Víkurfréttir - 16.03.2017, Qupperneq 18
18 fimmtudagur 16. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@vf.is
Íbúum á Suðurnesjum mun fjölga um 55 pró-
sent á næstu þrettán árum samkvæmt spá
Framtíðarseturs Íslands um búsetuþróun. Íbú-
ar á Suðurnesjum eru nú um 22.600 en verða
34.800 talsins árið 2030 gangi spá setursins
eftir. Svo mikil fjölgun íbúa kallar á undirbún-
ing hjá sveitarfélögum á Suðurnesjum. „Þetta
er óvenjumikil fjölgun íbúa og við verðum að
skoða vel hvað hún hefur í för með sér,“ segir
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Hjá
Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, er
nú unnið að innviðagreiningu til að undirbúa
fólksfjölgunina. Að sögn Berglindar er með
henni kannað hvort til staðar sé það sem þarf
til að mæta breyttu og fjölmennara samfélagi.
„Við erum byrjuð á greiningunni og vonumst til að ljúka henni í
vor. Við munum þar setja upp nokkrar sviðsmyndir og vinnum
þann hluta áfram með Kadeco og Isavia. Til að mynda vitum við
ekki fyrirfram hvort fjölskyldufólk verður í meirihluta þeirra sem
hingað flytja eða hvort hingað komi fólk til að vinna tímabundið.
Það verður kúnst að skoða þetta og bera saman,“ segir hún.
Berglind segir mikilvægt að halda rétt á spöðunum eigi móttaka
nýju íbúanna að ganga sem skyldi. „Við gerum okkur fyllilega
grein fyrir því að ef við skipuleggjum okkur ekki er hætta á því
að hlutirnir fari ekki á besta veg. Það er mikilvægt að við verðum
tilbúin.“
Gert er ráð fyrir að fjölgun íbúa verði nokkuð jöfn meðal sveitar-
félaga. Sé horft til undanfarinna mánaða þá hefur íbúum fjölgað
í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum og mikil eftirspurn verið
eftir húsnæði. „Það er óhætt að segja að það sé uppvaxtarskeið hjá
okkur núna enda atvinnuástandið með besta móti,“ segir Berglind.
Meðal þess sem skoðað er í greiningu Heklunnar eru skipulags-
mál, landnotkun, orkuvinnsla, hafnarsvæði, iðnaður, íbúasvæði,
vinnumarkaðurinn, samgöngur og flutningar. „Við skoðum einnig
framboð lóða og reynum að leggja mat á þörf á uppbyggingu leik-
skóla og grunnskóla á svæðinu.“
Gera húsnæðisáætlun til næstu ára
Bæjaryfirvöld í Sandgerði eru byrjuð að undir-
búa fjölgun íbúa. Nýlega hófst vinna við gerð
húsnæðisáætlunar til næstu þriggja, fimm og
tíu ára, að sögn Sigrúnar Árnadóttur, bæjar-
stjóra í Sandgerði. „Auk þess liggur fyrir aðal-
skipulag til ársins 2024 og í því er gert ráð
fyrir íbúðabyggðum á óbyggðum svæðum og
þjónustu sem þörf er á vegna fjölgunar íbúa,
svo sem leikskóla og grunnskóla,“ segir hún.
Úthluta lóðum fyrir 22 íbúðir
Sveitarstjórnin í Vogum hefur ekki tekið sér-
staklega til umfjöllunar spá Framtíðarseturs
um fjölgun íbúa á Suðurnesjum til ársins
2030, að sögn Ásgeir Eiríkssonar, bæjarstjóra
Sveitarfélagsins Voga. „Hér, eins og annars
staðar á Suðurnesjum, hefur verið talsverð
fjölgun íbúa og mikil eftirspurn eftir íbúðahús-
næði. Sveitarfélagið hyggst úthluta lóðum fyrir
að minnsta kosti 22 íbúðir í sumar. Það fer eftir
viðbrögðunum hvernig framhaldið verður,“ segir Ásgeir. Hann
bendir á að sveitarstjórnarkosningar verði haldnar á næsta ári og
viðbúið að ný bæjarstjórn hefjist handa í upphafi nýs kjörtíma-
bils við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins, en þá verður
skipulagstímabilið hálfnað. „Í þeirri vinnu mun án efa verða tekið
til ýmissa þátta, þar með talið spá Framtíðarseturs og annars sem
máli kann að skipta í þessu sambandi.“
Framkvæmdir við nýjan
grunnskóla að hefjast
Endurskoðun aðalskipulags, sem meðal ann-
ars tekur á þörf fyrir grunnskóla, leikskóla,
samgöngur og húsnæði stendur nú yfir hjá
Reykjanesbæ. Að sögn Kjartans Más Kjart-
anssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæ, eru þrjár
sviðsmyndir í aðalskipulaginu, eftir því hver
fjölgunin verður; lágspá, miðspá og háspá.
