Víkurfréttir - 22.06.2017, Qupperneq 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• Fimmtudagur 22. júní 2017 • 25. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
■ Lögreglan á Suðurnesjum fór ný-
verið, ásamt fulltrúum frá Vinnu-
málastofnun, í eftirlit á nokkra
vinnustaði í umdæminu til að at-
huga hvort skráningar starfsmanna
væru með lögbundnum hætti. Eftir-
litið er þáttur í aðgerðardögum
Europol gegn vinnumansali.
Farið var á fimm vinnustaði og á
þremur þeirra reyndust vera samtals
tólf starfsmenn sem ekki voru með at-
vinnuleyfi. Forráðamönnum viðkom-
andi fyrirtækja var gerð grein fyrir því
að málum yrði fylgt eftir þar til að þau
væru komin í lag.
Lögregla og Vinnumálastofnun munu
á næstu dögum heimsækja fleiri
vinnustaði í umdæminu í sömu er-
indagjörðum. Þar á meðal verða veit-
ingahús og skemmtistaðir.
Á annan tug
starfsmanna
án leyfis
Flutningi á Heilsuleikskólanum
Háaleiti hefur verið frestað um
eitt ár. Eins og kynnt var á skóla-
slitum Háaleitisskóla stóð til að
flytja Heilsuleikskólann Háaleiti
í annað húsnæði í sumar, vegna
væntanlegrar mikillar og skyndi-
legrar íbúafjölgunar á Ásbrú, og
nýta núverandi húsnæði leikskólans
í þágu yngstu nemenda grunnskól-
ans. Þetta kemur fram í tilkynningu
skólastjórnenda Háaleitisskóla til
foreldra og forráðamanna barna í
Háaleitisskóla á Ásbrú
„Nú hefur verið tekin ákvörðun um
að seinka flutningnum um allt að
eitt ár þar sem forsendur hafa breyst
og útlit fyrir að íbúafjölgun á Ásbrú
verði hægari en upphaflega var gert
ráð fyrir. Aðal ástæða þessa er að nýir
eigendur íbúðarhúsnæðis að Ásbrú
hafa ákveðið að selja stóran hluta
íbúða í stað þess að leigja og það mun
væntanlega hægja talsvert á flutningi
nýrra íbúa inn á svæðið,“ segir í til-
kynningunni.
Félagið Fasteignir Reykjanesbæjar
ehf. hefur verið rekið með miklu tapi
frá stofnun þess árið 2002 og nemur
uppsafnað tap nú rúmlega 1,6 millj-
örðum króna. Frá þessu greindi
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi
og formaður bæjarráðs Reykjanes-
bæjar, á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
dag.
Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. eru
í eigu Reykjanesbæjar og telst til
b-hluta stofnana sveitarfélagsins. Fé-
lagið á og rekur um 240 íbúðir til af-
nota fyrir fjölskyldur og einstaklinga,
sem ekki geta séð sér fyrir húsnæði
vegna félagslegra aðstæðna, sem og
fyrir aldraða.
Löggiltir endurskoðendur félagsins
hafa ítrekað bent á rekstrarvanda fé-
lagsins en ljóst er að við óbreyttar for-
sendur muni rekstur félagsins hvorki
geta staðið undir afborgunum lána né
eðlilegu viðhaldi hússins. Leiguverð
félagsins hefur í mörgum tilfellum
verið afar lágt, eða allt frá 800 krónum
á fermetra. Jafnframt er mikill munur
á leiguverði á milli íbúða innan félags-
ins og nemur sá munur rúmlega 40%
þar sem bilið er mest.
Mikið tap á félagslegu
húsnæði Reykjanesbæjar
Sala fasteigna
hægir á íbúa-
fjölgun á Ásbrú
●● Flutningi●á●Heilsuleikskól-
anum●Háaleiti●hefur●verið●
frestað●um●eitt●ár.
Þeir komu sér vel fyrir í skrúðgarð-
inum í Keflavík á þjóðhátíðardaginn
þessir flottu peyjar þegar ljósmynd-
ari Víkurfrétta lyfti myndavélinni og
smellti af. Fleiri myndir frá 17. júní
inni í blaðinu. VF-mynd/pket.
Þjóðhátíð í skrúðgarðinum
Sumarsólstöður voru í gær 21. júlí en þá var
dagur lengstur á Íslandi. Hér má sjá bjarma
sólarinnar teygja sig yfir Snæfellsjökul og lang
leiðina inn í linsu flygildis Víkurfrétta sem
Hilmar Bragi flaug í góðviðrinu í vikunni. Hvalreki í Garði
Hval hefur rekið á fjörur Garðmanna. Hrefnutarfur fannst þar sem hann
var sjórekinn í grýttri fjöru rétt innan við Réttarholt í Garði í síðustu viku.
Starfsmaður Hafrannsóknarstofnunar skoðaði hræið og tók úr því sýni.
Hrefnutarfurinn reyndist 7,7 metra langur og sporðurinn var 1,9 metrar
í þvermál.
Nú er hins vegar spurning hvað verður um hræið. Staðurinn þar sem dýrið
liggur á er við vinsæla gönguleið um Leiruna og því lítill áhugi á að fá grút
af dýrinu yfir svæðið. Íbúi í nágrenni við staðinn vill að dýrið verði dregið
í land við höfnina í Garði, þar sem það verði hlutað niður og urðað.
Meðfylgjandi mynd var tekin yfir staðinn þar sem dýrið liggur dautt í
grýttri fjörunni.