Ljósið - 05.03.1908, Qupperneq 4
36
LJÓSIÐ
herrann noti stiltur stál,
starfið rekur ótta úr sál.
Veki biskup trúartal,
tala gott eg við' hann skal,
eg meta þá mun horskan hal,
sem hefir mikið drengjaval.
Það er verra en barnabrek,
ef biskup ekkert sýnir þrek
á hreinan pappír ber eg blek,
og biskupinn í vörður rek.
Biskup fær hjá bónda mát,
blessuð sér það öldin kát,
hann afgamlan brýtur bát,
á bræðrum hans er mesta fát.
Bestu laun fær biskupinn,
þó brjóti tíu boðorðin;
öldin flest það segir svinn,
að sé hann versti ómaginn.
Eg það segi um þann mann,
ef hann færi’ á spítalann,
vart eins þungur verður hann,
vitið máske lagast kann.
Hallgrímur ei heiðrar svall,
hans ofmikið spítir gall,
óvitar ei spinna spjall
þá spekina talar Einar karl.
Reifaður gulli riddarinn
ragur fer í bælið inn,
óttast herrann manndóm minn,
sem mann og byssu refurinn.
Klerkurinn líkur Kaífas
er kristin fræði aldrei las;
þeir sem ala flónsku flas,
fá dóm sama og Matthías.