Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.2007, Síða 21

Víkurfréttir - 24.05.2007, Síða 21
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN 24. MAÍ 2007 21STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Okk ur lang ar að koma á fram færi inni legu þakk- læti til stjórn enda og starfs- fólks Myllu bakka skóla fyr ir gott starf. Sér stak ar þakk ir vilj um við færa þeim Frey- dísi og Írisi fyr ir fram tak þeirra í þágu tján ing ar og sköp un ar. Við höf um ver ið svo lánsöm að eiga 4 börn í þess um „æv- in týra“ skóla og ver ið þátt tak- end ur í því blóm lega starfi sem þar fer fram. Hver leik sýn ing in á fæt ur annarri hef ur lit ið dags ins ljós und an far in ár og má þar nefna verk eins og Hryll- ings búð ina, Bugsy Malone, Hatt og Fatt og nú síð ast „Er kær asti mál ið“ sem öll hafa vak ið verð skuld aða at hygli. Áð ur nefnd ir kenn ar ar sem og aðr ir sem hafa lagt á sig ómælda vinnu full ir af áhuga og gleði hafa smit að út frá sér í betra og fjöl breytt ara skóla- starfi. Þess ber að geta að það eru ekki ein ung is þeir nem- end ur sem taka þátt í sýn ing- un um sem láta sitt af mörk um held ur líka þeir nem end ur sem þeirra njóta. Sam kennd, liðs heild og ánægja smit ar all an nem enda hóp inn sem og starfs fólk skól ans og for eldra. Til þess að starf semi sem þessi fái að blómstra og dafna er mik il vægt að for eldr ar og aðr ir að stand end ur sýni áhuga á skóla starf inu. Okk ar reynsla er sú að starfs fólk skól ans hef ur ávallt tek ið vel á móti okk ur sem for eldr um þeg ar við höf um gef ið okk ur að því starfi sem fer fram inn an skól ans. For eldr ar eru ekki síð ur fyr- ir mynd ir en kenn ar ar og til þess að skóla ganga barns ins verði sem ánægju leg ust þurfa báð ir að il ar að leggja hönd á plóg til að vel tak ist. Það er til mik ils að vinna og ósk andi að skól ar hér í bæ fái auk ið svig rúm til efl ing ar á list- og verk grein um. Með sum ar kveðju, Karen og Ket ill for eldr ar í Myllu bakka skóla Síð ast lið ið haust skor aði kjör dæm is ráð Vinstri- hreyf ing ar inn ar - græns fram boð ein róma á mig að gefa kost á mér í 1. sæti á lista flokks ins í Suð- ur kjör dæmi við ný liðn ar al þing is- kosn ing ar. Ég varð við þess ari áskor un þakk lát ur fyr ir það traust sem í henni fólst. Í hönd fóru rúm- lega átta er il sam ir en ótrú lega gef andi mán uð ir með ferða- lög um og heim sókn um um kjör dæm ið þvert og endi langt. Á þess um tíma hef ég kynnst dæma laust mörgu sóma fólki, fjöl breyttu og fram sæknu at- vinnu lífi, van nýtt um at vinnu- tæki fær um, bú setu mis mun un, lífs sýn sem er til eft ir breytni og þannig mætti lengi telja. Mér og flokks systk in um mín um hef ur hvar vetna ver ið tek ið af hlý hug og vel vild. Okk ur tókst það sem að var stefnt, ná inn tals manni á Al þingi fyr ir hug sjón ir Vinstri grænna í kjör dæm inu og íbúa þess. Fyr ir allt þetta erum við inni lega þakk lát og um leið auð- mjúk. Það er okk ar stíll að sýna þakk læti í verki og það er sann- ar lega verk að vinna með íbú um Suð ur kjör dæm is. Það vilj um við gera und ir kjör orð inu: Burt með bú setu mis mun un - Bæt um kjör lands byggð ar fólks, minnug þess að all ir skulu vera jafn ir fyr ir lög um og njóta mann rétt inda án til lits til efna- hags eða stöðu að öðru leyti. Óað skilj an leg ur hluti mann- rétt inda er bú setu jafn ræði sem íbú ar Suð ur kjör dæm is fara á mis við á veiga mikl um sam fé- lags svið um. Enn og aft ur, hjart ans þakk ir fyr ir hlýj ar mót tök ur og góða kosn ingu. Fyr ir hönd Vinstri hreyf ing ar- inn ar - græns fram boðs í Suð- ur kjör dæmi, Atli Gísla son. Atli Gíslason skrifar: Hjart ans þakk ir frá Vinstri græn um Karen og Ketill skrifa: Frá bært fram tak Myllu bakka skóla Prentþjónusta Víkurfrétta Bæklingar-Nafnspjöld-Dreifibréf Hafið samband við söludeild: 421-0000

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.