Ljósið - 27.06.1913, Page 1

Ljósið - 27.06.1913, Page 1
LJOSIÐ ^nmavtt ^xnavs JjoduxmssoYm. 5. ár. Reykjavík, 27. júní 1913. 11. blað. Guð vor er Jesús Kristur. var p til biskupsins yfír íslandi, herra Þórhalls Bjarnarsonar, guðfræðinganna á Sýnódus 24. júni 1913. í nafni drottins vors og herra Jesú Krists áminni eg ykkur alla um að verða samtaka í því, að laga guðfræði þá, sem þið kennið æskulýð vorum. — Það sjá það allir rétthugsandi menn, að hún er röng, og því ekki trúarleg. Einn sannur guð er til frá eilífð, sem ekki lætur sig vera án vitnisburðar. Skapari og frelsari vor, mannanna, er einoghinsama persóna; andi, vilji og kraftur þessarar guð- dómlegu persónu er góður og almáttugur. Pessi drottinn alheimsins, konungur konunga og kot- unga, hefur aldrei fæðst af konu og dáið. Spámaðurinn, sem misskilinn var, píndur og deyddur á Gyðingalandi, hann var ekki nema að líkamanum til af konu fæddur, né heldur dó hann nema að líkamanum tii. Andinn var sú ódauð- lega vera, 'sem kallast guðs son og guð blessaður frá eilífð til eilífðar, Jesús Kristur. Hann er vegurinn til guðs og huggarinn, sem vér megum treysta. Hann upplýsi ykkar skilning, bræður mínir. Eg er syndari eins og þið. Drottins náð og miskunn er eilíf og nær út yfir gröf og dauða. Enginn maður, sál, útskúfast eða kvelst eilíflega. Vinur syndaranna, Einar Jochumsson.

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.