Fréttablaðið - 12.02.2018, Qupperneq 34
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Fiskbollur
eru herramanns-
matur og fínasta
leið til að brjóta
upp fiskneysluna.
Fiskbollur geta verið góður veislu- eða pinnamatur. Kjötbollurnar eru afbragð með spaghetti og góðri tómatsósu.
Talið er að bolludagurinn eigi uppruna sinn í þeirri hefð að undirbúa líkamann
fyrir lönguföstu með því að borða
aðeins brauðmeti og bollur. Í
dönskum heimildum frá því um
1700 er talað um hveitibollur sem
muldar eru og hrærðar með mjólk
og smjöri og borðaðar í föstuinn-
gang og má ætla að nafn dagsins
eigi upphaf sitt í þeirri hefð. Á
bolludag tíðkast einnig að börn
flengi foreldra sína
og fái að launum
bollur, eina
fyrir hvert
högg. Þar
sem margir
foreldrar vilja
síður dæla
mörgum
stórum rjóma-
bollum í börnin
sín er góð lausn
að útbúa gómsætar
matbollur í kvöldmatinn á
bolludag. þar sem allir geta borðað
að vild. Hér eru tvær matbollu-
uppskriftir sem gleðja alla munna,
bæði stóra og smáa. .
Langbestu fiskbollurnar
400 g ýsuhakk
2 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 tsk. karrý
1 tsk. aromat eftir smekk
Einn laukur, smátt saxaður eða
grófhakkaður
Eitt egg
2 msk. kartöflumjöl
3-4 msk. hveiti
2-3 dl mjólk
Setjið öll innihaldsefnin í skál,
egg og mjólk síðast. Stundum þarf
meira hveiti og
stundum meiri mjólk. Mótið
með teskeið eða matskeið eftir
því hvað bollurnar eiga að vera
stórar. Steikið í smjöri og olíu til
helminga, best að feitin fljóti upp
með hliðum bollanna á pönnunni.
Bollurnar má frysta.
Ef búa á til smábollur fyrir sam-
kvæmi þá er uppskriftin gjarnan
höfð fjórföld sem gefur 250 -300
litlar pinnabollur. Þá má vigta 120
g kartöflumjöl og um 220 g hveiti.
Hitt mælt í skeiðum. Gott er að
bera tannstöngla, remúlaði eða
pítusósu fram með bollunum.
Langbestu kjötbollurnar
500 g hakk (nauta- helst en má
alveg blanda með svína- eða
lambahakki)
2 egg
1/2 pakki Tuc Bacon kex
Myljið kexið í mylsnu og
blandið saman við hakk og
egg þangað til komið er deig.
Mótið litlar bollur og setjið
á bökunarpappír á ofnplötu.
Bakið í 150-180 °C heitum ofni
í 15-20 mínútur. Berið fram
með tómatsósu og spagettíi
eða bætið út í eftirlætis pasta-
sósuna ykkar. Kjötbollurnar eru
einnig góðar sem samkvæmis-
veitingar og þá eru þær bornar
fram með tannstönglum og sósu úr
tómatsósu, sætri chilisósu og smá
sojasósu sem best er að blanda
eftir smekk og smakka til.
Kringlótt í kvöldmatinn
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Á bolludag tíðkast hjá flestum að borða sætar bollur með
rjóma með kaffinu eða í eftirrétt en sumir ganga lengra
og vilja að allur matur sem neytt er þennan dag sé hring-
lóttur. Kjötbollur og fiskbollur verða þá oftast fyrir valinu.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . F E B R úA R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
F
1
-7
7
7
0
1
E
F
1
-7
6
3
4
1
E
F
1
-7
4
F
8
1
E
F
1
-7
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K