Ljósið - 27.06.1913, Page 3
L J Ó S I Ð
75
Sjálfur prófessorinn kemst ekki lengra, en svo í elleftu hug-
leiðing sinni; að hann segir þessi oið, »Sé Jesús Kristur guðs
sonur, þá er hann drottinn minn og herra, sém mér ber að
hlýða í öllu.«
Nú sjáum vér aliir, sem trúum á Jesúm Krist sem sannan
guð, að hér er efi, en ekki staðföst trú. Þar við bætist, að
hann breytir ( orðum og verkum ekki eftir fyrirmyndinni, Jesú
frá Nazaret, sem var þó sannur maður, er þekti föðurinn, sem
er uppspretta allrar náðar og miskunnar, og hann sagðist gjöra
hans vilja, því að andi föðursins starfaði í honum og jesús
starfaði fyrir föðurinn, Og Jesús vildi Ieggja alt undir föðurs-
ins vald, eins og faðirinn gaf honum alt vald til að sigra myrkra-
verk mannanna, sem spretta af vanþekkingunni og misskilningn-
um á því, hvað gott sé og sómasamlegt handa börnum þess
eina sanna guðs.
Jón Helgason þarf að læra betur að kasta dæmdum hneyksl-
um þeim, er kirkjunnar þjónar halda fast í, þó ómögulegt sé
fyrir þá að verja þá Ijótu lærdóma, sem leiða börn frájesú Kristi
til veraldlegrar villu og stundarhagsmuna.
Veröldin fyrirferst og hennar glys og heimska, en sannur
heimur guðs stendur og mun starfa á þeim grundvelli sem
traustari er en sandurinn.
Heiðindómur, gyðingdómur og margskonar önnur trúarbrögð
mega ekki vera samfara og vafin um það heilaga evangeh'ó, sem
er náðarboðskapur til allra þjóða.
Útskúfunarkenning, blóðfórnarkenning, gömul táknatilbeiðsla —
þetta á alt að falla fyrir nýrri og hreinni siðmenningarkenningu,
sem hver skynsamur maður finnur að eykur blessunarríkar fram-
farir, ekki einasta handa þeim svokölluðu læ'rðu mönnurn, heldur
og handa öllum, sem vinna í víngarði drottins,
Mér er illa við alla kúgun og alt valdboð, einkanlega þegar
um trú er að tala. Lifandi trú er gjöf frá lífsins og kærleikans
föður, sem vér börn Jesú Krists viðurkennum, að lrann sé okkar
•alt, þar eð hann hefir orð eilífa lífsins og er sá, sem vald hefir
til að hreinsa sorann úr gullinu, og skilja myrkið frá Ijósinu,
og sannleikann, sem er talinn frelsari vor, frá hinni viðurstyggi-
legu lygi, sem maðurinn hefir með tungu sinni nrest syndgað
með.
Eg lofa því að fylgja af öllum kröftum hverjum þeim mann-