Víkurfréttir - 18.04.2007, Side 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
HAFIÐ SAMBAND
VIÐ SÖLUFÓLK
OKKAR Í SÍMA
421 OOOOprentun?vantar þigVÍKURFRÉTTIR BJÓÐA PRENTÞJÓNUSTU
Það má segja að það hafi verið páskahrotustemmn-
ing upp á það
besta á lands-
fundi Sjálfstæð-
i s m a n n a u m
sí ð ustu h el g i
þar sem á annað
þúsund kjörinna
landsfundarfull-
trúa báru saman bækur, slíp-
uðu og mótuðu mismunandi
sjónarmið til stefnumörkunar
og árangurs fyrir íslenskt sam-
félag. Þetta er mögnuð sam-
koma þar sem ekkert gengur
fram nema að sátt sé um það
áður en upp er staðið.
Eitt af þeim málum sem hæst
bar var eindreginn vilji og
ákvörðun að fylgja enn betur
eftir en gert hefur verið í mál-
efnum eldri borgara og öryrkja.
Í vetur var tekin ákvörðun um
að veita liðlega 30 milljörðum
króna inn á vettvang eldri borg-
ara í hækkun á greiðslum og
meiri réttindum í þeim efnum,
en þetta fjármagn kemur inn á
næstu fjórum árum. Kerfið er
hins vegar mjög flókið og það
er erfitt að átta sig á því. Lands-
fundurinn ákvað hins vegar að
beita sér fyrir því að einfalda
kerfi lífeyrisbóta og skatta og
gera það skilvirkara.
Einnig var ákveðið að taka
meira mið af hag einstaklinga
fremur en hópa.
Á undanförnum mánuðum hef
ég bæði í ræðu og riti talað fyrir
því að þeir sem eru komnir með
almennan eftirlaunarétt geti
unnið launaða vinnu án þess að
nokkrar skerðingar komi til og
ég tel að miða eigi við 67 ár, en
nú hefur Geir Haarde formaður
Sjálfstæðisflokksins tekið af
skarið að tryggja skuli að þeir
sem eru orðnir sjötugir geti
unnið launaða vinnu án þess að
launin skerði lífeyri frá Trygg-
ingastofnun. Við berjum áfram
fyrir lægri aldursviðmiðun.
Þá lýsti Geir því yfir að minnka
bæri nú þegar skerðingar í al-
mannatryggingakerfinu úr 40%
í 35% eða 5% í viðbót við það
sem nýverið var gert. Allt í rétta
átt.
Þá er það yfirlýst stefna sjálf-
stæðismanna að ríkið tryggi
öllum lágmarkslífeyri frá lífeyris-
sjóði, t.d. 25 þús. kr.á mánuði til
hliðar við greiðslu úr almanna-
tryggingakerfinu og jafnframt
munu sjálfstæðismenn tryggja
það að kjarabótum verði stýrt
sérstaklega til þess þriðjungs
aldraðra sem lakast eru settir.
Grundvöllurinn fyrir úrbótum
svo um munar hjá eldri borg-
urum eins og samfélaginu öllu
er að styrk efnahagsleg stjórn
sé á landinu svo að menn geti
treyst á að það gera á standist
sveiflur hversdagsins ef ekki
er jafnvægi á hlutunum. Eldri
borgarar þekkja það af lengstri
reynslu að stjórn efnahagsmála
hefur alltaf farið úr böndunum
þegar sjálfstæðismenn hafa ekki
verið við stjórnvölinn og því
miður er vinstri flokkunum í
engu treystandi í þeim efnum.
Þess vegna þurfum við að
tryggja áfram stjórnarsetu Sjálf-
stæðisflokksins með fullu afli til
árangurs. Tíminn er dýrmætur
og þess vegna þurfa handtökin
að vera traust, í höndum sjálf-
stæðismanna.
Árni Johnsen
Stefnu Framsóknarmanna í fjölmörgum góðum bar-
á t t u m á l u m
barst öf lugur
liðsauki um síð-
ustu helgi, þegar
Samfylkingin og
Sjálfstæðisflokk-
u r i n n h é l d u
landsfundi sína.
Sterkan hljómgrunn var þar
að finna með stefnu sem Fram-
sóknarmenn kynntu í byrjun
mars og má þar nefna málefni
eldri borgara og barnafjöl-
skyldna auk menntamála og
nýsköpunar í atvinnulífinu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar
hafa þrátt fyrir þetta slegið
falskan tón í umræðunni að
undanförnu. Á meðan fulltrúar
flokksins keppast við að skrifa
háa kosningatékka sem leystir
verða út í hvelli, komist Samfylk-
ingin til valda, gagnrýna menn
þensluástand í hagkerfinu og
hafa helst horft til Framsóknar-
manna í þeim efnum. Vissulega
ber Framsókn helming ábyrgð-
arinnar í ríkisstjórn og skorast
ekki undan henni. Það hljóta
hins vegar allir að sjá það í
hendi sér að það verður ekki
bæði slegið verulega í og dregið
saman eins og flokkurinn boðar
jafnframt með stoppstefnu sinni
við nýtingu náttúruauðlinda.
