Fréttablaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 2
Rafvirkjar LED rakaþétt ljós www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is Veður Óveður gekk yfir landið í gær og voru vegir víða lokaðir. Gular og appelsínugular viðvaranir veðurstofu voru í gildi fyrir stóran hluta lands í allan gærdag en í dag er gul viðvörun í gildi fyrir Suðausturland frá og með klukkan 20 og á Austfjörðum frá og með klukkan 22. Vegir voru víða lokaðir og lögregla og björgunarsveitafólk á fullu. Til að mynda voru Hellisheiði, Biskups- tungnabraut, Mosfellsheiði og Öxna- dalsheiði lokaðar, svo fátt eitt sé talið. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafull- trúi Landsbjargar, sagði við Frétta- blaðið í gær að tilfelli hafi komið upp þar sem fólk virti ekki lokanir. Það hafi skapað hættu. Fjöldahjálparmiðstöðvar voru einnig vel sóttar. Í gær voru um fimm- tíu í fjöldahjálparmiðstöð Rauða krossins í Klébergsskóla á Kjalarnesi þegar mest var. „Það var slatti af fólki sem varveðurteppt því allt er búið að vera lokað, það varð úr að við opnuðum þarna,“ sagði Brynhildur Bolladóttir upplýsingafulltrúi Rauða krossins, við Fréttablaðið í gær. Á suðvesturhorni landsins þurfti að loka bæði Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut vegna átta bíla árekstra. Ein þeirra sem sat föst í bíl sínum á Kringlumýrarbraut sagði fólk rólegt þrátt fyrir langa bið og fegið að ekki hafi verið um alvarlegra slys að ræða. – þea Lokanir og árekstrar í óveðrinu Veðrið hefur oft verið betra. Frétta- blaðið/Eyþór Veður Suðlæg átt, 5-13 m/s með éljum á morgun, en bjart norðan og austan til. Kólnar í veðri, frost 2 til 12 stig um kvöldið, kaldast í innsveitum. sjá síðu 16 Skærasta stjarnan Frægðarsól Kim Yo Jong, systur norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong-un, hefur risið hátt og hratt undanfarna daga. Kim er í sendinefnd Norður- Kóreu á Vetrarólympíuleikunum sem nú fara fram í Pyeongchang í Suður-Kóreu. Hefur hún meðal annars fundað með Moon Jae-in, forseta Suður- Kóreu. Hér sjást þau ræða málin á tónleikum með norðurkóresku Samjiyon-sinfóníuhljómsveitinni í þjóðleikhúsi Suður-Kóreu. Nordicphotos/aFp samfélag Drjúgur hluti lands- manna hélt sig innandyra í gær enda lítið hægt að vera á ferðinni sökum veðurs. Það gilti líka um þá tvo kínversku ferðamenn sem Viðar Guðmundsson, bóndi í Mið- húsum í Kollafirði, hefur hýst frá því á laugardaginn. „Við fundum þau hérna þar sem bíllinn þeirra hafði farið út af. Þau voru að bíða eftir dráttarbíl,“ segir Viðar. Ljóst var að mati Viðars að þau væru ekki að fara neitt áfram á bílnum sem þau voru á. Til þess hafi færðin verið allt of þung. Miðhúsamenn brugðu þá á það ráð að bjóða ferðamönnunum heim með sér til að bíða storminn af sér. „Þau eru hér enn. Það er allt ófært,“ segir Viðar en Fréttablaðið náði af honum tali í gærkvöldi. Býst Viðar við því að ferðamenn- irnir komist í burtu í dag enda hvorki færð né ferðaveður í gær. Ekki var boðlegt að ferðamenn- irnir sætu bara og létu sér leiðast. „Þau eru áhugasöm um Ísland og eru búin að koma með okkur í fjárhúsin og hafa fengið að fræðast um eitt og annað tengt landinu. Svo hafa þau fengið í nefið og gert ýmislegt annað sem allir þurfa að gera sem hingað koma,“ segir Viðar. Að sögn Viðars eru ferðamenn- irnir ánægðir með ævintýrið. „Þau eru afskaplega ánægð með að hafa lent í einhverju svona lókal. Hann sagði, maðurinn, að hann hefði komið á sama tíma í fyrra. Þá var ekki snjókorn að sjá,“ segir Viðar. Hann bætir því við að karl- maðurinn kínverski hafi því verið að vonast eftir því, eftir snjólausa síðustu ferð sína, að hann fengi að sjá smá snjó í þetta skiptið. „En núna er hann á því að hann sé búinn að fá að sjá alveg nóg af snjó,“ segir Viðar enn fremur. thorgnyr@frettabladid.is Sýndi tveimur föstum Kínverjum sveitina og gaf þeim síðan í nefið Viðar Guðmundsson í Miðhúsum í Kollafirði fann tvo kínverska ferðamenn sem fest höfðu bíl sinn skammt frá bænum. Hann bauð þeim heim til sín, tók með í fjárhúsin, gaf í nefið og leyfði þeim svo að gista. Ferðamennirnir eru afar ánægðir með ævintýrið og halda áfram för sinni í dag ef veður leyfir. Ferðamennirnir tveir, sáttir við matarborðið. MyNd/Viðar Þau eru áhugasöm um Ísland og eru búin að koma með okkur í fjárhúsin og hafa fengið að fræðast um eitt og annað tengt landinu. Viðar Guðmunds- son bóndi rússland Farþegaflugvél Saratov Airlines hrapaði skammt frá rúss- neska bænum Argunovo, suðaust- ur af Moskvu, í gær með 71 innan- borðs. Talið er að allir hafi farist í slysinu. 65 farþegar voru um borð í vélinni auk sex manna áhafnar. Eitt barn og tveir táningar voru á meðal farþega. Flugvélin hvarf af ratsjám stuttu eftir flugtak en hún var á leiðinni til borgarinnar Orsk í Úralfjöll- um, nærri landamærunum við Kasakstan. Í tísti frá Flightradar24 segir að flughæð vélarinnar hafi lækkað um kílómetra á mínútu einungis fimm mínútum eftir flugtak. Vitni sögðu vélina hafa verið alelda þegar hún hrapaði. Rann- sakendur skoða nú hvort veður, mannleg mistök og tæknibilanir hafi valdið slysinu. Ekki er talið að um hryðjuverk sé að ræða. – þea Hrapaði með 71 innanborðs 1 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E F 1 -5 E C 0 1 E F 1 -5 D 8 4 1 E F 1 -5 C 4 8 1 E F 1 -5 B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.