Ljósið - 27.06.1913, Page 4

Ljósið - 27.06.1913, Page 4
76 L J O S I Ð vini, sem vill með alvöru leiða í Ijós sannleika lífsins og hið rétta frelsi sem fullkomnar okkur til þess að vér getum heitið sannir menn og eftirbreytendur hins mikla herra, er oss hefir kallað til starfs í sínum víngarði hér á jörðinni. Jafnvel þó Jón virði mig ekki, skal eg samt virða hann og alt það, sem gott og göfugt er í hans fari, en þann hroka, sem hann hefir sýnt mér, mun eg aldrei virða, af því það er ekki rétt að virða drambsemi, og staðhæfing hans, að eg viti ekkert og kunni ekki að tala við siðaða menn. Og ekkert ber greini- legar vott um vesaldóm og siðmenningarskort eins og hroki og dramb ýmsra stórbokka í mannfélaginu. E. J. Pólftíska ástandið hér á landi. Hví er það orðið svo spilt? Svar: Af því að menn hafa margoft tapað aiiri skynsamiegri stjórn á hugsunum, orðum og gjörðum. Mottó: Vilt er bæði þjóð og þing. Það er guðleg vissa. Einar gefur upplýsing, Oldin situr hissa. Menri hafa yfirleitt Iátið valdþyrsta og illa valda flokksfor- ingja blinda sig til fylgis við sig. Þessir sömu menn hafa gint ýmsa pólítiska glamrara til að starfa fyrir sig. Kaupmen t. d. hafa máske lofað stöðugri atvinnu, jafnvel að gefa upp skuldir þeim, sem kysu þann leiðtoga er kaupmanninum féll best. Þetta er ekki rétt né sómasamlegt, því að öll atkvæðagreiðsla, hvort hún fer fram opinberlega eða leynilega, á að vera frjáls og bygð á skoðun hvers einstaks kjósanda. Vitaskuld er það ekki nema heiðarlegt, að sá sem býður sig fram til þingmensku, haidi fundi í því héraði, þar sem hann býður sig fram. Þar iætur hann í ljósi stefnu þá, er hann vill berjast fyrir eins og vel hugsandi mannvinur, sem leiðir þjóðina til framfara í heild sinni. Hann má ekki taka of mikið tillit til einstaks héraðs. Það verður að vera alt í hófi. Hver heiðarlegur þingmaður á að sýna á máli

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.