Vissulega takast menn á um
forgangsröðun þegar kemur að
framkvæmdum á vegum hins
opinbera og það eru alltaf ein-
hverjir sem telja forgangsröðun-
ina ósanngjarna. En það að ætla
sér að krossfesta Framsóknar-
menn vegna þess sem ekki hefur
náðst að framkvæma vil ég
minna á að framan af starfstíma
ríkisstjórnarinnar fór drjúgur
tími í að koma jafnvægi á efna-
hagslíf landsmanna, auka kaup-
mátt heimilanna og það sem
sjaldnast er talað um að skapa
12.000 ný störf í landinu, sem
er auðvitað grundvöllur þess að
hér sé hægt að halda uppi öfl-
ugu velferðarkerfi.
Flestir flokkar boða stórfellda
sókn í velferðarmálum. Líka rík-
isstjórnarflokkarnir. Eini mun-
urinn er sá að á sama tíma ætla
stjórnarandstöðuflokkarnir að
hægja verulega á hjólum efna-
hagslífsins án þess að geta gert
grein fyrir því sem kemur í stað-
inn. Reyndar er ekkert víst að
þessi stefna nái fram að ganga
þar sem fulltrúar Samfylkingar-
innar, eins og Vinstri grænna,
eru ekki einhuga um stefnuna
og fulltrúar þessarra flokka í
sveitarstjórnum víða um land,
hafa staðið að málum sem
brjóta gegn stopp-stefnunni
sem nú er kynnt. Það er því ekki
á vísan að róa í þeim efnum og
alls óvíst að menn fái það sem
búið er að teikna upp í kosninga-
loforðum.
Framsóknarmenn hafna alfarið
öfgum og annað-hvort-eða póli-
tík, þar sem menn eru litaðir
gráir eða grænir og látið er eins
og aðrir litir séu ekki til. Hjá
Framsóknarmönnum er rúm
fyrir alla liti regnbogans og um
þessar mundir er að renna upp
ljós fyrir fjölmörgum hugsandi
og ábyrgum kjósendum sem
hafna öfgum og vilja ræða póli-
tík á skynsömum nótum. Þar
er Framsóknarflokkurinn góður
valkostur.
Helga Sigrún Harðardóttir
Skipar 3. sæti á lista Framsókn-
armanna í Suðurkjördæmi.
Árni Johnsen skrifar:
Margvíslegar úrbætur tryggðar
fyrir eldri borgara
Helga Sigrún Harðardóttir skrifar:
Framsókn berst öflugur liðsauki
South River Band spilar í Duushúsum
Þjóðlagahljómsveitin South River Band heldur tónleika í bíósal
Duushúsa í Reykjanesbæ á morgun, sumardaginn fyrsta kl. 15.
Tónlist sveitarinnar, sem er keflvísk að einum sjötta og hefur gefið
út þrjár breiðskífur, er fjölbreytt og hressileg þjóðlagatónlist sem
sækir innblástur víða um heim, m.a. til Írlands og Úkraínu. Allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í tónsmíðum þeirra fé-
laga og eru hvattir til að mæta.
Samtökin Samstaða og forsvarsmaður þeirra,
Steinþór Jónsson, hótelstjóri
í Reykjanesbæ, hafa verið til-
nefnd til forvarnarverðlaun-
anna 2007 fyrir öflugt starf til
forvarna og fræðslu í umferð-
aröryggismálum. Í síðasta tölu-
blaði Víkurfrétta var stiklað á
stóru í starfi Samstöðu, sem
eru regnhlífarsamtök fyrir
áhugahópa um umferðaröryggi
um allt land.
Starf þeirra er eitt af samverk-
andi þáttum sem hefur orðið
til þess að mun færri bana skys
hafa orðið í umferðinni í ár en
á síðasta ári, sem var eitt það
versta frá upphafi í því tilliti.
Veittar verða viðurkenningar í
þrem flokkum: Í fyrsta lagi til
fyrirtækis sem skarað hefur
framúr í forvörnum, í öðru
lagi til einstaklings sem sýnt
hefur forystu og frumkvæði í
forvörnum og loks til félagasam-
taka eða stofnana sem staðið
hafa í fararbroddi í forvörnum.
Nú hefur starfshópur verð-
launanna fundið sigurvegara í
hverjum flokki og hljóta þeir
viðurkenningu fyrir frábært
forvarnastarf á sínu sviði. Einn
af þeim þremur sem hlýtur við-
urkenningu fær síðan Íslensku
forvarnaverðlaunin 2007 sem
verða afhent í dag.
Þess má geta að slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja er einnig til-
nefnt til verðlaunanna fyrir starf
sitt.
Samstaða tilnefnd
til forvarnaverðlauna
VF-m
ynd/Þ
orgils