Fréttablaðið - 12.02.2018, Síða 16
Maðurinn minn hefur verið virkur í götuhjólreiðum undanfarin ár og fylgdist
með Rynkeby verkefninu á síðasta
ári. Sú hugmynd kviknaði í haust
hvort við sæktum ekki um að
komast í liðið á næsta ári og eftir
stutta umhugsun ákváðum við
að slá til. Við vorum svo heppin
að vera tvö af þeim 40 sem valin
voru í liðið og erum nú á fullu að
undirbúa okkur. Þetta er heilmikil
líkamleg áskorun, um 1.300 km
leið sem hjóluð er á átta dögum.
Ég er ekki orðin 100% viss hvort ég
geti hjólað alla þessa leið en það er
í það minnsta frábært að geta lagt
góðu málefni lið,” segir Jónína.
Samnorrænt góðgerðastarf
Team Rynkeby er samnorrænt
góðgerðarstarf sem hófst árið
2002 þegar 11 hjólreiðamenn
sem tengdust Rynkeby Foods í
Danmörku ákváðu að hjóla til Par-
ísar til að sjá lok Tour de France.
„Rynke by Foods styrkti þá til farar-
innar en þegar heim var komið
áttu hjólreiðamennirnir eftir
dágóða summu sem þeir ánöfnuðu
deild krabbameinssjúkra barna við
háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum.
Árið eftir var leikurinn endur-
tekinn og síðan þá hefur umfangið
aukist jafnt og þétt frá ári til árs
og hafa um tvö þúsund manns í
Við erum löngu
byrjuð að safna
styrkjum og höfum
fengið frábærar viðtökur.
Mörg fyrirtæki hafa
þegar lagt okkur lið og
önnur eru alveg að detta í
hús.
Jónína Bjarnadóttir
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ánægðir þátttakendur. MYND/THOMAS NÖRREMARK.
Í ár hafa um
2.000 manns
skráð sig til
leiks. MYND/THO-
MAS NÖRREMARK.
Jónína æfir hjólreiðar af kappi fyrir verkefni sumarsins. MYND/ANTON BRINK
Hjólar
til góðs
44 liðum skráð sig til leiks í ár. Í
fyrra, þegar Ísland tók þátt í fyrsta
sinn, söfnuðust í heildina yfir 1,1
milljarður íslenskra króna,“ greinir
Jónína frá.
Hjóla innandyra og stunda
CrossFit
Þau hjónin hafa æft hjólreiðar af
kappi í allan vetur til að undirbúa
sig sem best fyrir áskorun sum-
arsins. „Við hjólum innandyra að
minnsta kosti þrisvar í viku og
höfum komið upp góðri aðstöðu
til þess í bílskúrnum okkar. Sam-
hliða tökum við æfingar í Cross-
Fit Sport til að fá aukinn alhliða
styrk,“ segir hún.
Jónína og Leifur Geir Haf-
steinsson, maður hennar, eru ekki
ókunnug CrossFit Sport því þau
Jónína Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri Gáska
Sjúkraþjálfunar, ætlar að
hjóla ásamt Team Rynkeby
Ísland frá Kaupmannahöfn
til Parísar í sumar til styrktar
Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna. Hún segir
áskorunina ekki síður and-
lega en líkamlega.
stofnuðu fyrirtækið á sínum tíma,
hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi
og ráku í mörg ár. „Við höfum samt
aldrei gert neitt í líkingu við þetta.
Verkefnið reynir ekki aðeins á
líkamann heldur reynir einnig á
andlegu hliðina. Ég þarf að vinna
sérstaklega í þessari fimmtán senti-
metra vegalengd á milli eyrnanna á
mér, sem er kannski mikilvægasta
vegalengdin í þessu öllu,“ segir
Jónína hlæjandi
Hvað er fram undan?
„Um leið og veður leyfir ætlar
hópurinn aftur að fara að hjóla
saman úti. Planið er að hjóla 100
km daginn sem ég verð 48 ára.
Síðan tröppum við okkur smám
saman upp í allt að 200 km dag-
leiðir,“ segir Jónína en áætlað er
að það taki átta daga að hjóla frá
Kaupmannahöfn til Parísar. „Öll
liðin hjóla af stað á svipuðum tíma
en hvert lið fyrir sig planar sína
leið. Svo hittum við öll hin liðin
undir Eiffel turninum í París, gul
og glöð,“ segir Jónína og bætir við
að það sé einstaklega hvetjandi að
vera hluti af liðsheild sem vinni
saman að göfugu markmiði.
„Við erum löngu byrjuð að safna
styrkjum og höfum fengið frábærar
viðtökur. Mörg fyrirtæki hafa
þegar lagt okkur lið og önnur eru
alveg að detta í hús. Öll framlög,
hver einasta króna, renna beint til
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna og við vonumst auðvitað
til að safna sem allra mestu,“ segir
Jónína að lokum.
Þú getur stutt söfnun Team
Rynkeby með því að leggja inn á
reikning 0301-26-3367, kennitala
630591-1129, vinsamlega skrifið í
tilvísun „Styrkur“. Enginn kostn-
aður er af millifærslunni og því fer
allt framlag þitt til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum á Íslandi.
FERMINGARBLAÐIÐ
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um fermingar kemur út 27. febrúar nk.
Allt sem viðkemur fermingunni og miklu miklu meira.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . F E B R úA R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
F
1
-7
C
6
0
1
E
F
1
-7
B
2
4
1
E
F
1
-7
9
E
8
1
E
F
1
-7
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K