Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 6
Tryggingastofnun
Laugavegi 114 | 105 Reykjavík
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is
P
IPA
R\TB
W
A
- SÍA
60+ í BSRB-salnum, Grettisgötu 89miðvikudaginn 14. febrúar kl. 15.00.Farið verður yfir lög um almannatryggingarm.a. tekjutengingar og frítekjumörk.Skráning á tr.is.
Fræðslufundur
um rétt til ellilífeyris
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri var fyrir viku í Héraðsdómi
Norðurlands eystra dæmdur í átta
mánaða fangelsi fyrir manndráp af
gáleysi. Sex mánuðir refsingarinnar
eru bundnir almennu skilorði til
tveggja ára.
Maðurinn ók ónothæfri bifreið
ökuréttindalaus á ofsahraða, allt að
162 km/klst., á Öxnadalsheiði í júní
2016. Við tilraun til framúraksturs
ók hann aftan á aðra bifreið sem
kastaðist í veg fyrir rútu sem kom
úr gagnstæðri átt. Ökumaður bif-
reiðarinnar sem ekið var aftan á lést
nær samstundis og farþegi í rútunni
slasaðist.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar
samgönguslysa (RNSA) um slysið
var kallað eftir því að skipaður yrði
starfshópur sem myndi gera tillögur
um breytingar á lagaumhverfi sem
snýr að áfengis- og/eða vímuakstri.
Sú tillaga er ítrekun úr skýrslu
nefndarinnar vegna banaslyss sem
varð árið 2012 í Hrútafirði.
Hinn sakfelldi kom fyrir dóm og
játaði sök. Hann á að baki langan
sakaferil og hefur frá árinu 2013
ítrekað verið sektaður fyrir vímu-
efnaakstur og sviptur ökurétti af
sömu sökum. Auk refsingarinnar
var hann sviptur ökuréttindum
frá og með 1. september 2019 í eitt
ár en þann 31. ágúst 2019 rennur
núverandi ökuréttindasvipting
hans sitt skeið.
Þá var maðurinn dæmdur til að
greiða laun og útlagðan kostnað
verjanda síns, tæplega 1,3 milljónir
króna. Annar kostnaður sem hlaust
af umfangsmikilli rannsókn máls-
ins greiðist hins vegar úr ríkissjóði.
Athygli vekur að málið var dóm-
tekið 3. nóvember á síðasta ári og
játaði maðurinn sök strax. Dómur
var hins vegar ekki kveðinn upp
fyrr en 5. febrúar síðastliðinn. Í
dómsorði er þess ekki getið hví
dómsuppsaga dróst með þessum
hætti. – jóe
Átta mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi á Öxnadalsheiði
Maðurinn var ekki með
ökuréttindi, ók ónothæfri
bifreið, og varð valdur að
dauða annars ökumanns.
SAMFÉLAG Máttur #meetoo bylt-
ingarinnar er mikill. Fjöldi þol-
enda ofbeldis hafa stigið fram og
sagt sögur sínar. Sigríður Hjálm-
arsdóttir er ein þeirra fjölmörgu
kvenna sem hafa þolað kynferðis-
ofbeldi og það oftar en einu sinni.
Barnungri var henni nauðgað af
skólabróður sínum í bakgarði lög-
reglustöðvarinnar á Sauðárkróki.
Fjölmörgum árum síðar, þá fullorð-
in kona var henni byrluð ólyfjan og
henni nauðgað af tveimur mönn-
um. Sigríður tók ákvörðun um
að segja frá reynslu sinni og birti
frásögnina á Facebook síðu sinni.
Viðbrögðin hafa verið gífurleg og
komu henni virkilega á óvart.
„Fyrst þegar #metoo sögurnar
voru að koma fram þá fann ég
fyrir óþoli. Sögurnar rótuðu í mér
og ýfðu upp gamlar minningar,
vondar minningar. #metoo bylt-
ingin þrengir ekki bara að ofbeld-
ismönnunum heldur líka að okkur
sem verðum fyrir þeim. Sögurnar
þrýstast upp á yfirborðið og þær
eru alls staðar. Í öllum fjölmiðlum,
á kaffistofum og víðar svo engin
leið er að komast hjá þeim. Ég skrif-
aði þennan texta um miðjan janúar
en birti hann síðastliðinn föstudag.