„Eins og fjölgunin er núna eigum við lóðir og
innviði til ársins 2019. Framkvæmdir við nýjan grunnskóla, sem
einnig mun hýsa leikskóla, hefjast síðar á þessu ári, strætókerfið
okkar er í endurskoðun og byggingar nýrra íbúða eru að hefjast,
bæði hjá einstaklingum og verktökum.“ Þá segir Kjartan mikil-
vægt að passa upp á að þjónusta Reykjanesbæjar varðandi barna-
vernd, þjónustu við fatlaða og aldraða haldi í við fjölgun íbúa.
Vel í stakk búin að taka
við nýjum íbúum
Í gildandi aðalskipulagi
Grindavíkur voru tvær
sviðsmyndir settar upp.
Önnur felur í sér að í lok
skipulagstímabilsins fjölgi
íbúum um 700 og miðað
er við 2,5 íbúa í íbúð. Til að
anna þörf þyrfti til ársins 2030 að byggja 280 íbúðir eða 14 íbúðir
á ári. Síðari sviðsmyndin sem kölluð er bjartsýnisspá segir að íbúa-
fjölgun væri 1150 manns en ennþá miðað við 2,5 íbúa í íbúð, slík
uppbygging myndi krefjast 460 íbúða, 23 íbúða á ári. Þetta kemur
fram í svari frá Grindavíkurbæ við fyrirspurn Víkurfrétta. Töluvert
pláss er í Grindavík fyrir nýja íbúabyggð sem þegar hefur verið
deiliskipulögð, til að mynda norðan Hópsbrautar. Þá hefur nýlega
verið samþykkt deiliskipulag fyrir gamla bæinn.
Nýr leikskóli er á aðalskipulagi og þá er gert ráð fyrir önnur af
starfsstöðvum grunnskólans geti stækkað þegar þörf krefur og er
líklega stutt í að sú framkvæmd verði nauðsynleg. Í svari Grinda-
víkurbæjar segir að sveitarfélagið hafi stigið varlega til jarðar og
lagt áherslu á jafna og skynsamlega uppbyggingu innviða og reynt
að mæta fyrirsjáanlegri þörf nokkur ár fram í tímann. Bæjarfélagið
sé því vel í stakk búið að taka á móti nýjum íbúum á næstu árum.
Stækka grunnskólann á þessu ári
Sveitarfélagið Garður vinnur að því á ýmsum
sviðum að mæta þeirri þróun sem fjallað er
um í spá Framtíðarseturs, að sögn Magnúsar
Stefánssonar, bæjarstjóra. „Hafa ber í huga að
á innan við tveimur árum hefur orðið alger
umbylting á stöðu atvinnu-og búsetumála
á Suðurnesjum og slíkar breytingar á mjög
stuttum tíma setja alla aðila í erfiða stöðu, þar
sem margar nauðsynlegar aðgerðir sveitar-
UNDIRBÚA 55%
FJÖLGUN ÍBÚA
●● Því●er●spáð●að●íbúum●á●Suðurnesjum●muni●fjölga●um●55%●á●næstu●13●árum
●● „Óvenju●mikil●fjölgun●íbúa,“●segir●framkvæmdastjóri●SSS
Berglind
Kristinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri
Sambands
sveitarfélaga á
Suðurnesjum
Sigrún Árnadóttir,
bæjarstjóri
í Sandgerði.
Ásgeir Eiríksson,
bæjarstjóri í Vogum.
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri í
Reykjanesbæ.
Magnús
Stefánsson,
bæjarstjóri í Garði.