Víkurfréttir - 16.01.2003, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKUR
FRÉTTIR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jófríður Leifsdóttir,
jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
MUNDI
Ég var beðinn um að gefa eftir
smá pláss í blaðinu vegna
þrengsla - það eru ekki alltaf jólin
Árni Sigfússon bæjar-stjóri Reykjanesbæjarsegir að það dugi lítið
að sitja ævi-
ráðnir á sín-
um skrif-
stofustólum,
telja at-
vinnulausa
og saka svo
sveitar-
stjórnar-
menn um að
vera ekkert að gera, enda sé
það fjarri sanni. „Ég bið
menn um að vinna frekar í
málunum heldur en að tala
um þau.Við horfum til þess
núna að það eru um 312
manns á atvinnuleysisskrá
hér í Reykjanesbæ og það er
312 manns of mikið. Það er
hreyfing á atvinnuleysis-
skránni, en mikilvægast er að
skoða hvað margir eru á leið-
inni inn í langtímaatvinnu-
leysi þar sem viðmiðunin er 6
mánuðir eða lengur. Það eru
sem betur fer örfáir í þeirri
stöðu ennþá og það staðfestir
það að hreyfing sé á skránni.
Hinsvegar er hættan sú að
fleiri séu að fara inn í
lantímaatvinnuleysi. Það er
mjög mikilvægt að rjúfa
þann vonleysismúr sem fer
þá að myndast í huga þess
sem er atvinnulaus.“
Árni segir að Reykjanesbær
hafi verið gerð fjárhagsáætlun-
ar fyrir árið 2003 gert ráð fyrir
ýmsum átaksverkefnum til að
koma til móts við atvinnuleys-
ið: „Reykjanesbær hefur komið
inn með átaksverkefni og er að
undirbúa þau, en það er ein-
göngu fyrir þann hóp sem getur
verið kominn í erfiðari stöðu
vegna langtíma atvinnuleysis.
Árni leggur áherslu á að fram-
kvæmdaverkefni á vegum
Reykjanesbæjar verða margfalt
stærri en undir eðlilegum
kringumstæðum. Áætlað er að
framkvæma fyrir um 800 mill-
jónir á þessu ári sem mun svara
tímabundinni niðursveiflu í at-
vinnumálum, og að auki verður
framkvæmt fyrir mörg hundruð
milljónir við uppbyggingu
sorpeyðingarstöðvar í Helgu-
vík“ segir Árni og bætir við:
„Það sem sveitarfélög geta gert
í slíkri stöðu er að spýta í lóf-
ana, hraðað verkefnum og eins
og menn sjá í fjárhagsáætlun
okkar erum við þannig að
mæta þyngra ári í atvinnulífinu
með því að auka við fram-
kvæmdir. Þær framkvæmdir
stuðla að auknum þrótti í at-
vinnulífinu.“
Árni segir ýmis merki uppi um
að ástandið í atvinnumálum
fari batnandi vegna verkefna
sem koma á svæðið: „Ég vil
nefna flokkunarstöðina og
Fiskimjölsverksmiðjuna í
Helguvík þar sem frysting og
bræðsla er að hefjast. Fram-
kvæmdir eru að hefjast við
jöfnun lóðar fyrir Stálpípugerð
og verulegar framkvæmdir á
vegum bæjarins í byggingum,
gatnagerð og umhverfisverk-
efnum eru á dagskrá. Tvöföld-
un Reykjanesbrautar er hafin
og unnið er af kappi við upp-
byggingu sorpbrennslustöðvar-
innar. Einnig er álvinnsla að
hefja starfsemi í Helguvík á ár-
inu. Við sjáum einnig að flug-
samgöngur og þjónusta eru að
komast úr lægð og búist er við
auknum fjölda flugfarþega, auk
þess sem ný flugfélög tengjast
starfsemi á Keflavíkurflugvelli,
Iceland Express og Kanadíska
flugfélagið HMY.“
Árni segir að það hjálpi lítið að
ræða atvinnumálin út frá
flokkspólitík og hann segir að
allir vilji bæta atvinnuástandið:
„Ég nenni ekki að ræða við
menn sem vilja gera
flokkspólitík úr þessu. Við
erum að vinna okkar verk hér
og það er vissulega samstarfs-
verkefni á milli atvinnulífs og
sveitarfélaga. Við erum að
skapa hér grunn til þess að
auka áhuga fólks á að koma
hingað og bæta aðstæður í at-
vinnulífinu, en það er hinsveg-
ar ekki gert á einum eða tveim-
ur mánuðum og að þessum
málum þarf að vinna af þolin-
mæði. En að framansögðu er
ljóst að við sitjum ekki auðum
höndum í að leggja okkar af
mörkum með auknum fram-
lögum til framkvæmda, aðstoð
við langtímaatvinnulausa, leið-
um til að laða ný fyrirtæki að
og flýtingu verkefna sem fyrir-
tæki á svæðinu geta unnið fyrir
okkur.“
Árni er bjartsýnn á að atvinnu-
ástandið lagist og segir það
grundvallaratriði að nýta þá
miklu möguleika sem svæðið
bíður uppá: „Það sem við þurf-
um að einbeita okkur að á
næstu misserum eins og við
höfum verið að gera er að
styrkja atvinnustarfsemi sem
fyrir er á svæðinu og laða að
nýja. Atvinnufyrirtækin byggja
á arðsemiskröfum og rekstur-
inn er í höndum þeirra en ekki
sveitarfélagsins. Það sem við
getum hins vegar gert er að
stuðlað að aðstæðum sem
stuðlar aftur að góðri arðsemi.
