Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 1

Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 6 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 VERTU LAUS VIÐ LIÐVERKI www.artasan.is H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 7 1 1 0 3 0 Betolvex B-12 Fæst án lyfseðils ViðsKiPti Ekkert verður af kaupum íslenskra lífeyrissjóða á hlut í Arion banka fyrir útboð og skráningu bankans síðar á árinu. Hafa allir sjóð- irnir, en tólf þeirra höfðu samþykkt að fara í óskuldbindandi viðræður við Kaupþing um kaup á tæplega tíu prósenta hlut, tekið ákvörðun um að fjárfesta ekki í bankanum áður en ársuppgjör hans verður birt næst- komandi miðvikudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þetta varð ljóst undir lok síðustu viku þegar fyrir lá að enginn af fjór- um stærstu lífeyrissjóðum landsins – LSR, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi og Birta – ætlaði að kaupa í bankanum á þessu stigi. Aðrir sjóðir, meðal annars Frjálsi lífeyrissjóður- inn, ákváðu því einnig að draga sig út úr viðræðunum við Kaupþing, en það er Kvika banki sem er ráð- gjafi félagsins í söluferlinu, enda var aðkoma helstu tveggja af stærstu lífeyrissjóðunum talin nauðsynleg ættu  kaupin að geta gengið eftir. Lífeyrissjóðirnir eru sagðir, að sögn þeirra sem þekkja vel til, hafa metið það sem svo að skynsamlegra væri – og áhættuminna – að skoða fremur kaup á hlut í bankanum í fyrirhuguðu útboði enda þótt verðið kynni þá að reynast eitthvað hærra. Enn er því haldið opnu að trygg- ingafélög og verðbréfasjóðir kaupi mögulega lítinn hlut í bankanum á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs Kaupþings sem gerir ráð fyrir verði sem er rétt yfir genginu 0,8 miðað við eigið fé Arion banka í lok þriðja árs- fjórðungs 2017. Samkvæmt svörum sem Kaup- þingi bárust frá sjóðunum föstu- daginn 2. febrúar lýstu á annan tug sjóða áhuga á að kaupa samanlagt nærri 10 prósenta hlut. Stjórn Gildis samþykkti þannig að fara í viðræður um kaup á talsverðum hlut í Arion, þó með þeim skilyrðum að ekki yrði fallist á tilboð Kaupþings óbreytt, og þá vildi LSR skoða málið frekar. Að lokum ákváðu sjóðirnir, rétt eins og Birta og Lífeyrissjóður verslunar- manna, að slíta viðræðunum. hordur@frettabladid.is Kaupa ekki í Arion banka fyrir útboð Lífeyrissjóðir slitu viðræðum við Kaupþing í lok síðustu viku. Á annan tug lífeyrissjóða hafði áður lýst yfir áhuga á að kaupa samanlagt tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka. Horfa frekar til þess að kaupa í bankanum við útboð. Áhættuminna að kaupa hlut í útboði. sKOðun Pawel Bartoszek þakkar Stellu Blómkvist fyrir að hafa gert strætó loks kúl. 9 sPOrt Carlos Carvalhal hefur snúið gengi Swansea við. 11 lÍfið Tvíburasysturnar Hrefna Ósk og Elín Hrönn Jónsdætur eru aldrei langt frá hvor annarri. 22 Fréttablaðið í dag Plús 2 sérblöð l fólK l fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Halldór saMfélag Viðar Guðmundsson, bóndi í Miðhúsum í Kollafirði, hefur hýst tvo kínverska ferðamenn  frá því á laugardaginn. Þau festu bíl sinn og hefur verið ófært síðan. „Þau eru áhugasöm um Ísland og eru búin að koma með okkur í fjár- húsin og hafa fengið að fræðast um eitt og annað tengt landinu,“ segir Viðar en hann býst við því að ferða- mennirnir komist leiðar sinnar í dag. – þea / sjá síðu 2 Hýsti tvo fasta ferðamenn Aftakaveður, eða svokallað appelsínugult veður, gekk yfir höfuðborgarsvæðið í gær. Veðurofsinn var mikill víðast hvar um landið. Dagurinn gekk þó stóráfallalaust fyrir sig í borginni. Svo virðist sem borgarbúar hafi tekið því rólega innandyra. Þessi fallegi silfurmáfur lét sér fátt um finnast, enda öllu vanur, er hann flaug yfir öldurótinu við Grandatorg. Fréttablaðið/Eyþór saMfélg „Ég er hætt að bera ábyrgð á þessu ofbeldi, svo ég ákvað að henda því bara frá mér. Þetta er ekki minn kross að bera.“ Þetta segir Sigríður Hjálmarsdóttir sem var barnungri nauðgað af skóla- bróður sínum í bakgarði lögreglu- stöðvarinnar á Sauðárkróki. Fjölmörgum árum síðar var henni byrlað ólyfjan og henni nauðgað af tveimur mönnum. „#MeToo-byltingin þrengir ekki bara að ofbeldismönnum heldur líka að okkur sem verðum fyrir þeim,“ segir Sigríður í samtali við Fréttablaðið. „Sögurnar þrýstast upp á yfirborðið og þær eru alls- staðar.“ Innblásin af þessari miklu bylt- ingu vill Sigríður nú skila skömm- inni. – áhg / sjá síðu 6 Sigríður skilar skömminni Þau eru alveg afskaplega ánægð með það að hafa lent í einhverju svona lókal. Viðar Guðmundsson bóndi 1 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E F 1 -5 9 D 0 1 E F 1 -5 8 9 4 1 E F 1 -5 7 5 8 1 E F 1 -5 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.