Víkurfréttir - 28.07.2016, Page 12
12 fimmtudagur 28. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Viltu vera hluti af hópnum
Við viljum hafa þig með.
Umsóknareyðublað er á
Facebook - Ernir bifhjólaklúbbur Suðurnesja
https://www.facebook.com/groups/49076015978/
undir skrár “inntökubeiðni”
eða talið við Brynju Sif gjaldkera
brynja@islandshus.is s: 858 9101
Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja
var stofnaður 27.apríl 2001 af
áhugamönnum um mótorhjól og
er í dag með 402 félagsnúmer.
Komdu í hópinn okkar
við tökum vel á móti þér.
ATVINNA
Vegna góðrar verkefnastöðu
þurfum við að ráða inn réttingarmann
og bílasprautara.
Verða að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar á staðnum
eða hjá Viðari í síma 848-0170.
Þeir lofa og lofa og
síðan svíkja þeir
og svíkja.Verður
það síðasta útspil
þ e s s a r a r r í k i s -
stjórnar að svíkja
fólkið í landinu um
kosningar í haust.
Það voru tíu þús-
und manns sem boðuðu komu sína
á mótmælin á Austurvelli þann 4.
apríl síðastliðinn. Flestir mættu og
sýndu ríkisstjórninni rauða spjaldið,
kröfðust þess að alþingiskosningar
færu fram strax og að Sigmundur
Davíð segði af sér völdum. Þá var
stjórnasamstarfinu tjöslað saman
með því að Sigurður Ingi tæki við
embætti forsætisráðherra. Síðan
komu hann og Bjarni Ben fram í
stiga alþingis 5. apríl og sögðust ætla
að bregðast við kalli þjóðarinnar um
kosningar en ekki fyrr en í haust. Nú
líður að hausti og eru þessir tveir
flokkar margsaga um hvort kosn-
ingar fara fram í haust eða ekki.
Þann 5. Júní er haft eftir Sigurði Inga
í Vísi að hann sé vanur að standa við
orð sín og að boðað verði til alþing-
iskosninga í haust.
Þá er haft eftir Bjarna á mbl.is þann
6. apríl svo vitnað sé í hans orð þar
,,En við ætl um að stíga viðbót ar skref
til þess að mæta kröf um um að virkja
lýðræðið í land inu og til að koma til
móts við þá stöðu sem hef ur mynd
ast, þá hyggj umst við stefna að því
að halda kosn ing ar í haust og stytta
þar með kjör tíma bilið um eitt lög
gjaf arþing. „ Bjarni sagði ná kvæma
dag setn ingu kosn ing anna enn ekki
liggja fyr ir. „Hún mun ráðast af fram
vindu mála.“
Nú kemur Sigmundur Davíð fram á
sjónarsviðið og segir að ekkert eigi að
flýta kosningum og að ríkisstjórnin
eigi bara að vinna að sínum málum.
Það er sem sagt ekki hægt að ganga
að því vísu að kosningar fari fram í
haust. Hvað er eiginlega að hjá þessum
stjórnarflokkum? Þeir verða að segja
af eða á með svo mikilvægt mál sem
kosningar eru, þá með því að setja
fram dagsetningu um kosningar eða
tala þá hreint út ef það verða engar
kosningar í haust. Því þjóðin þarf að
fá að vita það sem allra fyrst og auð
vitað alþingi líka því það er þingræði
í landinu en ekki einræði. Nú ef það
verður raunin að þeir ákveða að kosn
ingarnar fara ekki fram í haust þá þarf
þjóðin að láta í sér heyra ef hún er
ósammála þessum svikum og lygum
í boði ríkisstjórnar Framsóknar og
Sjálfstæðismanna með þá Sigurð Inga
og Bjarna Ben fremsta í flokki.
Fyrir mér lítur dæmið þannig út
að Framsóknarmenn geri sér grein
fyrir því, að með Sigmund Davíð í
fararbroddi þá munu þeir hríðfalla í
fylgi, ef ekki þurrkast út af alþingi og
þess vegna eru þeir að ríghalda í ráð
herralaunin sín sem lengst og kannski
næstu hækkun kjararáðs.
Þórólfur Júlían Dagsson
Kapteinn Pírata á Suðunesjum
Fjárfesting, viðhald
og leit ti l betri
lausna í vegagerð er
eitt brýnasta málið
sem við fáumst við
í dag. Vegakerfið er
æðakerfi landsins
þar sem þjóðbraut-
ir, stofnbrautir og
hjáleiðir eru mikilvægt net í nútíma
samgöngum sem eru einn mikilvæg-
asti þátturinn í að tryggja aðgengi
að atvinnulífi, heilbrigðisþjónustu,
menntakerfi og allri menningu og
mannlífi okkar.
Á undaförnum árum höfum við horft
uppá vegakerfið grotna niður vegna
fjárskorts og nú er svo komið að aðeins
stórátak í viðhaldsframkvæmdum get
ur leyst brýnasta vandan í kerfinu.
Nú þegar verður að leggja meira fé í
viðhald vega og uppbyggingu vega
kerfisins. Uppbyggingin og endurbæt
urnar verða að taka mið af því hvar
umferðaþunginn er mestur í landinu.
