Ljósið - 27.06.1913, Qupperneq 5
L J Ó S I Ð
77
sínu, að hann sé jafnaðarmaður, fús á að bæfa kjör vinnandi
lýðsins og þeirra undirokuðu, sem hafa oft verið kúgaðir af drotn-
unargirni þingherranna, er ekki kunna að gæta meðalhófs og vilja
maðka krókinn á almennings fé.
Kristileg skylda er það hvers manns, sem lifir undir löggjöf
hins réttkristna fyrsta fræðara, Jesú frá Nazaret, hann sýnir það
að sami andi velvildar og mannúðar nær til allra, ekki síður til,
smælingjanna en hinna háttsettu, sem Iöggjöfinni ráða. Því að
allir sjá, hve mikil spilling það er fyrir krafta siðmenningarinn-
ar, þegar háttsettu mennirnir reynast slæmir fyrirmyndarmenn og
Ienda í féglæfrum og vanskilum. Svo eru þeir sýknaðir eða breitt
yfir yfirsjónir þeirra meira en kristilegt er, í samanburði við þá
lágtstandandi, sem, eins og eðlilegt er, h'ka eru breyskir og brot-
legir eftir ströngum lagaskýringum juristanna. Dæmin eru svo
mörg, að eg get rúmsins vegna ekki talið þau, en skamt á að
minnast er það flókna bankamál, sem eg hefi sjálfur kveðið um
og óskað eftir, að kafnaði algjörlega, þar eð það mun vera svo
ljótt, að margir velmetnir drengir komast ekki lýtalaust úr því
foræði. Alt fyrir það ætti þetta margrædda bankamál að verða
góð aðvörun, að slíkt komi ekki fyrir hjá mönnum, sem eiga
að gæta mikils fjár þjóðarinnar.
Nú skal eg minnast á stærsta atriðið, hvað veldur spillingu
í stjórnarfari þjóðarinnar og út á við óreiðu líka í viðskiftalífinu.
Innri maðurinn, sem er andinn, er mjög viltur, fyrst hjá
guðfræðingum landsins, sem eiga að leiða æskulýðinn, til sann-
leiksþekkingar og lifandi trúar á alheimsfrelsara og fræðara Jesúm
Krist. Án þekkingar á honum er ómögulegt sannan guð að þekkja. En
nú er það ljóst almenningi og mér, einum smælingja, að það
eru einmitt lærðu mennirnir, sem ganga á undan í því að hverfa
frá aðalkjarnanum í guðsopinberuninni, og sama sem ieita ullar
í geitarhúsum.
Þetta getur ekki lengi gengið svo. Menn verða að halda
sér við lífsorðið, sem er Kristur, en sleppa heiðindómi og hé-
giljum og kynjasögum. Því hver rétthugsandi maður getur sann-
að, að djöfullinn sé annað en falskur grýlulærdómur, óvirkilegur
og óþarfur frá upphafi vega sinna?
Að kasta Ijótum lærdómi er víst kominn tími til. Og finst
ntér sönn skylda allra góðra manna að athuga málið.