Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 9
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Alvöru atvinnubíll
Dacia Dokker
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl.
Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia
bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
Verð: 2.340.000 kr. m. vsk.
Verð án vsk.:
1.887.000 kr.
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
. /
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
ka
nn
a
ð
ve
ra
fr
áb
ru
gð
in
a
ug
lý
st
u
ve
rð
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
6
8
D
a
c
ia
D
o
k
k
e
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
Árið 2011 var ég fundarstjóri á ráð-stefnunni „Hjólum til framtíðar“. Af því tilefni setti ég fram litla
áskorun. Ég lofaði verðlaunum, rauð-
vínsflösku að því er mig minnir, handa
hverjum þeim íslenska kvikmynda-
gerðarmanni sem myndi sýna persónu
í kvikmynd eða sjónvarpsþætti í strætó,
í öðrum tilgangi en þeim að undirstrika
mikið harma- og hnignunarskeið sem
persónan væri að ganga í gegnum.
Ætli ég hafi ekki verið undir áhrifum
hinna annars prýðilega skemmtilegu
þátta um Hlemma vídeó, þegar ég sagði
þetta. Í þeim þáttum tekur aðalsögu-
hetjan, leikin af Pétri Jóhanni, strætó í
fyrsta þættinum og er í skítnum en nær
svo fljótlega að verða sér úti um einhverja
þrjátíu ára bíldruslu. Það er þá væntan-
lega til marks um það að söguhetjan hafi
náð örlítilli viðspyrnu frá botninum.
Svona eru dæmin vafalaust fleiri. Eng-
inn badass íslenskrar kvikmyndasögu
hefur nokkurn tímann slúttað samtali
með: „Má ekki vera að þessu! Ásinn er að
fara!“ Enginn söguþráður spennumyndar
hefur snúist um það að skiptimiðinn væri
að renna út. Eða að fjarkinn væri seinn og
þristurinn í Mjóddinni gæti ekki beðið
lengur. Enginn gamanþáttur hefur geng-
ið út á hóp ungmenna sem taka saman
fimmuna úr Árbænum á hverjum morgni.
Strætó hefur oftast táknað persónulega
eymd.
Ég held hins vegar að ég verði að fara að
greiða út rauðvínsflöskuna til handrits-
höfunda þáttanna um Stellu Blómkvist.
Stella nefnilega tekur strætó, ekki bara
og ekki alltaf, en þegar hún er látin gera
það virðist það ekki einungis vera til þess
að benda á að hún sé fátæk, geðsjúk eða
búin að missa prófið. Kannski er þetta
ekki enn orðið töffaraeinkenni í sjálfu sér,
kannski er þetta frekar hluti af þeirri per-
sónusköpun Stellu að gera hana flippaða
og öðruvísi. En ég þigg alltaf „flippað og
öðruvísi“ fram yfir „á rosa bágt“.
Ég skal játa það – ég held varla vatni yfir
Stellu Blómkvist þáttunum. Heiðu Reed
tekst að koma krefjandi hlutverki Stellu
frábærlega til skila. Já, ég segi krefjandi
vegna þess að Stella er í grunninn svona
týpupersóna sem búið er að hlaða á
ýmsum tiltölulega klisjukenndum per-
sónueinkennum (hún er reykjandi töff-
ara-dóna-lögfræðingur) og útkoman
hefði mjög auðveldlega getað orðið full-
komlega einvíð. En stærsta afrek þeirra
sem að þáttunum standa er einmitt að
þeim hefur tekist að gera persónuna og
sögusviðið trúverðugt.
Fljótt á litið kann það að virka ansi
mikið rugl að halda því fram að sögu-
sviðið sé trúverðugt. Þættirnir gerast á
Íslandi þar sem krónan hefur vikið fyrir
dollaranum og Kínverjar hafa gríðarleg
ítök, hafa eignast stóran hluta Norð-
austurlands, Hamraborgin er Kínahverfi
og gamla seðlabankabyggingin er komin
með nýtt hlutverk: Þar er starfrækt ítur-
vaxið kínverskt sendiráð.
Án þess að maður opinberi of mikið
um efni þáttanna þá eru kínversk ítök
og afskipti ákveðið þema. Þegar maður
horfir á þáttinn með íslenskum gler-
augum þá getur margt af þessu kannski
virkað fremur asnalegt. En við getum
leyft okkur að hugsa: hvernig væri það ef
menn myndu dag einn hringja í íslensku
lögregluna en einhver önnur lögregla en
íslensk myndi mæta á staðinn? Eða að sú
íslenska myndi mæta en myndi í reynd
lúta erlendu boðvaldi?
Þrátt fyrir að það kunni að hljóma
fáránlega eru þættirnir um Stellu Blóm-
kvist tiltölulega trúverðugur pólitískur
vísindaskáldskapur. Sem betur fer hafa
fáir Íslendingar upplifað það að búa í
leppríki. En þættirnir koma því ástandi
ágætlega til skila: Hið erlenda ríkisvald
er ekki endilega alltumlykjandi eða með
fingurna í öllu. En stundum mætir það á
svæðið og trompar hið innlenda. Lætur
fólk hverfa, kemur í veg fyrir að hlutir
séu sagðir sem því eru ekki þóknanlegir.
Lokar af svæðum fyrir sjálft sig og hleypir
innlenda ríkisvaldinu ekki inn. Lætur
breyta lögum í eigin þágu og kemur fyrir
útsendurum á mikilvægum stöðum.
Ekki veit ég hvort Stellu Blómkvist
verði minnst sem tímamótaverks í
íslenskri kvikmyndagerð en hún á það
skilið. Fólk tók fremur djúpsteikt hrá-
efni en gerði aldrei grín að því heldur tók
það alvarlega. Fullveldispælingarnar eru
skemmtilegar án þess að vera predikandi.
Já, og síðast en ekki síst: Stella á skilið
þakkir fyrir hafa loksins gert strætó kúl.
Húrra fyrir Strætó-Stellu
Í dag
Pawel
Bartoszek
Stella á skilið
þakkir fyrir
hafa loksins
gert strætó
kúl.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 2 . F e B R ú a R 2 0 1 8
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
F
1
-7
2
8
0
1
E
F
1
-7
1
4
4
1
E
F
1
-7
0
0
8
1
E
F
1
-6
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K