Morgunblaðið - 30.08.2017, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2017
8
MÓTHERJARNIR
Benedikt Guðmundsson
benediktrunar@hotmail.com
F
yrir tveimur árum lenti
íslenska körfubolta-
landsliðið í einum
svakalegasta dauðariðli
sem sést hefur, ekki
bara í körfuboltasögunni heldur
íþróttasögunni. Það að fimm af átta
bestu landsliðum í álfunni séu saman
í riðli er eitthvað sem á ekki að vera
hægt. Gerði það möguleika Íslands á
sigri nánast enga en á móti var of-
boðslega skemmtilegt fyrir liðið og
alla stuðningsmenn að mæta þessum
risaþjóðum. Það að hafa síðan staðið
hressilega í þremur þeirra gerir mót-
ið eftirminnilegt.
A-riðillinn, sem Ísland er í nú, er
allt öðruvísi. Riðillinn er vissulega
sterkur, eins og allir riðlar eru þegar
komið er á lokamót. Hins vegar eru
möguleikar á sigri eða sigrum til
staðar. Það er samt engin þjóð þarna
sem Ísland „á að vinna“ því allar hin-
ar fimm þjóðirnar eru taldar sterkari
en Ísland, svona fyrir fram.
Grikkland
Fyrsti leikurinn er gegn Grikk-
landi sem er mikil körfuboltaþjóð,
með mikla sögu og hefð. Gríska liðið
var eitt af þremur sem unnu alla sína
leiki í riðlinum á EM 2015 en varð að
sætta sig við 2 stiga tap gegn Spán-
verjum í átta liða úrslitum. Vænt-
ingar Grikkja hafa verið miklar fyrir
EM í Finnlandi enda leit liðið virki-
lega vel út framan af sumri.
Aftur á móti hafa bara borist nei-
kvæðar fréttir að undanförnu úr her-
búðum liðsins. Fyrst tilkynnti gríska
undrið, Giannis Antetokounmpo, að
hann mundi ekki spila með liðinu og
síðan hafa leikmenn liðsins víst verið
að tjá sig hver við annan með hnef-
unum.
Antetokounmpo er klárlega hæfi-
leikaríkasti leikmaður Grikkja og
fjarvera hans veikir liðið töluvert,
enda einn hæfileikaríkasti leikmaður
NBA deildainnar. Gríska sambandið
er mjög ósátt með NBA liðið hans,
Milwaukee Bucks, og vill meina að
hann sé ekki meiddur eins og Bucks
heldur fram. Eldri bróðir hans mun
hins vegar spila og vera fulltrúi fjöl-
skyldunnar, sem er upprunalega frá
Nígeríu. Þeir bræður hafa valið að
spila fyrir hönd Grikklands í stað
landsliðs Nígeríu.
Grikkir spila taktískan körfubolta
og verður ekki auðvelt fyrir íslenska
liðið að keyra upp hraðann gegn
þeim, þar sem Grikkir eru virkilega
góðir í því að stjórna tempóinu í leikj-
um. Þannig að ef það er einhver óein-
ing innan hópsins hjá Grikkjum þá
aukast möguleikarnir á sigri. En að
sama skapi ef yfirstjórnin er hætt að
pirra sig á Milwaukee Bucks, og leik-
mennirnir hættir að slást, þá er þetta
mjög erfitt verkefni sem bíður okkar
í fyrsta leik.
Pólland
Pólland verður án sinnar helstu
stjörnu í Finnlandi en miðherjinn
Marcin Gortat, leikmaður Wash-
ington Wizards, var heldur ekki með
liðinu í undankeppninni. Það munar
um minna fyrir pólska liðið og verður
erfitt fyrir Mike Taylor, þjálfara liðs-
ins, að fara með liðið eins ofarlega og
síðast þegar Pólverjar enduðu í 11.
sæti. Til að bæta gráu ofan á svart þá
meiddist Maciej Lampe fyrir stuttu,
en hann er líklegast næstbesti leik-
maður leikmaðurinn á eftir Gortat.
