Víkurfréttir - 28.07.2016, Qupperneq 10
10 fimmtudagur 28. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
LESANDI VIKUNNAR
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Svo tjöllum við okkur í rallið eftir Guðmund
Andra Thorson sem fjallar um föður hans
Thor Vilhjálmsson. Falleg og vel skrifuð
bók um samband þeirra feðga.
Hver er þín eftirlætis bók?
Það er bók bókanna, Biblían, en
ég les í henni á hverjum degi og
mun gera það um ókomna tíð.
Þeim mun meira sem ég les finn
ég alltaf meiri visku, veganesti og
huggun í þessari bók.
Biblía er grískt orð sem merk-
ir bókasafn en í Biblíunni eru
66 bækur sem eru skrifaðar á
nokkrum árþúsundum. Bækurn-
ar eru svo miklu meira en trúar-
rit, þær eru líka samfélagsspegill
þar sem hægt er að fræðast um svo
margt eins og stöðu kvenna á hverjum
tíma og það má meira að segja finna
uppskriftir!
Hver er eftirlætis höfundurinn þinn?
Ég á engan eftirlætis höfund, nema höfund Biblí-
unnar, því ég er ekki föst í ákveðnum verkum.
Hvernig bækur lestu helst?
Helst eru það fræðibækur og ævisögur. Síðustu ár hafa
ljóðabækur bæst við.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Fyrir utan Biblíuna er það sagan af Heiðu litlu í Alpa-
fjöllunum. Pabbi minn las hana fyrir mig þegar
ég var lítil stúlka en hann fékk bókina frá for-
eldrum sínum í jólagjöf sem barn. Sú bók á
meira að segja sérstakan stað í bókahillunni
minni. Mér þykir svo fallegt hvernig stúlkan
í sögunni varðveitir hjartahlýju og góðvild,
sama hvað á dynur.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Sálmabókina en það er bók sem flestir
eiga heima hjá sér. Sálmar eru bænir
og aftast má til að mynda finna sálm
eða bæn fyrir hvern dag vikunnar bæði
kvölds og morgna. Sálmarnir geyma
mikla visku og verkfæri til að takast á
við daglegt líf, bókin á því heima á nátt-
borðinu á kvöldin eða við kaffikönnuna
að morgni til.
Hvar finnst þér best að lesa?
Mér þykir best að lesa heima í stofu, í rauða
stólnum á Brunnstígnum.
Hvaða bækur standa upp úr sem þú vilt mæla með?
Leitin að tilgangi lífsins sem fjallar um mann að nafni
Viktor E.Frankl sem lifði af nasistabúðirnar í seinni heims-
styrjöldinni.
Einnig mæli ég með bók Árna Bergmanns, Eitt á ég samt,
þar segir hann m.a. svo skemmtilega frá lífi sínu í Keflavík.
Við þökkum Erlu kærlega fyrir og minnum á heimasíðu
safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn þar sem hægt er
að mæla með Lesanda vikunnar.
LES BÓK BÓKANNA
Á HVERJUM DEGI
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur í Keflavíkurkirkju er Lesandi vikunnar. Bókin um Heiðu litlu í Alpafjöllunum er
sú bók sem hefur haft hvað mest áhrif á hana fyrir utan bók bókanna að sjálfsögðu.
Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkur-
fréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja
taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safns-
ins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
Sjónvarp
Víkurfrétta
öll fimmtudagskvöld
kl. 21:30 á ÍNN
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í ofangreind störf skal skilað á vef Reykja-
nesbæjar,www.reykjanesbaer. is/stjornkerfi/
laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari
upplýsingar um störfin.
AKURSKÓLI
FJÁRMÁLASVIÐ
Skólarliðar í Frístund
Sérfræðingar í launadeild
Upplýsingar um öll ný störf er að finna á vef Reykjanes-
bæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.
VIÐBURÐIR
LJÓSANÓTT 2016
1. - 4. september
Skráning viðburða: Verður þú með viðburð á Ljósanótt?
Sýningu, gjörning, skemmtun eða annað? Mundu þá að
skrá viðburðinn á ljosanott.is. Þannig birtist hann í dag-
skrá Ljósanætur. Berist hann fyrir 23. ágúst fer hann
einnig í prentaða dagskrá!
