Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2007, Page 30

Víkurfréttir - 18.04.2007, Page 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR MARÍA KVEÐUR KEFLAVÍK Haukakonur eru Íslands-meistarar í kvenna- körfuknattleik annað árið í röð eftir 77-88 sigur á Kefla- vík í fjórða úrslitaleik liðanna síðasta laugardag, einvíginu lauk með 3-1 sigri Hauka. Haukar eru vel að titlinum komnar og eru titilhafar allra bikara sem hægt er að vinna á vegum Körfuknattleikssam- bands Íslands. Leikur síðasta laugardags var sögulegur fyrir margra hluta sakir en hans verður þó einna helst minnst fyrir að vera fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni í kvennakörf- unni sem sýndur er í beinni útsendingu en það var Ríkis- sjónvarpið sem sýndi beint frá leiknum þar sem kvennalands- liðsþjálfarinn Guðjón Skúla- son var aðstoðarþulur Geirs Magnússonar. Helena Sverrisdóttir var valin besti leikmaður úrslitakeppn- innar en Helena og María Ben Erlingsdóttir, leikmaður Kefla- víkur, halda til Bandaríkjanna í haust þar sem þær munu vera við nám næstu árin. Það verður því sjónarsviptir af þeim Helenu og Maríu en þær eru vafalítið sterkustu körfuknattleikskonur þjóðarinnar. María segir að það hefði vissulega verið skemmti- legra að kveðja Keflavík með Ís- landsmeistaratitli en hún hefur fulla trú á að vinkonum sínum takist að ná þeim stóra á næstu leiktíð. „Við vildum þetta greini- lega ekki nægilega mikið en ég veit að stelpurnar eiga eftir að standa sig vel á næsta ári og þær eiga eftir að taka alla titlana, þeim langar til þess og ég er viss um að þeim tekst það,“ sagði María í samtali við Víkurfréttir en í ágúst heldur hún til Banda- ríkjanna. María mun stunda nám við University of Texas Tan America þar sem hún ætlar sér í lyfjafræði. „Ég fer kannski í maí til Banda- ríkjanna til að kanna aðstæður en ég hef séð helling af myndum frá skólanum og myndband af körfuboltaliðinu og mér líst rosalega vel á þetta því liðið er gott og þjálfarinn líka. Þetta er fjögurra ára nám sem ég fer í en ég skrifa bara undir eitt ár í einu og skoða bara framhaldið hjá mér eftir hvert skólaár úti,“ sagði María sem er einnig á meðal máttarstólpa íslenska landsliðsins. Íslenska liðið lýkur síðari hlutanum í riðlakeppn- inni í Evrópukeppni kvenna um það leyti sem skólinn ytra hefst hjá Maríu. „Það getur verið að ég komi heim og spili með landsliðinu, mig langar til þess en við sjáum hvað setur,“ sagði María sem núna er að ljúka stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem hún kláraði á þremur árum til þess að komast í námið í Bandaríkjunum. Við brotthvarf Maríu hverfur mikill styrkur úr teignum hjá Keflavík en margar efnilegar stelpur gera nú tilkall í miðherjastöðu Maríu og verður fróðlegt að sjá hverjir nota sum- arið vel til að fylla hennar skarð. Það ætti þó enginn að láta sér bregða ef María klæðist aftur á næstu árum Keflavíkurbún- ingnum því hún var ekki sátt við að skilja við vinkonur sínar í liðinu drekkhlaðin silfurverð- launum. Komið að skuldadögum Bigir Már Bragason vara-formaður Körfuknatt- leiksdeildar Keflavíkur stóð við veðmálið á laugardag og innti af hendi 5000 krónur og viðtakandinn var Helena Sverr- isdóttir, besti leikmaðurinn í úrslitakeppninni í kvennakörf- unni og fyrirliði Hauka. For- sagan að veðmálinu teygir sig aftur í bikarúrslitaleik Hauka og Keflavíkur sem fram fór þann 17. febrúar síðastliðinn. Birgir gerði upp sakirnar við Helenu eftir að Haukar fögn- uðu Íslandsmeistaratitlinum í Keflavík. Þannig var mál með vexti að í upphitun fyrir bikarleikinn fræga stóð Helena utan vallar þegar Birgi bar að. Birgir bauð Helenu að skjóta langskoti frá varamannbekknum og ef hún myndi hitta fengi hún 5000 krónur fyrir vikið. Þegar menn veðja um hluti af þessu tagi við bestu körfuknattleikskonu landsins verður útkoman aðeins á einn veg, varaformaður sem er 5000 kr. fátækari. FRÍHÖFNIN GETSPÖKUST ALLRA FYRIRTÆKJA Starfsmenn Vöruhúss Fríhafnarinnar eru sigurvegarar í Fyrirtækjaleik Barna- og Unglingaráðs knattspyrnudeildar Keflavíkur árið 2007. Fríhöfnin fékk 23 af 33 stigum mögulegum í keppninni. Tvö fyrirtæki höfnuðu í öðru sæti en þau voru Hitaveita Suðurnesja og Áfangar. Í síðasta blaði áttust við IGS og Hitaveitan en það var jafnframt síðasta rimman og lauk þeirri keppni með jafntefli þar sem bæði fyrirtæki voru með 9 rétta. Þar með ef fyrirtækjaleiknum lokið en tipparar bíða spenntir eftir næsta ári. María í baráttunni gegn Haukum. Hún hefur nú sagt sitt síðasta í bili með Keflavíkurkonum. VF -M yn d/ J BÓ 5000 KRÓNUR! Það veit ekki á gott að veðja gegn Helenu.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.