Fréttablaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 38
1 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 M Á N U D a G U r14 t í M a M ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð tímamót Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Stefánsson bifvélavirkjameistari, Miðteigi 9, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 5. febrúar. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Stefán Sigurðsson Eiríkur Sigurðsson Ingibjörg Guðlaugsdóttir Jóhann Rúnar Sigurðsson Líney Björk Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Cheg Wushueng Ywrée lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 14. febrúar kl. 14. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir einstaka umönnun. Óli Lin Kam Yu Anna Yung Yueh Lin Wing Wa Yu Wing Kit Yu Áki Kim Feng Yu Dísa Chau Buu Truong Ása Mei Ling Yu Árni Rong Hao Yu Ásgeir Rong Hui Yu Ari Rong Liang Yu Xiuyun Yu Chuantong Wu Deyi Wu Anni Li Kelly Wu Yanping Wu Linda Rós Wu Yanzhen Wu Bingshun Chen Yuwei Chen og Shiru Chen Elskulegur bróðir okkar, Þórir Magnússon sem lést mánudaginn 29. janúar verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 13. febrúar kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Hrefna Magnúsdóttir Ragna Magnúsdóttir Soffía Magnúsdóttir Karl Höfðdal Magnússon „Það er allt að gerast. Nýtt námskeið að byrja á morgun meira að segja,“ segir Ólöf Sverrisdóttir en hún ásamt Ólafi Guðmundssyni hefur starfrækt leiklist- arskólann Opnar dyr í áratug. Skólinn er fyrir fullorðna, allt frá 17 ára aldri og upp úr. Á þessum árum hafa þau látið fjölda manns stíga út fyrir þægindahringinn sinn og segir Ólöf að það eitt sé stórt skref í átt til frelsis og óheftari tjáningar. „Þetta er fyrir alla þá sem vilja en það eru ekki margir sem hafa komið sem eru eldri en 70 ára. Þetta er skemmti- legt þegar blandast. Núna eru komnar bókanir frá einum sem er nýorðinn 17 ára og einni sem er orðinn fimmtug.“ Leiklistarskólinn Opnar dyr eða nám- skeiðin á vegum skólans einbeita sér að æfingum sem opna fyrir sköpunarflæði og leikgleði á sama tíma og nemendur læra leik og spunaæfingar sem nýtast þeim jafnt í leiklistinni og lífinu sjálfu. „Það er alls konar fólk að koma. Sumir sem eru á leiðinni til útlanda að læra eða vilja komast í áhugamannaleikhús en líka fólk sem er að koma og gera eitthvað skemmtilegt og hrista upp í tilverunni. Brjótast út úr hefðbundinni hegðun og stíga út fyrir þægindaramman. Þeir eru að fá mikið út úr þessum námskeiðinu því þeir finna frelsið og fá orku og sjálfs- traust. Aðrir hafa skipt um atvinnu eftir þetta. Viðskiptafræðingur hætti og fór að læra jóga. Sagði að þetta hefði bjargað lífi hans. Honum fannst hann sjá aðrar hliðar á lífinu.“ Hún bendir á að þegar fólk stígur út úr þægindarammanum þá uppgötvi það nýjar hliðar á sjálfu sér. „Það er ýmislegt sem fólk segir við okkur. Við notumst við spuna til að takast á við aðstæður í lífinu. Fólk verður þá opið og tilbúið að takast á við hvað sem er.“ Hún segir að það taki ekki langan tíma að ná tökum og strax í þriðja tíma eru þau farin að sjá mikinn mun á fólki. „Þá er fólk komið á annan stað. Við erum með æfingar sem losa um hömlur og það sem er að stoppa fólk af. Það þarf að þora. Um leið og rútínan er brotin upp þá losnar um fólk.