Víkurfréttir - 24.05.2007, Side 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
��
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
�
��
��
�
��
��
��
��
��
��
��
��
Data Íslandia byggir grænar gagnageymslur á Miðnesheiði:
Fyrirtækið Data Ís landia stefnir á að byggja umhverf-
isvæna gagnageymslu og gagna-
þjónustu á Rockville-svæðinu
í landi Sandgerðisbæjar. Sol
Squire, framkvæmdastjóri Data
Íslandia, og Sigurður Valur Ás-
bjarnarson, bæjarstjóri Sand-
gerðisbæjar, kynntu fyrirhugaða
uppbyggingu og starfsemi Data
Íslandia á blaðamannafundi í
Sandgerðisbæ á þriðjudag. Alls
mun fullbúin geymslan geta
haldið utan um 30 milljón gíga-
bæt af gögnum.
Gert er ráð fyrir að bygging hús-
næðis Data Íslandia hefjist síðar
á þessu ári en í tilkynningu frá
aðilum segir að við uppbyggingu
og starfsemi gagnageymslunnar
verði lögð áhersla á umhverfis-
sjónarmið. Endurnýjanleg orka
mun knýja starfsemina, náttúru-
leg vindkæling dregur úr orku-
þörf og arkitektúr verður í sátt
við umhverfið auk þess sem starf-
semin mun styrkja byggð í Sand-
gerðisbæ og nágrenni.
Húsnæðið verður byggt upp í
áföngum og er fyrsti áfangi áætl-
aður um 800 m2 en fullbyggt
verður húsnæðið um 4.000 m2
og er vonast til að það verði orðið
að veruleika á næsta ári. Eftir að
fyrsti áfangi hefur verið tekinn í
notkun, væntanlega síðar á þesu
ári, munu um 20 störf skapast
við gagnageymsluna og verði upp-
bygging í takt við áætlanir Data
Íslandia munu enn fleiri störf
skapast á næstu árum.
Starfsemi Data Íslandia í Sand-
gerðisbæ mun þurfa um 2 MW af
raforku eftir uppbyggingu fyrsta
áfanga og 10 MW miðað við full
afköst. Til samanburðar má nefna
að núverandi orkunotkun Sand-
gerðisbæjar er um 20 MW. Ekki
þarf að virkja sérstaklega til að út-
vega raforku fyrir starfsemina en
Data Íslandia mun að mestu þjón-
usta stóra erlenda viðskiptavini
sem vilja vista mikið magn gagna
á eins umhverfisvænan hátt og
kostur er.
Sol Squire, sagði íslenskt samfélag
hafa upp á mikið að bjóða. Stað-
setning Sandgerðis við alþjóða-
flugvöllinn sé kjörin þar sem
stærri gangaflutningar muni eiga
sér stað með því að gögn séu flutt
flugleiðina til landsins og afrituð
inn á netþjóna hér. Viðskipta-
vinir erlendis muni þó nýtast við
sæstrengstengingu til að fylgjast
með gögnum sínum og hlaða inn
í takmörkuðu magni.
Arkitektinn Robert Örn Arnar-
son hjá Hoff & Jørgensen Arki-
tekter í Kaupmannahöfn, sótti
innblástur í íslensku torfbæina og
hannaði byggingarnar fyrir gagna-
geymslur Data Íslandia með það
fyrir augum að þær féllu eins vel
og hægt er inn í umhverfi stað-
arins.
30 MILLJÓN GÍGABÆT Í
GEYMSLU Á ROCKVILLE
- Framkvæmdir hefjast síðar á árinu. 20 manns fá vinnu við 1. áfanga.
Jón Norðfjörð, verkefnisstjóri, Sol Squire, framkvæmdastjóri Data
Íslandia, og Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðis-
bæjar, virða fyrir sér líkan af mannvirkjunum.
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222