Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 4
Umboðsaðili Fiat - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.fiat.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
ÁRA5ÁBYRGÐ
400.000 KR. AFSLÁTTUR
INNIFALIÐ
VETRAR- OG SUMARDEKK
ÞJÓNUSTUSKOÐUN* Í 2 ÁR
STAÐALBÚNAÐUR:
Loftkæling, snertiskjár, 15” álfelgur, bluetooth,
aksturstölva, bakkskynjarar ofl.
FIAT 500 POP
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.990.000 KR.
VERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
SÉRTILBOÐ Á FIAT 500
*M
ið
as
t v
ið
h
ám
ar
ks
ak
st
ur
1
5.
00
0
km
á
á
ri.
T
ak
m
ar
ka
ð
m
ag
n
bí
la
í
bo
ði
. B
íll
á
m
yn
d
í L
ou
ng
e
út
fæ
rs
lu
.
LögregLumáL Tollgæsla lagði hald
á eitt kíló af kókaíni eftir að efnið
fannst við eftirlit föstudaginn 2.
febrúar síðastliðinn. Í framhald-
inu voru þrír menn handteknir og
færðir í gæsluvarðhald. Þetta stað-
festir Margeir Sveinsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, í samtali við
Fréttablaðið.
Mennirnir þrír sem um ræðir eru
íslenskir ríkisborgarar. Þeir hafa
verið í gæsluvarðhaldi í rúma viku,
eða allt frá því helgina eftir að
efnið fannst. Þeir munu sitja
áfram í gæsluvarðhaldi í
eina viku til viðbótar.
Lögregla vill ekki tjá sig
að öðru leyti um málið
eða um hvernig efnið var
flutt inn. Málið sé nú í rann-
sókn.
Samkvæmt mælingum SÁÁ er
götuverð á grammi af kókaíni um
sextán þúsund krón-
ur. Má því reikna
með að heildarvirði
hins innflutta kóka-
íns, sem lagt var hald
á, væri um sextán
milljónir króna ef
efninu væri komið í
verð. – þea
Þrír í gæsluvarðhaldi eftir kókaínsmygl
Mennirnir þrír hafa verið í gæsluvarðhaldi í viku. Fréttablaðið/Eyþór
mjanmar Yfirvöld í Mjanmar ætla
að refsa sjö hermönnum, þremur
lögreglumönnun og sex almennum
borgurum sem voru viðriðnir dráp
á Róhingjum í Rakhine-héraði. Frá
þessu greindi Zaw Htay, talsmaður
ríkisstjórnarinnar, í gær en sagði
ákvörðunina ótengda umfjöllun
Reuters um málið.
Reuters greindi fyrir helgi frá því
þegar tíu Róhingjar voru teknir af
lífi án dóms og laga í smábænum
Inn Din. Sagði Htay þá við miðilinn
að gripið yrði til aðgerða ef umfjöll-
unin reyndist á rökum reist.
„Þetta er ekki út af frétt Reuters.
Rannsóknin var vel á veg komin
áður en fréttin birtist,“ sagði Htay
í gær. Hann greindi þó ekki frá því
hvað fælist í refsingunni.
Í frétt Reuters í gær kom fram
að þann 10. janúar hafi herinn
sagt Róhingjana tíu hafa tilheyrt
200 manna hryðjuverkasellu sem
ráðist hefði á hermenn. Hins vegar
stangist sú frásögn á við vitnisburð
almennra borgara í Rakhine sem
voru vitni að morðunum.
Nærri 700.000 Róhingjar hafa
flúið Rakhine-hérað frá því í ágúst
og farið til Bangladess. Samkomu-
lag hefur náðst um að senda flótta-
mennina til baka á árinu. Aðgerðir
hersins í Rakhine hafa ýmist verið
kallaðar þjóðernishreinsanir eða
þjóðarmorð. – þea
Hyggjast refsa sextán
fyrir Róhingjamorð
róhingjar á flótta. Fréttablaðið/EPa
Landbúnaður Ákvörðun land-
búnaðarráðuneytisins um að leggja
niður varnarlínu vegna sauðfjár-
sjúkdóma sem dregin hefur verið
um Blöndu er harðlega gagnrýnd af
landbúnaðarráði Húnaþings vestra.