Engin önnur forgangsröðun er trú
verðug en sú sem tekur mið af þunga
umferðarinnar, flestum bílum, hættu
legustu gatnamótum, einbreiðum
brúm og öðrum hættum í vegakerf
inu og mikilvægt að útrýma „svart
blettum“ í vegakerfinu. Við verðum
að fækka slysum með markvissum
aðgerðum sem taka mið af þessum
staðreyndum.
Í Suðurkjördæmi er af nógu að taka
þegar að þessari forgangsröðun kem
ur og afar mikilvægt að þingmenn
kjördæmisins standi saman í því að
berjast fyrir vegakerfi sem er að kom
ast í þrot. Samgönguáætlun 20152019
er til umræðu í þinginu og mikilvægt
að við þingmenn stöndum vörð um
hagsmuni okkar í þeirri umræðu.
Það er ljóst að stórauka þarf fjár
magn til Samgönguáætlunar ef það á
að takast að flýta framkvæmdum við
Reykjanesbraut.
Eitt af markmiðum með stofnun
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar,
KADECO var að efla samgöngur milli
Ásbrúar og Reykjanesbæjar til að flýta
fyrir þróun fyrrum varanarsvæð
is. Ég ræddi við framkvæmdastjóra
KADECO og fjármálaráðherra ekki
alls fyrir löngu á fundi um að nú þegar
verði tekin ákvörðun um að það fé sem
fæst fyrir sölu síðustu eigna ríkisins á
Ásbrú verði látið renna til skipulags
og uppbyggingar á svæðinu. Brýnt er
að sú ákvörðun liggi fyrir fljótlega. Ég
legg til að nú þegar verði eyrnamerkt
fé sem kemur úr sölu eigna á Ásbrú
og það notað til að kosta tengingu við
hringtorgið við Stekk frá Hafnarvegi
og framkvæmda við hringtorgin við
gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanes
brautar og hinsvegar við Aðalbraut og
Reykjanesbrautar en það er í samræmi
við þá hugsun að auðvelda samgöngur
á milli hverfisins í Ásbrú við önnur
hverfi Reykjanesbæjar og auka öryggi
í umferðinni eins og hringtorgin við
Grænás og Stekk hafa sannað gildi sitt
sem góð og örugg samgöngumann
virki. Með samstilltu átaki þingmanna
og góðum vilja er hægt að koma þessu
í verk mjög fljótlega og hefði ekki áhrif
á aðra þætti Samgönguáætlunar.
Ég vil þakka þeim sem stigið hafa
fram og veitt forystu kröfum um upp
byggingu Reykjanesbrautar. Höfum
jafnan í huga að bestur árangur næst
með samstarfi þar sem virðing er bor
in fyrir fólki og hagsmunir heildar
innar hafðir að leiðarljósi, það skilar
árangri.
Ásmundur Friðriksson
alþingismaður.
LavaAuto er ný og
framsækin bílaleiga
staðsett í Reykjanesbæ.
Hafir þú áhuga þá
máttu senda okkur
ferilskrá með mynd á
netfangið:starf@lavaauto.is
Sölufulltrúi
óskast til starfa
Starfslýsing:
l Afhending og mót-
taka bílaleigubíla.
l Gerð leigusamninga.
l Samskipti við erlenda og
innlenda viðskiptavini.
l Almenn sala og eftirfylgni.
Hæfniskröfur:
l Framúrskarandi
enskukunnátta bæði í töluðu
og rituðu máli.
l Góð Tölvukunnátta, þá
einkum Word, Excel og Outlook
l Góð samskiptahæfni
og þjónustulund.
l Skipulögð vinnubrögð,
geta unnið sjálfstætt, búa yfir
frumkvæði og hugmyndaauðgi
l Snyrtimennska.
l Hreint sakavottorð.
LavaAuto - Iðavöllum 11 - 230 - Reykjanesbær Sími: 519 4141
Tvöföldun Reykjanesbrautar
- Leitum lausna á fjármögnun
l Þakklæti til þeirra sem stigið hafa fram
Á að halda þjóð og þingi í óvissu?
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað með
fjölskyldunni eða slaka á heima
við og njóta kyrrðarinnar.
Viðar Örn Victorsson starfar sem fisk
eldisfræðingur hjá Stofnfiski. Viðar
kemur frá Hólmavík á Ströndum en
hefur verið búsettur í Reykjanesbæ
síðustu ár. Planið þessa helgi verð
ur ferðarlag með fjölskyldunni.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Planið fyrir helgina var að fara
með stórfjölskyldunni í tjaldúti
legu til Siglufjarðar, en miðað við
veðurspá helgarinnar þá end
um við líklegast á Flúðum.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Ætli eftirminnilegasta verslunar
mannahelgin sé ekki Halló Ak
ureyri 1999, sem var sennilega
síðasta Halló Akureyris hátíðin.
Vinir mínir höfðu innréttað gamlan
sendibíl sérstaklega fyrir þessa helg.
Ekki var alveg víst hvort að bíllinn
kæmist alla leið en það hafðist að
lokum. Reyndist hann síðan einn
besti partýstaðurinn á tjaldstæðinu.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitthvað
vera ómissandi um þessa helgi?
Það að vera í góðum félagskap
skiptir miklu og ekki skemmir
það helgina ef veðrið er gott.
Innréttaður sendibíll varð aðal partýstaðurinn
Ekkert blað í næstu viku...
... en það verður fréttavakt á vf.is alla næstu viku.
Sími hjá blaðamanni á vakt er 869 3317 og póstur á eythor@vf.is