Víkurfréttir - 28.07.2016, Síða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
Vel launuð störf eða
verr launuð störf í
stóriðju í Helguvík.
Heyrði ég rétt um árið?
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Olís Reykjanesbæ Fitjabakka 2–4 olis.is/grill
100% JAFN HITIBETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR
SAFARÍKARI
MATUR
CHAR-BROIL
TITAN GASGRILL
Grillflötur 670x485 mm
3 brennarar
151.200 KR.
Fullt verð: 189.000
THERMOS
GASGRILL
Grillflötur 420x440 mm
2 brennarar
27.920 KR.
Fullt verð: 34.900
CHAR-BROIL
GASGRILL
Grillflötur 670x470 mm
3 brennarar
87.920 KR.
Fullt verð: 109.900
CHAR-BROIL
BIG EASY
Steikarofn, reykofn
og grill
43.920 KR.
Fullt verð: 54.900
P
IP
A
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
63
57
1 20%
AFSLÁTTUR
AF
GRILLUM
CHAR-BROIL
GÆÐAGRILL
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað með
fjölskyldunni eða slaka á heima
við og njóta kyrrðarinnar.
Áslaug Bára Loftsdóttir starfar hjá
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
og stundar nám í Háskóla Íslands.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Verslunnarmannahelgin verður tekin í
heimabæ í ár. En samt sem áður að hitta
skemmtilegt fólk, borða góðan mat
og umfram allt njóta þess að vera til.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Það mun vera verslunnarmannahelgin
1994. Það er nefnilega þannig að ég
fékk ekki að fara til Eyja fyrr en ég varð
20 ára (þrátt fyrir að hafa verið farin að
heiman og hafa búið erlendis). Þá fór
ég til Eyja með góðu og skemmtilegu
fólki. Það var brjálað veður alla helgina,
allt þar til við fórum heim á mánu-
degi. Það er það sem gerir hana líka
eftirminnilega. Það skipti ekki máli og
allir að skemmta sér og ekkert vesen.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitthvað
vera ómissandi um þessa helgi?
Í dag er ómissandi að nýta þessa
helgi ekki vel. Löng helgi, síðasta
helgin í sumarfríi og því á að njóta.
Góður matur, gott vín, skemmtilegt
fólk, út að dansa og vakna í mínu
rúmi, með salerni og sturtu.
Svona breytist þetta með aldrinum.
Ómissandi að nýta
þessa helgi ekki vel
Víkurfréttir spurðu nokkra
Suðurnesjamenn út í áform þeirra
um verslunarmannahelgina en
fólk er ýmist á leið á útihátíðir
með vinunum, í sumarbústað með
fjölskyldunni eða slaka á heima
við og njóta kyrrðarinnar.
Tónlistarmaðurinn Ólafur Þór
Ólafsson ætlar að vera á flandri um
verslunarmannahelgina. Ólafur er
grunnskólakennari og er einnig
forseti bæjarstjórnar í Sandgerði.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina og hvert á að fara?
Ég byrja helgina á því að spila á Opnu
sviði á Bryggjunni í Grindavík á föstu-
dagskvöldið. Daginn eftir rúlla ég svo til
Vestfjarða með krökkunum mínum og
við verðum þar eitthvað vel fram yfir
helgi. Stórfjölskyldan á hús við Tálkna-
Gítarinn þarf ávallt að vera til taks fjörð og þar ætlum við að hreiðra um okkur og vera svo eitthvað á ferðinni um nágrennið svona eins og við nenn-
um. Okkur finnst æðislegt að komast
þarna vestur í fjöllin, fegurðina og
rólegheitin. Sumarið er heldur ekki full-
komnað fyrr en maður er búinn að ná
að stinga sér a.m.k. einu sinni í Pollinn.
Er einhver verslunarmannahelgi sem
er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Þær eru nú margar skemmtilegar
verslunarmannahelgarnar og sögurn-
ar sem eru til frá þeim eru nú ekki
allar prenthæfar í virðulegum frétta-
miðli. Ég get nefnt að ég var bara 15
ára þegar ég fór með félögum mínu
á fyrstu útihátíðina í Húsafelli árið
1987 og var það eftirminnilegur túr.
Sem betur fer hefur menningin í
kringum þessa helgi breyst frá þeim
tíma og í dag þykir ekki eðlilegt að
unglingar séu eftirlitslausir á svoleiðis
samkomum. Einhverjar helgar hef ég
svo bara verið heima og það hefur líka
verið fínt og soldið sérstakt að vera á
nánast mannlausum Suðurnesjum.
Hvað finnst þér einkenna góða versl-
unarmannahelgi og finnst þér eitthvað
vera ómissandi um þessa helgi?
Ávísun á góða verslunarmannahelgi er
góður félagsskapur og að veðrið haldist
svona þokkalegt. Ef þetta tvennt er í
lagi þá er ekki stórmál hvar maður er
á landinu. Og jú gítarinn þarf að vera
með. Það er ekki almennileg verslunar-
mannahelgi nema það sé gítar einhvers
staðar nálægt sem er hægt að grípa í.