Söluaðilar: Skráning söluaðila er hafin á sala@ljosanott.
is. Íþrótta-, menningar- og líknarfélög í bæjarfélaginu fá
sérstök kjör. Hafið samband tímanlega.
Dagskráin í heild á ljosanott.is þegar nær dregur.
ATVINNA
Við leitum að bílstjóra í 80% starf,
þurfum einnig að bæta við okkur í þvottarhúsi.
Upplýsingar á staðnum.
Íslenska er skilyrði.
Iðavöllum 11b // 230 Reykjanesbæ // 421 3555
Við leitum að bílstjóra í 100% starf.
Þurfum einnig að bæta við okkur starfsmanni
í 50% starf í þvottahúsi. Íslenska skilyrði.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Guð blessi ykkur öll,
Elsa Björk Kjartansdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna fráfalls elskulegs eiginmanns,
föður, tengdaföður, tengdasonar og afa.
Axels Þorbergs Ingvarssonar
Heiðarholti 7, Reykjanesbæ
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað með
fjölskyldunni eða slaka á heima
við og njóta kyrrðarinnar.
Páll Valur Björnsson þingmaður Bjartr-
ar framtíðar er búsettur í Grindavík.
Hann mun leggja leið sína austur
þessa verslunnarmannahelgina þar
sem hann ætlar að njóta helgarinn-
ar með fjölskyldunni og vinum.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Verslunarmannahelginni ætla ég að
eyða austur á Vopnafirði í faðmi fjöl-
skyldu minnar og vina. Minningar-
athöfn um föðurbróðir minn sem
lést fyrr í sumar
mun fara fram á
laugardeginum að
Refstað í Vopnafirði
þaðan sem ég er
ættaður. Þar mun
stórfjölskyldan
hittast og heiðra
minningu hans
en hann lést langt
fyrir aldur fram úr krabbameini.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Ég hef lifað margar eftirminnilegar
verslunarmannahelgar ekki síst þegar
maður var ungur að árum og sótti
Atlavík á hverju ári þá var nú stundum
tekið hressilega á því. En það stendur
engin ein endilega uppúr allar hafa þær
verið skemmtilegar hver á sinn hátt.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitthvað
vera ómissandi um þessa helgi?
Það sem mér finnst ómissandi um þessa
helgi fyrir utan gott veður að sjálfsögðu
er að getaverið með fjölskyldunni. Þetta
er stærsta ferðahelgi ársins og það sem
mér finnst að ætti að einkenna þessa
helgi öðru fremur er að allir sem leggja
land undir fót séu vel undirbúnir. Keyri
varlega og hugi vel að náunga sínum
og umhverfi. Ekkert gleður mann
meira en að heyra í fréttum eftir versl-
unarmannahelgina að allt hafi gengið
snurðulaust fyrir sig og allir hafi komist
heilir heim.
Munu heiðra minningu frænda á Vopnafirði
n Það sem af er árinu 2016 hefur
íbúum í sveitarfélaginu Garði fjölg-
að um tæp 4%. Samkvæmt Þjóðskrá
voru skráðir alls 1.425 íbúar í Garði
þann 1. desember 2015. Samkvæmt
bráðabirgðatölum þann 18. júlí
sl. var fjöldi íbúa í sveitarfélaginu
orðinn 1.480. Íbúum hefur því fjölg-
að um alls 55 frá 1. desember sl., eða
um 3,9% á sjö mánuðum. Frá þessu
er greint á heimasíðu bæjarins.
Mikil sala hefur jafnframt verið á
íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu á síð-
ustu mánuðum og munar þar mest um
að Íbúðalánasjóður hefur selt mikið af
þeim eignum sem voru í eigu sjóðsins
á undanförnum árum. Þá hafa verk-
takar og aðrir aðilar selt eignir sem
höfðu staðið ónotaðar. Ef fram fer sem
horfir gæti íbúafjöldi í sveitarfélaginu
orðið nálægt 1.500 í lok ársins.
Garðmönnum
fjölgar hratt