“ Byrjendanámskeiðið hefst á morgun í Listdansskólanum við Engjateig. Námskeiðið er eingöngu í sjö skipti í þetta sinn. Þau Ólafur og Ólöf eru bæði hámenntuð í leiklist og leiklistar- kennslu. „Ef einhvern langar en er eitthvað feiminn eða óöruggur þá á hann auð- vitað að skella sér á námskeiðið. Þetta námskeið hjálpar fólki að finna öryggi í sjálfu sér og blómstra í lífinu. Sköpunar- gleði og frjáls tjáning hjálpa nemendum að njóta augnabliksins og til að treysta sjálfum sér í öllum aðstæðum.“ benediktboas@365.is Finna frelsið og nýja sýn á lífið í gegnum leiklistina Í ár er leiklistarskólinn Opnar dyr 10 ára. Vorið 2008 kom fyrsti hópurinn á námskeið fyrir fullorðna hjá skólanum sem er rekinn af Furðuleikhúsinu. Fyrst voru námskeiðin styttri eða einu sinni í viku í fimm vikur. Nú eru þau að öllu jöfnu í sjö til tíu vikur. Leiklistarskólinn Opnar dyr er tíu ára um þessar mundir. Þar hafa margir stigið út fyrir þægindarammann. FréttabLaðið/Opnar dyr Það er mikið stuð á æfingum hjá leik- listarskólanum Opnar dyr. 1049 Bruno varð Leó 9. páfi. 1354 Stralsund-sáttmálinn festi landamærin milli hertoga- dæmanna Mecklenburg og Pommern. 1832 Ekvador innlimaði Galápagoseyjar. 1892 Afmælisdagur Abrahams Lincoln var valinn sem þjóð- hátíðardagur Bandaríkjanna. 1912 Kínverska keisaraekkjan Longyu sagði af sér fyrir hönd síðasta keisarans Puyi sem markaði endalok King- veldisins. 1919 Skjaldarmerki Íslands var staðfest með konungs- úrskurði. Merkinu var síðan breytt 17. júní 1944. 1924 Calvin Coolidge varð fyrsti forseti Bandaríkjanna til að flytja ræðu í útvarpi. 1940 Eldey var friðuð með lögum. Bannað var að ganga á eyjuna án leyfis ríkisstjórnarinnar og bannað að granda þar fugli. 1950 Íslenska íþróttafélagið Breiðablik UBK var stofnað. 1950 Samband evrópskra sjónvarpsstöðva var stofnað. 1965 Hótel Holt í Reykjavík var opnað. Í öllum herbergjum, 36 að tölu, voru málverk eftir íslenska listamenn. 1989 Í illviðri settist selta á einangrara í spennistöð á Geit- hálsi við Reykjavík sem olli rafmagnsleysi á öllu Íslandi. 1994 Vetrarólympíuleikarnir 1994 hófust í Lillehammer í Noregi. Merkisatburðir Ótrúlegt en satt þá eru orðin 14 ár síðan einhver óvæntasti skilnaður allra tíma átti sér stað. Mattel-fyrirtækið tilkynnti þá að sjálf Barbie og Ken væru hætt saman eftir að hafa verið par í 43 ár. Dúkkuunnendur voru harmi slegnir en saman hafði parið átt margar gull- stundir saman. Það voru ekki allir jafn vissir um að skilnaðurinn væri endan- legur og sögðu þetta aðeins ömurlegt bragð hjá Mattel til að reyna að auka sölu á Barbie sem hafði dregist hratt og örugglega saman. Ekki leið á löngu þar til Barbie, sem heitir fullu nafni Barbie Millicent Roberts var komin með annan mann upp á arminn. Sá hét Blaine og var frá Ástralíu og stundaði brimbretti af miklum móð. Sjálf valdi hún þó ekki sinn nýja mann því almenningur greiddi atkvæði til að velja kauða. Um tvær milljónir tóku þátt í at- kvæðisgreiðslunni sem fyrirtækið stóð fyrir á heimasíðunni sinni. Barbie leit fyrst dags ins ljós árið 1959. Mis mun andi út gáf ur af henni eru enn fá an leg ar í yfir 150 lönd um víðsveg ar um heim inn. – bb Þ EttA G E r ð i St : 1 2 . F E B rúA r 2 0 0 4  Skilnaður skekur dúkkuheiminn barbie ásamt vinkonu sinni að fara í pottinn til að slaka á. nOricphOtOs/getty 1 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E F 1 -5 E C 0 1 E F 1 -5 D 8 4 1 E F 1 -5 C 4 8 1 E F 1 -5 B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.