Taylor má eiga að hann hefur engu
að síður búið til flotta liðsheild sem
gerir liðið erfitt viðeignar. Á móti er
stöðugleiki ekki helsta einkenni liðs-
ins og er það verkefni drengjanna
okkar að sjá til þess að þetta verði
slæmur dagur hjá pólska liðinu.
Bandaríkjamaðurinn og leikstjórn-
andinn AJ Slaughter stýrir liðinu en
honum var boðinn ríkisborgararéttur
fyrir lokakeppnina 2015 sem hann
þáði. Hann hefur reynst liðinu vel
enda hæfileikaríkur bakvörður sem
hefur sem dæmi verið leikmaður árs-
ins í efstu deild í Frakklandi þar sem
hann leikur áfram í vetur.
Þeir Haukur Helgi Pálsson og
Martin Hermannsson eru því ekki
bara að fara að kljást við kauða í
Finnlandi heldur líka í vetur. Það
þarf að hafa góðan hemil á honum ef
sigur á að vera raunhæfur möguleiki.
Frakkland
Frakkar mæta til leiks án nokk-
urra heimsklassa leikmanna en engu
að síður er liðið gríðarlega sterkt.
Frakkar eiga svo ofboðslega marga
hágæða leikmenn að ef allir væru
heilir, og gæfu kost á sér, gæti
Frakkland verið með svona 3-4 virki-
lega sterk lið í lokakeppninni.
Helsta von Íslands að ná óvæntum
sigri er að Frakkar mæti hrokafullir
til leiks og vanmeti íslensku víking-
ana. Það kæmi mér ekki á óvart ef
þeir legðu allt í sölurnar í leikinn
gegn Grikkjum daginn áður, þar sem
þeir telja sig eiga náðugan dag gegn
litla og krúttlega Íslandi 19 tímum
seinna. Það gæti því verið upplagt að
taka fast á þeim frá fyrstu sekúndu
og sjá hvernig þeir bregðast við. Það
gæti farið illa í þá ef strákarnir berja
aðeins á þeim.
Möguleikinn á sigri er enginn ef
þetta verður hæfileikakeppni í körfu-
bolta í 40 mínútur.
Slóvenía
Slóvenar mæta til leiks með hörku
lið þar sem NBA-stjarnan Goran
Dragic er fremstur í flokki. Dragic
var með rúm 20 stig í leik hjá Miami
Heat í vetur en hann var ekki með
Slóvenum á EM fyrir tveimur árum.
Annar bakvörður sem Slóvenar tefla
fram er undrabarnið Luka Doncic.
Þessi 18 ára strákur er einn áhuga-
verðasti leikmaður mótsins og hvet
ég alla til að fylgjast vel með honum.
Hann var frábær með Real Madrid í
vetur en spænska stórveldið keypti
hann til sín þegar krakkinn var að-
eins 13 ára gamall. Í síðustu sjö æf-
ingaleikjum Slóvena fyrir mótið hef-
ur þessi krakki verið stigahæstur í
fimm þeirra. Það mun reyna vel á
bakverðina okkar að reyna halda
þessum tveimur í skefjum. Þá hafa
Slóvenar styrkt sig verulega inni í
teig frá síðustu lokakeppni með því að
redda fyrrverandi NBA leikmann-
inum Anthony Randolph slóvenskum
passa. Eftir að hafa vera valinn núm-
er fjögur í nýliðavali NBA á sínum
tíma af Golden State lék Randolph
sex tímabil í NBA en síðasta vetur
var hann liðsfélagi Doncic hjá stórliði
Real Madrid.