„Það eru undarleg vinnubrögð
að gengið hafi verið gegn tillögum
starfshóps sem var skipaður af ráðu-
neytinu sjálfu,“ segir ráðið. „Ekki
hefur komið upp riða í Húnahólfi
síðan 2007. Í Skagahólfi kom riða
upp síðast 2016. Þarna munar nærri
tíu árum og verður að teljast óeðli-
legt að slíkt kallist sama sjúkdóma-
staða.“ Ráðið bendir á starfshópur-
inn hafi lagt til að Blöndulína yrði
áfram varnarlína. – gar
Húnaþing vildi halda varnarlínu
aLÞIngI Samtök atvinnulífsins (SA)
telja gert ráð fyrir of litlum rekstaraf-
gangi í nýrri fjármálastefnu sem
liggur fyrir á Alþingi. Að auki setja
samtökin út á hve löngu hagvaxtar-
skeiði er búist við í stefnunni og að
ekki séu dregnar upp aðrar mögu-
legar sviðsmyndir. Þetta er meðal
þess sem segir í umsögn SA um fjár-
málastefnu ríkisstjórnarinnar.
„Þetta er þriðja fjármálastefnan
á jafnmörgum árum. Í raun er ekki
mikil breyting frá fyrri stefnum en
það sem einkennir þær allar er að
gengið er út frá þeirri forsendu að
hér verði eitt lengsta hagvaxtarskeiði
sem við höfum upplifað í áratugi. “
segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs SA.
Í stefnunni er gert ráð fyrir því að
hagvöxtur haldi áfram til ársins 2022
en það myndi þýða að hagvaxtar-
tímabilið nú teygði sig yfir ellefu ár.
Almennt þá hafa hagvaxtarskeið á
Íslandi varað í sex til sjö ár.
Undanfarnar vikur hefur hag-
kerfið sýnt viss merki þess að hjól
hagkerfisins snúist aðeins hægar
en áður. Hækkandi launakostn-
aður hefur haft áhrif hjá mörgum
fyrirtækjum og spár nú gera ráð fyrir
minni hagvexti en undanfarin ár.
„Það eru vísbendingar um að hér
sé að hægja mjög hratt á hagkerfinu.
Sé hagvöxturinn settur í samhengi
við hinn agnarsmáa afgang sem gert
er ráð fyrir þá má lítið út af bregða
áður en við erum í hallarekstri.“
Í umsögn SA eru settar fram sviðs-
myndir sem sýna afkomu ríkis-
sjóðs með tilliti til mismunandi
hagvaxtarforsendna. Verði hann til
að mynda prósentustigi minni en
stefnan gerir ráð fyrir má áætla að
afgangur verði helmingi minni.
„Það er mikilvægt að aðhalds
sé gætt á tímum uppgangs. Það er
óábyrg stefna að búa ekki betur í
haginn því það mun margborga sig
þegar harðnar á dalnum. Fjármála-
stefnan nú gerir meira að segja ráð
fyrir minni afgangi en sú fyrri sem er
gagnrýnivert,“ segir Ásdís.
Hún segir einnig gagnrýnivert
hversu lítil áhersla sé lögð á að draga
úr umsvifum hins opinbera þó þau
séu ein þau mestu meðal OECD.
Ísland sé háskattaríki og stjórnvöld
verði að skapa svigrúm til að lækka
skatta.
„Aukin útgjöld eru ekki ávísun á
betri þjónustu. Það skiptir auðvitað
máli hvernig er farið með skattfé
landsmanna. Illa nýtt skattfé er ekk-
ert annað en sóun á fjármagni og
miður að sjá stjórnmálamenn kalla
sífellt eftir auknum útgjöldum en
gleyma eftirfylgninni. Það er eitt af
því sem við köllum eftir í væntan-
legri fjármálaáætlun,“ segir Ásdís.
Þá setur SA út á útfærslu á reglum
um opinber fjármál. Telja þau gagn-
rýnivert að afkomureglan sem
stjórnvöld horfa til leiðrétti ekki
fyrir hagsveiflunni. „Í núverandi
mynd tryggir afkomureglan ekki það
aðhald sem þarf á tímum uppgangs,“
segir Ásdís. joli@frettabladid.is
Óábyrgt að búast við
lengsta hagvaxtartíma
Að mati SA þarf að tryggja þarf aukinn afgang ríkissjóðs á meðan gott er í ári til
að skapa svigrúm þegar halla fer undan fæti. Vísbendingar séu um að það sé að
hægjast á hagkerfinu. Lítið þurfi út af að bregða til að afgangurinn verði minni.
þrjár fjármálaáætlanir hafa verið lagðar fyrir þingið á jafnmörgum árum. Sam-
tök atvinnulífsins telja margt athugavert í þeirri nýjustu. Fréttablaðið/ErNir
Ásdís Kristjáns-
dóttir, forstöðu-
maður efnahags-
sviðs Sa.
1 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 m á n u d a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
F
1
-7
2
8
0
1
E
F
1
-7
1
4
4
1
E
F
1
-7
0
0
8
1
E
F
1
-6
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K