Sem dæmi um slíkt erum við
með góða alþjóðahöfn, al-
þjóðaflugvöll, góðar samgöng-
ur, hentugt húsnæði og góðan
innri markað, þ.e. íbúa svæðis-
ins. Þetta svæði hefur gríðar-
lega mikla möguleika og það
hefur verið unnið mjög skyn-
samlega að uppbyggingu þess
á síðustu árum og því ætlum
við að halda áfram,“ segir Árni
að lokum.
ÁSTAND ATVINNUMÁLA Á SUÐURNESJUM
Kristján Gunnarsson for-maður Verkalýðs- ogsjómannafélags Kefla-
víkur og ná-
grennis seg-
ist líta at-
vinnuá-
standið al-
varlegum
augum:
„Það var
sent út bréf í
lok ágúst
þar sem sveitarstjórnir og
samband sveitarfélaga á Suð-
urnesjum voru vöruð við
horfum í atvinnumálum. Það
var óskað eftir því að gripið
yrði til aðgerða þá þegar, en
ekkert hefur verið gert.“
Kristján segir það skjóta
skökku við þegar horfur í at-
vinnumálum eru slæmar eins
og verið hefur síðustu mánuði,
að þá sé Markaðs- og at-
vinumálaskrifstofan lögð nið-
ur: „Nú eiga þessi mál að vera
komin á hendur hafnarstjórnar,
en ég sé lítið gerast á þeim vett-
vangi,“ segir Kristján. Hann
vill að gripið sé til markvissra
aðgerða strax: „Ég kalla eftir
viðbrögðum sveitarstjórna og
lít á það sem samvinnuverkefni
sveitarfélaga og aðila vinnu-
markaðarins að ganga fram í
þessum málum. Tími aðgerða
er fyrir löngu síðan runninn
upp,“ sagði Kristján í samtali
við Víkurfréttir.
- segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í viðtali við Víkurfréttir
„Ég bið menn um að vinna frekar í
málunum heldur en að tala um þau“
VÖRUÐU VIÐ SLÆMUM HORFUM
Í ATVINNUMÁLUM SÍÐASTA HAUST
„Jóladagarnir gengu fram
úr björtustu vonum en um
700 manns nýttu sér tilboðið
og gistu hjá okkur í desem-
ber“, sagði Steinþór Jónsson
hótelstjóri á Hótel Keflavík
þegar Víkurfréttir spurðu
hann út í það hvernig fram-
takið „Jóladagar í Reykja-
nesbæ“ hafi gengið. Eins og
árið áður bauð Hótel Kefla-
vík upp á fría gistingu í des-
ember fyrir þá er komu í
Reykjanesbæ og gerðu jóla-
gjafainnkaupin hér í bæ.
„Flestir gestanna voru af höf-
uðborgarsvæðinu en annars
fengum við gesti allstaðar frá,
bæði frá nágrannabyggðarlög-
um á Reykjanesi svo og utan
af landi“. Steinþór sagði að
það hefði verið gaman að sjá
hve gestirnir hefðu verið á-
nægðir með þessa uppákomu
og hefðu flestir verið að versla
fyrir mikið hærri upphæðir en
þurfti. „Við sáum að nokkur
hjón höfðu keypt vörur fyrir
allt að þrjúhundruð þúsund
krónur en aðrir voru svona á
bilinu 20.000 - 100.000 kr.“.
Aðspurður um viðbrögð gest-
anna við þessu tilboði sagði
Steinþór þau hafa verið mjög
góð. „Á hótelherbergjum
erum við með spurningarlista
um hvernig gestum líkar þjón-
ustan og var gaman að lesa
viðbrögð gesta í desember.
Starfsfólk hótelsins er sam-
mála um að vinna í desember
hafi verið sérstaklega
skemmtilegt enda allir gestirn-
ir ánægðir með framtakið og
vildu koma því vel til skila.
Athugasemdir eins og frábært
framtak, skemmtileg sam-
staða, frábært að versla, góð
þjónusta og rólegheit voru al-
geng viðbrögð hótelgesta við
hótelinu og þjónustulund af-
greiðslufólks í verslunum bæj-
arins. Sumir vildu meina að
við ættum að vera stolt af okk-
ar verslun og þjónustu og vitn-
uðu þá til aðstöðu og sam-
stöðuleysis í sínum heimabæ
en aðrir nefndu hve gott væri
að versla í svona stresslausu
umhverfi. Við fengum enga
kvörtun yfir vöruúrvali, verði
né öðru slíku“, sagði Steinþór.
Almenn ánægja var hjá versl-
unareigendum í Reykjanesbæ
með tilboð Hótels Keflavíkur.
Var það mál manna að við-
skiptavinirnir hefðu einnig
verið mjög ánægðir og talað
um hve þægilegt væri að
versla í bænum. Semsagt allir
á eitt sáttir við þetta frábæra
framtak!
Jóladagar
fram úr björt-
ustu vonum
www.vf.is
fyrir fréttaþyrsta
3. tbl. 2003 - 16 sidur 15.1.2003 16:42 Page 4