Ljósið - 01.01.1908, Blaðsíða 3

Ljósið - 01.01.1908, Blaðsíða 3
JPormáli. Ljósið mitt er tímarit en ekki hálfsmánaðarrit eins og málgagn þjóðkirkjunnar lúthersku, sem vinur minn séra Pór- hallur Bjarnarson gefur út. Ljósið mitt eflir ekki síður hreinan kristindóm og sanna menning, heldur en málgagn lútliersku kirkjunnar. Lútherskan er að deyja fyrir skynsamlegri framsókn vitsins og frelsi manns- andans. Leit eftir sannleika, kærleika og réttlæti vors góða andlega föður, er gaf oss kristnum mönnum barnarétt og frclsi til að nota vitið, til að rannsaka gamla mannaverkið, ritinguna. Vér eigum að velja og liafna. Ilerra vor og faðir heíir alls ekki sett neina hlekki á frelsi barna sinna. Drottinn er góður faðir barna sinna, miskunar sig- cilíf- líflega yflr þau. Hann fullkomnar manneðlið með því, að láta oss breyta skoðunum og hrinda ljótum lærdómum villuþjóðanna, sem ekki skyldu þann fyrsta krisnta mann, Jesú. Það er af mér dæmt ókristileg kenning, að faðir vor á himnum hafi látið kvelja og devða gott afkvæmi sitt, fyrir aug- um sér. Enginn réttliugsandi mannvinur getur án hneysu mælt fórnarkenningu kirkjunnar bót. fað er svívirðileg vantrú að kenna, að guð skapi líf til eilífra kvala, ckki lieldur til þess að það verði að engu. Bað er argasta lýgi, að nokkur skapaður maður þurfi að óttast góðan guð. Væri guð illur, er sjálfsagt að liata þann þræ). Ljósið mitt kemur ekki út fyr eníjanúar 1909. Það verð- ur sent í alla hreppa á íslandi, og er skorað á lútherska guð- fræðinga að kasta hneixlis-kenningunni, og létta og skýra málið. Sannleiksþckking vor kristinna manna, ln'in er ekki gefin öll i einu, lieldur íer hún vaxandi, eftir því sem andi drottins vors úlbýtir anda sannleikans, sem náðargjöf, þcim cr lionum þykir helzt undirbúnir, og bezt fallnir til að stríða fyrir sann- leikann. Svik í taíli og spilum er Ijótt. Ótrúmenska við sann- leika, frelsi og réttlæti á jörð eru stór-glæpir, sem hegna sér sjálf- ir. Góður andi er læknir mannlífsins. »Með þeim sama mælir og þér mælið öðrum, skal yður aftur mælt vcrða.«

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.