Íslenska liðið þarf algjöran
stjörnuleik til að leggja Slóvena að
velli þar sem allt gengur upp en það
er allt hægt á góðum degi. Ég sé
þetta skemmtilega lið Slóvena fara
langt í þessu móti og yrði ekki hissa
ef þetta yrði „spútniklið“ mótsins.
Finnland
Finnar eru búnir að festa sig í sessi
í lokakeppni EM en þetta er fjórða
lokakeppnin í röð sem þeir eru meðal
þátttakenda. Það er mikil eftirvænt-
ing í Finnlandi hjá heimamönnum og
líklegt að stuðningurinn í stúkunni
muni hjálpa Finnum mikið. Finnar
hafa tapað öllum sínum æfinga-
leikjum nema einum fyrir mótið, sem
er ekkert sérstaklega sannfærandi en
æfingaleikir eru ekki nærri því það
sama og þegar í alvöruna er komið. Í
síðasta æfingaleiknum sínum töpuðu
þeir fyrir Rússum með 9 stigum en
við Íslendingar máttum einnig sætta
okkur við tap gegn Rússum fyrir
stuttu.
Finnska liðið er klárlega það lið í
riðlinum sem er næst því íslenska í
getu. Þarna er okkar helsti möguleiki
á sigri. Það er alveg klárt að stuðið í
stúkunni verður ekki síðra en bar-
áttan inni á vellinum með fjöldann all-
an af Íslendingum. Vonandi verða
strákarnir búnir að stela einum sigri
áður en kemur að þessum lokaleik í
riðlinum sem gæti þýtt að þetta yrði
úrslitaleikur um sæti í 16-liða úrslit-
um. Ég hef endalausa trú á þessu liði
okkar og með öflugum stuðningi í
Helsinki er allt hægt.
Öflugir Slóvenar gætu slegið
í gegn á EM í Finnlandi
Riðill Íslands í Helsinki mjög sterkur Finnska liðið næst því íslenska í styrkleika á pappírunum
AFP
Reyndur
Frakkinn
Evan Fournier
leikur með
Orlando Magic
í NBA-deildinni.
Leikirnir á EM
A-RIÐILL
Leikið í Finnlandi
ÍSLAND
Pólland
Grikkland
Frakkland
Finnland
Slóvenía
B-RIÐILL
Leikið í Ísrael
Úkraína
Ísrael
Litháen
Georgía
Ítalía
Þýskaland
C-RIÐILL
Leikið í Rúmeníu
Króatía
Tékkland
Spánn
Svartfjallaland
Rúmenía
Ungverjaland
D-RIÐILL
Leikið í Tyrklandi
Bretland
Rússland
Serbía
Lettland
Tyrkland
Belgía
Leikir íslenska
liðsins í A-riðli
ÍSLAND – GRIKKLAND
Fim. 31. ágúst kl. 13:30
PÓLLAND – ÍSLAND
Lau. 2. september kl. 10:45
FRAKKLAND – ÍSLAND
Sun. 3. september kl. 10:45
ÍSLAND – SLÓVENÍA
Þri. 5. september kl. 10:45
FINNLAND – ÍSLAND
Mið. 6. september kl. 17:45
Finnland
Rúmenía
Ísrael
Tyrkland
B2-A3 A1-B4 B1-A4 A2-B3
Þriðjud. 12. sept. Þriðjud. 12. sept.
Fimmtud. 14. september kl. 18:30 Föstud. 15. september kl. 18:30
Sunnudagur 17. september kl. 14:00 um 3. sæti og kl. 18:30 um EM-titilinn
Miðvikud. 13. sept. Miðvikud. 13. sept.
C1-D4 D2-C3 C2-D3 D1-C4
Laugardaginn 9. september Sunnudaginn 10. september
16 LIÐA ÚRSLIT
UNDANÚRSLIT
ÚRSLITALEIKIR
8 LIÐA ÚRSLIT
Allir leikir eftir riðlakeppnina fara fram í Tyrklandi
EM Í KÖRFUBOLTA 2017