Maðurinn minn las þetta yfir og
sagði að þó að ég hefði sagt honum
frá þessu þá hafi hann í gegnum
textann enn frekar upplifað hversu
mikið ofbeldi þetta hefði verið.“
Viðbrögðin við sögunum urðu
önnur og meiri en Sigríður gerði sér
í hugarlund. „Þegar ég setti þetta
fram þá hugsaði ég: „Hvað er ég nú
búin að gera? Hugsar fólk kannski
bara með sér; hvað er hún að vilja
upp á dekk? En það er ekki það sem
gerðist. Ég hef fengið fullt af sím-
tölum og skilaboðum, ég hélt að
kannski myndi ég bara fá eitt læk
en það var aldeilis ekki. Ég hef verið
í hálfgerðri geðshræringu síðan og
er svo þakklát fyrir viðbrögðin
og stuðninginn. Fjölskyldan mín
og maðurinn minn eru á bak við
mig alla leið. Þessi bylting skiptir
máli og allir þeir sem „skemmta
sér“ kannski bara í tíu mínútur á
þennan hátt, á kostnað annarrar
manneskju, gera sér kannski ekki
grein fyrir ævilöngum hryllilegum
afleiðingum sem þetta hefur á
líf þeirra sem fyrir verða. Ég á oft
erfitt með að fara norður á Krók-
inn því þar eru margar minningar
sem hellast yfir. Ég er hætt að bera
ábyrgð á þessu ofbeldi svo ég ákvað
að henda því bara frá mér. Þetta er
ekki minn kross að bera.“
Frásögn Sigríðar má lesa í heild
sinni á vef Fréttablaðsins www.
frettabladid.is
asta@frettabladid.is
Var nauðgað af skólabróður
sínum bakvið lögreglustöðina
Sigríður Hjálmarsdóttir rifjar upp sára reynslu þar sem að hún segir frá hræðilegum nauðgunum sem hún
varð tvívegis fyrir. Sækir innblástur í #metoo-byltinguna. „Þessi bylting skiptir máli,“ segir Sigríður sem vill
skila skömminni. „Ég er hætt að bera ábyrgð á þessu ofbeldi. Þetta er ekki minn kross að bera.“
Sigríður Hjálmarsdóttir stígur fram og vill skila skömminni. Hún hefur fengið mikil viðbrögð. Fréttablaðið/Eyþór
MenntAMÁL Menntamálaráðherrar
Íslands og Suður-Kóreu ákváðu á
fundi í Seúl í gær að hefja samstarf
á milli ráðuneytanna „með það að
leiðarljósi að efla menntun, rann-
sóknir og þróun“. Lýstu ráðherrarnir
jafnframt yfir vilja til að auka sam-
starf um skiptinám enn frekar.
„Stjórnvöld leggja mikla áherslu
á samkeppnishæft starfsumhverfi
fyrir kennara. Að auki er mikil
símenntun hjá kennurum sem tekur
mið af þeim hröðu tæknibreyting-
um sem eru að eiga sér stað,“ sagði
Kim Sang-Kon, menntamálaráð-
herra Suður-Kóreu, á fundinum.
„Það er mikilvægt að styrkja alla
umgjörð í kringum kennarastarfið
og fara í markvissar aðgerðir til
að takast á við þann mikla kenn-
araskort sem blasir við að öðru
óbreyttu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra. – þea
Samstarf við
Suður-Kóreu
SVÍÞJÓÐ Koma á upp sjálfvirku
eftirliti við landamæri Svíþjóðar
til að stöðva þjófagengi sem koma
til landsins. Þetta er meðal þeirra
aðgerða sem Morgan Johansson
dómsmálaráðherra hefur kynnt.
Flest gengin eru með bæki-
stöðvar í Litháen, Rúmeníu og Pól-
landi. Vitað sé að þau herji einkum
í Þýskalandi, Bretlandi og í Svíþjóð.
Lágmarksrefsing fyrir stuld á að
vera eins árs fangelsi í stað sex mán-
aða fangelsis eins og nú. Það hefur í
för með sér að auðveldara verður að
vísa dæmdum úr landi. Lagt er til að
fleiri dæmdir verði látnir afplána í
heimalöndum sínum. - ibs
Stöðva á þjófana
við landamærin
lilja
alfreðsdóttir.
Þetta er ekki minn
kross að bera.
Sigríður Hjálmarsdóttir
1 2 . F e b r ú A r 2 0 1 8 M Á n U D A G U r6 F r É t t i r ∙ F r É t t A b L A Ð i Ð
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
F
1
-8
6
4
0
1
E
F
1
-8
5
0
4
1
E
F
1
-8
3
C
8
1
E
F
1
-8
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K