Víkurfréttir - 01.02.2007, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Sjúkdómar í tönnum
og munni er a lgeng
ástæða þess að komið sé
með dýr til dýralæknis.
Meðhöndlun er möguleg
í m örg u m t i l f e l lu m
e n f o r v a r n i r e r u
alltaf besti kosturinn.
Hvolpar og kettlingar fæðast tannlausir.
Mjólkurtennurnar koma upp þegar
þeir eru 3-6 vikna gamlir og tannskipti
verða við 3-7 mánaða aldur (þetta gerist
nokkru fyrr hjá köttum en hundum).
Fullorðnir hundar hafa 42 tennur en
fullorðnir kettir 30 tennur. Sérstaklega
hjá smáhundum kemur það fyrir að
tannskipti ganga ekki eðlilega fyrir sig
og þeir fella ekki mjólkurtennurnar
þrátt fyrir að fullorðinstennurnar
komi upp. Þetta á einkum við um
framtennur og vígtennur í efri góm.
Hafi mjólkurtennurnar ekki losnað
við 7-8 mánaða aldur er nauðsynlegt
að láta taka þær, annars verða þær til
vandræða.
Rannsóknir hafa sýnt að allt að 70%
fullorðinna hunda og katta þjást af
einhvers konar tannsjúkdómum.
Tannskemmdir eins og þekkjast hjá fólki
er ekki algengt vandamál hjá gæludýrum
en hins vegar er tannsteinsmyndun og
tannholdsbólga afar algengt vandamál
sem getur leitt til alvarlegra skemmda
á tönnum, tannholdi og jaf nvel
kjálkabeini sé ekkert að gert. Tannsteinn
myndast af matarleifum og bakteríum
sem safnast upp í kringum tennurnar.
Það veldur ertingu á tannholdinu sem
verður rautt og bólgið. Sé tannsteinninn
ekki fjarlægður safnast hann upp undir
tannholdinu sem smám saman eyðist.
Einkenni slíkrar tannholdsbólgu eru
m.a. viðvarandi andremma, blæðing
úr tannholdi, lausar tennur og léleg
matarlyst. Algengara er að hundar af
litlum tegundum eigi við tannvandamál
að stríða en stórir hundar. Ástæðan er
í raun plássleysi í munninum á þeim.
Fullorðnir kettir sem fá eingöngu
blautfóður eru oft með ansi mikinn
tannstein.
Miki lvægt er að e igendur skoði
reglulega upp í kjaftinn á hundum og
köttum og fylgist með ástandi tanna
og tannholds. Með þessu móti venst
dýrið líka tannskoðun sem er hluti
af heilbrigðisskoðun hjá dýralækni.
Nokkur ráð eru til að halda tönnunum
hreinum. Ýmis nagbein (þetta á ekki við
um ketti) eru gagnleg í þessu tilliti og
því lengur sem það tekur hundinn að
naga það, því betra. Þurrfóður er betra
fyrir tennurnar en blautfóður og sumar
tegundir þurrfóðurs innihalda auk
þess sérstök efnasambönd sem draga
úr tannsteinsmyndun. Tannburstun
er þó besta leiðin til að fyrirbyggja
tannvandamál. Auðvitað er nauðsynlegt
að hundurinn eða kötturinn leyfi
eigandanum yf irleitt að eiga við
tennurnar og fara ber að öllu með gát.
Til eru sérstakir tannburstar fyrir dýr
en mjúkir barnatannburstar eru góðir
til að byrja með. Ekki er þörf á að nota
tannkrem. Gott er að byrja á einni tönn
og þegar hundurinn eða kötturinn er
farinn að venjast burstuninni eru fleiri
tennur teknar.
Sé tannsteinn þegar farinn að safnast
upp er hægt að láta fjarlægja hann. Það
er gert í deyfingu eða svæfingu með
tæki sem myndar hátíðnihljóðbylgjur
sem brjóta upp steininn. Tennur sem
eru illa farnar eru fjarlægðar. Oft er
dýrið svo sett á sýklalyfjakúr í framhaldi
af tannhreinsun. Hafið í huga að illa
farnar tennur og sýkt tannhold getur
va ldið hundum og köttum mjög
mik lum óþægindum og orsakað
alvarleg heilsufarsleg vandamál. Kíkið
uppí munninn á heimilisdýrinu strax
í dag (en gætið þess þó að verða ekki
bitin!).
Hrund Hólm dýralæknir
- hrundholm@simnet.is
Dýralæknastofa Suðurnesja
- www.dyri.com
Hrund Hólm, dýralæknir
skrifar fyrir Víkurfréttir
Tennur og tannhirða hjá hundum og köttum
�����������������
Samkaup hf auglýsir laust til umsóknar starf verslunarstjóra í Kaskó Keflavík
Starfssvið:
• Ábyrgð á rekstri verslunar
• Dagleg stjórnun
• Starfsmannahald
• Samskipti við viðskiptavini
• Birgðahald og önnur tilfallandi störf
Menntun og hæfniskröfur:
• Góð almenn grunnmenntun
• Reynsla af verslunarstörfum
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Reynsla í starfsmannahaldi
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi, samstarfsfúsum og sjálfstæðum.
Umsóknir berist Skúla Skúlasyni starfsmannastjóra fyrir 5. febrúar 2007, umsóknum má skila á
skuli@samkaup.is
Samkaup hf. rekur 36 verslanir undir merkjum Samkaup úrval, Samkaup strax, Kaskó, Nettó og Hyrnunnar
og eru þær víða um landið. Hjá Samkaupum starfa í dag rúmlega 750 manns og margir með langan
starfsaldur. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu samkaup.is
Verslunarstjóri Kaskó Keflavík