Fréttablaðið - 12.02.2018, Page 9

Fréttablaðið - 12.02.2018, Page 9
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Alvöru atvinnubíll Dacia Dokker Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl. Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri. Verð: 2.340.000 kr. m. vsk. Verð án vsk.: 1.887.000 kr. * V ið m ið un ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri . / B ún að ur b íls á m yn d ka nn a ð ve ra fr áb ru gð in a ug lý st u ve rð i E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 6 8 D a c ia D o k k e r 5 x 2 0 a lm e n n f e b Árið 2011 var ég fundarstjóri á ráð-stefnunni „Hjólum til framtíðar“. Af því tilefni setti ég fram litla áskorun. Ég lofaði verðlaunum, rauð- vínsflösku að því er mig minnir, handa hverjum þeim íslenska kvikmynda- gerðarmanni sem myndi sýna persónu í kvikmynd eða sjónvarpsþætti í strætó, í öðrum tilgangi en þeim að undirstrika mikið harma- og hnignunarskeið sem persónan væri að ganga í gegnum. Ætli ég hafi ekki verið undir áhrifum hinna annars prýðilega skemmtilegu þátta um Hlemma vídeó, þegar ég sagði þetta. Í þeim þáttum tekur aðalsögu- hetjan, leikin af Pétri Jóhanni, strætó í fyrsta þættinum og er í skítnum en nær svo fljótlega að verða sér úti um einhverja þrjátíu ára bíldruslu. Það er þá væntan- lega til marks um það að söguhetjan hafi náð örlítilli viðspyrnu frá botninum. Svona eru dæmin vafalaust fleiri. Eng- inn badass íslenskrar kvikmyndasögu hefur nokkurn tímann slúttað samtali með: „Má ekki vera að þessu! Ásinn er að fara!“ Enginn söguþráður spennumyndar hefur snúist um það að skiptimiðinn væri að renna út. Eða að fjarkinn væri seinn og þristurinn í Mjóddinni gæti ekki beðið lengur. Enginn gamanþáttur hefur geng- ið út á hóp ungmenna sem taka saman fimmuna úr Árbænum á hverjum morgni. Strætó hefur oftast táknað persónulega eymd. Ég held hins vegar að ég verði að fara að greiða út rauðvínsflöskuna til handrits- höfunda þáttanna um Stellu Blómkvist. Stella nefnilega tekur strætó, ekki bara og ekki alltaf, en þegar hún er látin gera það virðist það ekki einungis vera til þess að benda á að hún sé fátæk, geðsjúk eða búin að missa prófið. Kannski er þetta ekki enn orðið töffaraeinkenni í sjálfu sér, kannski er þetta frekar hluti af þeirri per- sónusköpun Stellu að gera hana flippaða og öðruvísi. En ég þigg alltaf „flippað og öðruvísi“ fram yfir „á rosa bágt“. Ég skal játa það – ég held varla vatni yfir Stellu Blómkvist þáttunum. Heiðu Reed tekst að koma krefjandi hlutverki Stellu frábærlega til skila. Já, ég segi krefjandi vegna þess að Stella er í grunninn svona týpupersóna sem búið er að hlaða á ýmsum tiltölulega klisjukenndum per- sónueinkennum (hún er reykjandi töff- ara-dóna-lögfræðingur) og útkoman hefði mjög auðveldlega getað orðið full- komlega einvíð. En stærsta afrek þeirra sem að þáttunum standa er einmitt að þeim hefur tekist að gera persónuna og sögusviðið trúverðugt. Fljótt á litið kann það að virka ansi mikið rugl að halda því fram að sögu- sviðið sé trúverðugt. Þættirnir gerast á Íslandi þar sem krónan hefur vikið fyrir dollaranum og Kínverjar hafa gríðarleg ítök, hafa eignast stóran hluta Norð- austurlands, Hamraborgin er Kínahverfi og gamla seðlabankabyggingin er komin með nýtt hlutverk: Þar er starfrækt ítur- vaxið kínverskt sendiráð. Án þess að maður opinberi of mikið um efni þáttanna þá eru kínversk ítök og afskipti ákveðið þema. Þegar maður horfir á þáttinn með íslenskum gler- augum þá getur margt af þessu kannski virkað fremur asnalegt. En við getum leyft okkur að hugsa: hvernig væri það ef menn myndu dag einn hringja í íslensku lögregluna en einhver önnur lögregla en íslensk myndi mæta á staðinn? Eða að sú íslenska myndi mæta en myndi í reynd lúta erlendu boðvaldi? Þrátt fyrir að það kunni að hljóma fáránlega eru þættirnir um Stellu Blóm- kvist tiltölulega trúverðugur pólitískur vísindaskáldskapur. Sem betur fer hafa fáir Íslendingar upplifað það að búa í leppríki. En þættirnir koma því ástandi ágætlega til skila: Hið erlenda ríkisvald er ekki endilega alltumlykjandi eða með fingurna í öllu. En stundum mætir það á svæðið og trompar hið innlenda. Lætur fólk hverfa, kemur í veg fyrir að hlutir séu sagðir sem því eru ekki þóknanlegir. Lokar af svæðum fyrir sjálft sig og hleypir innlenda ríkisvaldinu ekki inn. Lætur breyta lögum í eigin þágu og kemur fyrir útsendurum á mikilvægum stöðum. Ekki veit ég hvort Stellu Blómkvist verði minnst sem tímamótaverks í íslenskri kvikmyndagerð en hún á það skilið. Fólk tók fremur djúpsteikt hrá- efni en gerði aldrei grín að því heldur tók það alvarlega. Fullveldispælingarnar eru skemmtilegar án þess að vera predikandi. Já, og síðast en ekki síst: Stella á skilið þakkir fyrir hafa loksins gert strætó kúl. Húrra fyrir Strætó-Stellu Í dag Pawel Bartoszek Stella á skilið þakkir fyrir hafa loksins gert strætó kúl. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 2 . F e B R ú a R 2 0 1 8 1 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E F 1 -7 2 8 0 1 E F 1 -7 1 4 4 1 E F 1 -7 0 0 8 1 E F 1 -6 E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.