifrildi og árekstur Pósturinn í Vogum á Vatnsleysuströnd óskar eftir að ráða bílstjóra í framtíðarstarf. Starfið felst í dreifingu pósts á svæðinu og eru skilyrði stundvísi og áreiðanleiki. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2016. Nánari upplýsingar veitir Anna María Guðmundsdóttir í síma 421 4300 eða í annam@postur.is Hægt er að sækja um starfið á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR? Allur aðgangseyrir og frjáls fram- lög af grannaslag Víðis og Reynis í 3. deild karla í fótbolta, runnu til styrktar fjölskyldu Jóhannesar Hilmars Jóhannessonar sem lést í umferðarslysi fyrir skömmu. Söfn- unin er nú komin í 876.000kr en auk þess sem kom inn á leiknum sjálfum, hafa einstaklingar og fyrirtæki bæst i hópinn auk þess sem leikmenn meistaraflokks Víðis lögðu sinn sjóð í söfnunina. Enn er hægt að leggja til frjáls framlög og bæta við upp- hæðina en þá má leggja inná reikn- ing 0157-26-255 á kt 510286-2279. Víðismenn voru að vonum þakklát- ir fyrir stuðninginn á leiknum sem endaði með 4-1 sigri þeirra. „Það hefur sýnt sig og sannað að knattspyrnufélagið Víðir, er ekki bara leikmenn sem elta tuðrur, stjórnar- menn og konur sem suða um styrki, heldur eru þetta fjölmargir einstak- lingar sem búa í Garðinum og einnig fjölmargir sem búa utan Garðsins sem fylgjast með úr fjarlægð og styðja við bakið á okkur. Samfélagið tók hönd- um saman og geri ég ráð fyrir því að mikið safnaðist á leiknum til að styðja við fjölskylduna hans Jóa. Það er einmitt þetta samfélag sem maður er svo stoltur af að vera partur af,“ sagði Björn Bergmann fyrirliði Víðis í stuttri yfirlýsingu eftir leik. Stjórn og leikmenn Knattspyrnufélagsins Víðis í Garði vilja þakka þeim fjöl- mörgu sem lögðu leið sína á leik Víðis og Reynis í síðustu viku. Allur aðgangeyrir mun renna beint til fjölskyldu Jóhannesar Hilmars Jóhann- essonar, sem lést í voflegu bifhjólaslysi að morgni fimmtudagsins 7. júlí sl. Með hjálp ykkar og fyrirtækja á svæðinu hafa safnast um 900.000 kr. sem renna óskiptar til fjölskyldu Jóhannesar heitins. Blessuð sé minning hans. Samúð og þakklæti er okkur efst í huga á stundu sem þessari. Með kærri Víðiskveðju. Guðlaug Sigurðardóttir, formaður Víðis. n Lögreglan á Suðurnesjum brást hratt við skömmu fyrir hádegi á þriðjudag og handtók ökumann á flótta eftir árekstur á bílastæði í Reykjanesbæ. Menn rifust fyrir utan afgreiðslu Landsbankans í Krossmóa í Reykjanesbæ sem endaði með því að einn mannanna settist undir stýri á bifreið og bakkaði af fullu afli á kyrrstæða bifreið á bílastæðinu við bankann. Eitthvað fát kom á ökumanninn sem síðan ók á fullri ferð út af bílastæðinu og sem leið lá inn í Njarðvík. Munaði minnstu að hann keyrði á mann á bílastæðinu sem gaf honum merki um að stöðva. Mörg vitni sáu hvað gerðist og var lögreglu þegar gert viðvart. Tveir lögreglubílar veittu flóttabílnum þegar eftirför og var bifreiðin stöðvuð í Njarðvík örfáum mínútum síðar og ökumaður handtekinn. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta var maðurinn ölvaður. Eiganda bílsins sem ekið var á fyrir utan bank- ann var brugðið en jafnframt mjög þakklátur lög- reglunni fyrir að handtaka þann sem varð valdur að árekstrinum. Hann sagðist hafa orðið var við að mennirnir rifust fyrir utan bankann og ákveðið að leggja því ekki við hliðina á þeim, heldur aðeins fjær. Hann sagði að það hafi ekki endilega verið besta ákvörðunin eins og raunin varð á. Ók langt yfir hámarkshraða í íbúðarhverfi og skapaði hættu n Lögreglan á Suðurnesjum hef- ur sent frá sér tilkynningu vegna máls sem kom upp í Innri-Njarð- vík í hádeginu á mánudag þar sem lögregla stöðvaði för ökumanns í íbúðarhverfi með því að aka í veg fyrir bíl hans. Tilkynningin hljóðar svo: Lögreglan á Suðurnesjum veitti ökumanni eftirför skömmu eftir hádegi en tilkynning hafði borist um mann akandi bifreið í annarlegu ástandi. Maðurinn var á leið frá Keflavík í átt að Innri-Njarðvík en þar var för hans stöðvuð með því að aka lögreglubifreið í veg fyrir hann. Maðurinn ók langt yfir hámarkshraða í íbúðarhverfi og skapaðist hætta vegna aksturslags hans. Maðurinn var handtekinn vegna málsins. Vitni að þessu atviki eru vinsamlegast beðin um að setja sig í samband við lögreglu í síma 444-2200. l Hátt í 900 þúsund krónur hafa safnast fyrir ekkju Jóhannesar sem lést í bílslysi við Hafnaveg Víðismenn safna fyrir fjölskyldu Jóhannesar Kveðja og þakkir frá Víði n Nýlega festi Pósturinn kaup á raf- knúnu þríhjóli til að auðvelda vinnuna hjá bréfberunum á milli hverfa í Reykjanesbæ. „Það er fábært að taka þátt í því þegar Pósturinn er að komast inn í nútímann, mér finnst það alveg æðislegt. Sjá hvað þetta er allt að breyt- ast og hvað þau eru að gera til þess að bæta sig,“ segir Þóra Sigríður Brammel 27 ára, sem hefur starfað hjá Póstinum síðan í mars árið 2013. Þóru finnst þetta allt öðruvísi og auðveld- ar hjólið ferðir hennar með póstinn til muna. Áður tók það sinn tíma að klára eitt hverfi en núna nær hún að komast yfir miklu stærra svæði á sama tíma. Þóra segist ekki verða eins þreytt eftir daginn og hún var hér áður og finnst æðislegt að fá að taka þátt í svona verkefni hjá póstinum. Alls eru 15 rafmagnsþríhjól komin í notk- un og eru þau í Reykjavík, á Akranesi, Selfossi, Akureyri og í Reykjanesbæ. Hjól- in eru umhverfisvæn og eiga þau að þola íslenskt verðurfar. Von er á öðru hjóli til Reykjanesbæjar fljótlega eftir helgi. Pósturinn er að komast inn í nútímann Þóra tekur sig vel út á hjólinu. Mynd/Aldís Ósk. Frá vettvangi við Landsbankann á þriðjudag. VF-mynd: Hilmar Bragi Áhorfendur á leik Víðis og Reynis á Nesfisksvellinum í Garði. VF-mynd: Eyþór Sæmundsson

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.