Víkurfréttir - 28.07.2016, Qupperneq 8
8 fimmtudagur 28. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Óskar fór í FS á sínum tíma líkt og vinir hans en
þar nam hann á listnámsbraut í þrjú ár. Frá unga
aldri pældi hann mikið í tónlist og var í hljóm-
sveitum í Grindavík. Hann áttaði sig snemma á
því að kvikmyndagerðin sameinaði alla miðla
sem hann hafði áhuga á.
„Ég fór í FS og fyrir það hafði ég verið leitandi
unglingur í músíkinni, hangandi í gömlum
iðnaðarhúsnæðum. Ég hætti í FS eftir þrjú ár
og fór að vinna í Grindavík. Snemma í fram-
haldsskóla áttaði ég mig á því þegar ég las viðtal
við leikstjórann Dag Kára, að músík og myndir
sameinast í kvikmyndagerð og langaði að verða
kvikmyndagerðamaður,“ segir Óskar í samtali
við blaðamann Víkurfrétta.
Eftir tveggja ára vinnu fór hann í Myndlistar-
skólann í Reykjavík með það í huga að færast
nær vídjólist og kvikmyndagerð. Hann segir að
myndlist hafi hjálpað honum mikið við það að
læra gagnrýna hugsun. „Það þjálfaði augað og
þar var ég hvattur til að sækja um í myndlist
í Listaháskólanum. Þar vann ég mestmegnis
með vídjó og ljósmyndir. Lokaverkið mitt var
stuttmynd um unglingsár mín og fjallaði um allt
hangsið á þeim tíma.“
Eftir útskrift úr Listaháskólanum var Óskar ráð-
inn þar í vinnu. Hann hefur nú starfað þar í
tvö ár en hyggst minnka við sig og sinna kvik-
myndagerð af meiri áfergju. Nú er stefnan tekin
á að gera tvær stuttmyndir áður en hann ræðst á
kvikmynd í fullri lengd.
Gerði stuttmynd um
unglinga í Grindavík
Stuttmynd sem Óskar gerði í skóla fjallar að
hans sögn um táninga sem láta sér leiðast. Óskar
segir að ljóðrænn stíll sé yfir myndinni sem
fjallar um þrjár unglingsstelpur í Grindavík sem
eru að slæpast um bæinn. „Unglingsaldurinn er
svo áhugaverður, þessar aðstæður sem eru til
staðar, að leyfa sér að leiðast. Ég held það geti
haft skapandi áhrif á ungt fólk, að leiðast og
slæpast og hafa eitthvað afdrep til þess. Þegar ég
var ungur strákur í Grindavík var ég mikið að
spila og semja sjálfur á gítar en svo var einnig
verið að glamra með strákum af svæðinu. Ég
hékk á vídóleigunni hjá Pöllu allar helgar, það
var hápunktur vikunnar,“ segir Óskar um upp-
vaxtarárin í Grindavík. Hann langar til þess að
nýta sér æskuslóðirnar til frekari listsköpunnar
í framtíðinni.
„Sögur úr plássinu munu líta dagsins ljós ein-
hvern tímann, það er alveg pottþétt að maður
geri mynd sem gerist í Grindavík og nágrenni.
Maður getur ekki flúið sjálfan sig of langt til
að byrja með. Viðfangsefnið getur verið klisja
en það skiptir öllu hvaða vinkil maður setur á
það. Þetta eru allt sögur um fólk.“ Óskar hefur
ákveðnar skoðanir á kvikmyndagerð og lítur
ekki bara á þær sem eiginlega frásögn. „Mér
finnst hún frekar snúast um hið ljóðræna and-
rúmsloft, sem er líka í músíkinni. Að sagan sé
fljótandi, en ekki einhver rosaleg atburðarás.“
Leikstjórar úr öllum
áttum hafa haft áhrif á
leikstjórann unga
„Stanley Kubrick er fyrsti listræni leikstjórinn
sem ég virkilega heillaðist af og hef alltaf verið
undir miklum áhrifum frá honum. Nýlega hef
ég mikið verið að skoða verk eftir rússneska leik-
stjórann Andrei Tarkovsky og pólska leikstjór-
ann Krzysztof Kieslowski. Er líka mjög hrifin af
Sofiu Coppola og Degi Kára. Í minningunni eru
það myndirnar hans Dags Kára sem ég naut þess
verulega að horfa á.“
Ratatouille er ein
besta mynd allra tíma
Þrátt fyrir þessa upptalningu á virtum leikstjór-
um þá eiga aðrar, frekar almennari myndir, sér-
stakan sess hjá Óskari.
„Ég dýrka Pixar myndirnar, Ratatouille er ein
besta mynd allra tíma. Þessi fersku og ófyrir-
sjáanlegu handrit eru svo skemmtileg. Inside
out er fáránlega flott hugmynd, þar er búið að
gera karaktera úr tilfinningum barna þannig að
allir geti skilið. Sagan er ótrúlega einföld, um
stelpu sem flytur í annan bæ og þar sjáum við
hvaða tilgangi sorgin þjónar. Þetta eru háfleygar
hugmyndir um lífið og hvernig það er að vera
manneskja en settar fram á svo einfaldan hátt.
Ég skil ekkert yfir bíóhúsunum að sýna þessar
snilldarmyndir bara kl.3 um daginn. “
eythor@vf.is
l Mun gera mynd um æskuslóðirnar
l Dýrkar myndirnar frá Pixar
Skapandi
að slæpast
og leiðast
Ó S K A R K R I S T I N N E R E F N I L E G U R L E I K S T J Ó R I Ú R G R I N D A V Í K
Grindvíkingurinn Óskar Kristinn Vignis-
son hefur vakið nokkra athygli að undan-
förnu fyrir tónlistarmyndbönd sem
hann hefur leikstýrt fyrir huldufólkið í
hljómsveitinni Synthamanía og einnig
fyrir Snorra Helgason. Óskar á sér stóra
drauma þegar kemur að kvikmyndagerð
og gerir ráð fyrir því að gera kvikmynd um
æskustöðvarnar í Grindavík síðar meir.
Ég held það geti haft skapandi áhrif
á ungt fólk, að leiðast og slæpast
og hafa eitthvað afdrep til þess.