Víkurfréttir - 28.07.2016, Side 15
15fimmtudagur 21. júlí 2016 VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR
Aldur/Félag:
Ég er 10 ára og æfi með Keflavík.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
Mamma segir að ég hafi fæðst með
bolta, en ég er búin að æfa í 7 ár.
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég spila á miðjunni.
Hvert er markmið þitt í fótbolta?
Ég ætla mér að verða at-
vinnumaður í fótbolta.
Hversu oft æfir þú á viku?
Ég æfi fjórum í viku en er
alltaf úti í boltaleik.
Hver er þinn eftirlætis fót-
boltamaður/kona?
Uppáhalds leikmaðurinn
minn er Dimitri Payet.
Áttu þér einhverja fyrir-
mynd í boltanum?
Fyrimyndin mín er Gylfi.
Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis?
Nei hef ekki farið á leik úti.
Hversu oft getur þú haldið á lofti?
Ég get haldið 48 sinnum á lofti
Hvaða erlenda félag held-
ur þú upp á?
Ég er Arsenal maður.
Guðmundur Páll Jónsson er fótboltasnillingur vikunnar
FÆDDIST MEÐ FÓTBOLTA
Keflvíkingurinn Guðmundur Páll Jónsson ætlar sér að verða atvinnumaður í fót-
bolta. Hann er öllum stundum í fótbolta og er búinn að æfa frá því að hann var rétt
byrjaður að ganga.
Vilt þú starfa á kraftmiklum
og skemmtilegum vinnustað?
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum leitar að framúrskarandi starfsmanni
sem vill starfa með okkur í Samvinnu starfsendurhæfingardeild.
Þekking í þína þágu
Skilyrði er að viðkomandi hafi einstaka þjónustulund, góða samskiptahæfileika,
sé hugmyndaríkur og árangursdrifinn.
Umsóknir sendist til ina@mss.is fyrir 15. ágúst næstkomandi.
Upplýsingar veitir R. Helga Guðbrandsdóttir verkefnastjóri Samvinnu, í gegnum
tölvupóst rhelga@mss.is eða í síma 421 7500 (eftir 2. ágúst).
Starfssvið viðkomandi nær m.a. yfir:
• Ráðgjöf og stuðning við einstaklinga í starfsendurhæfingu
• Taka þátt í teymisvinnu sérfræðinga sem koma að starfs-
endurhæfingunni
• Gera og hafa umsjón með endurhæfingaráætlunum
einstaklinga
• Skipulagning og umsjón með námskeiðahaldi og fræðslu
• Þátttaka í ýmsum verkefnum
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
• Reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar
og/eða starfsendurhæfingar
• Þekking og reynsla af atvinnulífinu
• Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað með
fjölskyldunni eða slaka á heima
við og njóta kyrrðarinnar.
Þóra Björg Þóroddsdóttir frá
Grindavík, búsett í Reykjanesbæ
ætla að njóta helgarinnar með
syni sínum og fjölskyldunni.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Ég ætla að fara með fjölskyldunni upp
að Hellishólum og eiga góða helgi þar.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Engin svona sérstök, en þegar ég
var yngri fórum við fjölskyldan oft
upp í Húsafell. Mér fannst það oft
voðalega gaman þar sem það var
alltaf brenna og brekkusöngur.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitt-
hvað vera ómissandi um þessa helgi?
Mér finnst grillmatur alveg ómis-
sandi um verslunarmannahelgina.
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað
með fjölskyldunni eða slaka á
heima við og njóta kyrrðarinnar.
Keflvíkingurinn Sigfríður Ólafsdóttir,
22 ára leiðbeinandi á leikskólanum
Hjallatúni, hefur farið 15 sinnum á
Þjóðhátíð. Hvorki meira né minna.
Sumarið er hennar uppáhalds tími
ársins og nýtur hún þess með ferða-
lögum og samverustundum með
fjölskyldu og vinum. Hún endar svo
sumarið með því að skella sér á Þjóð-
hátíð sem er toppurinn af sumrinu.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Ég ætla að fara á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Já verslunarmannahelgin 2007, þá var
ákveðið að sleppa Þjóðhátíð og fara
upp í sumarbústað en á laugardeginum
gáfumst við upp og flugum til Eyja.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitthvað
vera ómissandi um þessa helgi?
Það sem einkennir góða verslun-
armannahelgi er gott veður og góð
stemning í dalnum, það sem er ómis-
sandi er að fara í hvíta tjaldið til Dísu
vinkonu hennar mömmu og fá sér samlokurnar hennar.
22 ára á leið á Þjóðhátíð í 15. sinn
Fer með fjölskyldunni að Hellishólum
Víkurfréttir verða í
sumarfríi í næstu viku...
... en það verður fréttavakt á vf.is alla næstu viku.
Sími hjá blaðamanni á vakt er 869 3317 og póstur á eythor@vf.is