Ljósið - 05.03.1908, Blaðsíða 7
LJÓSIÐ
39
lior’fuLX*
álít eg og fleiri séu nú komnar í trúfrelsis áttina.
Með nýjárinu hætti Jón docent Helgason að starfa
að útgáfu og ritstjórn »Nýja kirkjubl.cc, skyldi því ekki
valda bæði andleg' og líkamleg fátækt þess rangeygða
kennimanns?
Prófessor Þórhallur Bjarnarson er nú einn ritstjóri
og ábyrgðarmaður, að þessu nýja málgagni þjóðkirkj-
unnar. Fleirum en mér fmst Kirkjublaðíð, það fyrsta
á þessu ári, langtum meira í frelsisáttina, en meðan tveir
ólíkir menn höfðu ritstjórn þess.
Bréfkaflar úr prívatbréfum frá prófasti Zóphóníasi
sáluga, er var í Viðvík, til prófessors Þórhalla. Þeir eru
prentaðir í »Nýja kirkjublaðinu«, og sýna þeir greinilega
hvað prófastur Zóphónías áleit að prestar væru bundnir
við óheilnæmar gamlar venjur og rangar trúarskoðanir.
Það er auðskilið, að prófasturinn þráði skýrari og fyllri
trúarsannanir en kirkjan og hennar þjónar gefa. Geng-
ur Zóphónías svo langt í bréfköflum þessum, sein hann
hefir þorað embættis síns vegna. Zóphónías var mjög
vel kristinn í anda, í því langtum fremri Páli Sigurðs-
syni, sem þó margir álitu fyrirmyndar prest; en hann
var ágætur únítara kennimaður, eftir skapi síra Matthí-
asar bróður míns. Síra Páll Sigurðsson kendi ekki
Jesús Krist, sem Guð drottinn almáttugann. Það verð-
ur að kenna hann svo, þá falla um koll bókstafskenn-
ingar og villur klerkanna, það þurfa menn að skilja, að
spámaður dó, en ekki eilífur Jesús Kristur. Það eru
fleiri undrandi yfir heimsku presta i trúarefnum, en eg
einn. Það trúa fáir afturgöngusögum nú. Þær eru ekki
kristilegar. Skynberandi menn, sem eru með réttu ráði,
trúa betur náttúrulögmálinu. Ritningin segir frá tveim
mönnum, sem aldrei dóu á jörðunni. Elías spámaður,
er sagt er, að hafi farið í eldlegum vagni til himins, kast-
nði að ejns ytix'höfn sinni niður á leiðinni til himnarík-
Js. Upprisusögur eru margar í biblíunni, í báðum testa-
mentunum. Það var bæði fyrir og eftir upprisu Messí-
asar, að menn risu upp þótt dauðir væru. Líkið af