Víkurfréttir - 13.12.2007, Qupperneq 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 13. DESEMBER 2007 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
að leysa af í Hveragerðiskirkju
í einn vetur og var félagsmála-
stjóri annan vetur og svo starf-
aði ég við afleysingar í Reykja-
vík. Var einn vetur bæði í Hall-
grímskirkju og í Dómirkjunni
var ég héraðsprestur og nú er ég
komin í Tjarnarprestakall.“
Kemst ekki í jólakortin
fyrr en á annan í jólum
Jólin nálgast og aðventan er
hafin. Höfðar hún til nútíma-
mannsins?
,,Við finnum að aðventan höfði
heilmikið til fólks. Það er búið
að panta mig í ýmsar athafnir
í hinum og þessum félagsskap
til að koma og tala. Fólk vill
fá að skapa jólastemningu og
jólahughrif og það er spurning
hvernig þeim tekst það í þessu
mikla áreiti sem manni finnst
stundum fara yfir mörkin í des-
ember. Það er samt mikill áhugi
og okkur er vel tekið þar sem
við komum.“
Mik ið verð ur um að vera
um jólin og er þétt dagskrá
hjá sr. Báru í desember bæði
í Kálfatjarnarsókn sem og í
Ástjarnarsókn. ,,Kirkjurnar eru
til að hjálpa fólki að búa til und-
irbúning fyrir jólin og skapa
hughrif sem færa þau nær jóla-
boðskapnum.
„Í Kálfatjarn ar sókn verð ur
miðnæturmessa kl. 23:00 á
aðfangadag en það verð ur
önnur messan hjá mér á deg-
inum. Sú fyrri verður kl. 18:00
í Hafnarfirði þannig að það
verður ekki mikill tími fyrir mig
til að fara heim og vera með fjöl-
skyldunni. Þetta er oft svona á
aðfangadag hjá prestum, ég næ
stundum ekki að lesa jólakortin
fyrr en á annan í jólum vegna
anna.
Á jóladag verður jólamessa kl.
14:00 og þá munum við m.a.
syngja okkar fallegu jólasöngva
og svo á nýársdag verður messa
kl. 14:00. Þá lokum við gamla
árinu og hefjum nýtt.“
Jólin eru gleðiboðskapur
Verslanir hafa verið gagnrýndar
undanfarin ár fyrir að hengja
upp jólaskraut löngu áður en
jól in hefjast. Sr. Bára hefur
ákveðn ar skoð an ir á þessu
og telur að jólaboðskapurinn
eigi að vera í fyrirrúmi. ,,Mér
finnst að jólaundirbúningurinn
sé alltaf að færast fram. T.d. er
farið að skreyta sums staðar í
búðum í október. Það gerir það
að verkum að þetta verður svo
langt tímabil og maður jafn-
vel orðin nokkuð leiður áður
en kemur að jólum. Þá er ég
ekki síst að hugsa til barnanna
sem eru örvæntingarfull fram
að jólum. Tíminn hjá þeim er
miklu lengri að líða heldur en
hjá okkur fullorðna fólkinu.
Það getur verið svo erfitt fyrir
þau að horfa á jólasveina í októ-
ber eða byrjun nóvember og
þá eru rúmir tveir mánuðir í
jólin. Mér finnst þetta algjörlega
skotið yfir markið og ég vildi
sjá að við settum meiri kraft í
jólaundirbúninginn frá fyrstu
helgi í aðventu. Það eru fjórar
vikur og alveg nóg,“ sagði sr.
Bára hugsi um börnin og leggur
áherslu á að jólin séu gleðiboð-
skapur. ,,Það eru svo miklar
kröfur í samfélaginu sem fólk
setur á sig sjálft og það sem það
sér í umhverfinu. Gjafirnar eiga
að vera svo miklar og það þarf
að toppa sig frá því einhvern
tímann síðast. Það getur bara
verið svo erfitt að ná því. Þá
má því segja að maður verði óá-
nægður og líður illa því maður
stendur ekki undir væntingum.
Jólin eiga að færa okkur gleði,
frið og kærleika og það er svo-
lítið auðvelt að drukkna í þessu
ytra fargani ef það nær yfirhönd-
inni. Ég vil hvetja fólk til að
horfa á það, hvað get ég gert
með fjölskyldu minni. Jólin eru
fjölskylduhátíð og mjög mikil-
væg sem slík fyrir okkur Íslend-
inga. Þannig að ég vildi óska að
áherslupunkturinn yrði þar svo
fólk geti líka ákveðið að draga
sig í hlé frá þessu áreiti ef það
er að trufla það. Ef það er mjög
kátt með þetta og allt það þá er
það allt í lagi. Ef þeim finnst að
þetta sé að fara yfir strikið og
þetta verkar sem kvíði og ónot
í undirbúningi jólanna, að fólk
hugsi þá hvar get ég dregið mín
mörk og hvað ætla ég að setja í
forgangsröð. Hverju ætla ég að
sleppa svo okkur líði vel sem
fjölskyldu, það er að ég held það
sem skipti mestu máli.“
„Mér finnst þetta algjörlega skotið yfir
markið og ég vildi sjá að við settum
meiri kraft í jólaundirbúninginn frá
fyrstu helgi í aðventu. Það eru fjórar
vikur og alveg nóg.“
Viðtal: Stefán Þór Borgþórsson - Myndir: Þorgils Jónsson og Stefán Þór Borgþórsson