Víkurfréttir - 22.06.2017, Page 2
2 fimmtudagur 22. júní 2017VÍKURFRÉTTIR
Strandhreinsiátak Nettó í samstarfi
við Bláa herinn, Samtök sveitarfélaga
á Suðurnesjum og félagssamtök á
svæðinu, standa fyrir strandhreinsun
í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum
í sumar. Þegar hefur hópurinn látið
til sín taka í Grindavík, á svæðinu við
Brimketil. Sú hreinsun gekk vonum
framar, en alls tíndu sjálfboðaliðar
1500 kg. af rusli á aðeins tveimur
klukkustundum.
Nú verður haldið áfram með átakið í
Garði kl. 16:30 í dag við Garðskaga-
vita. Blásið verður til Sólseturshátíðar-
innar þar um næstu helgi.
Tómas J. Knútsen fer fyrir Bláa
hernum líkt og áður og verður á
svæðinu ásamt sjálfboðaliðum, m.a.
úr knattspyrnudeild Víðis og Reynis.
Nettó býður svo öllum sjálfboðaliðum
uppá hressingu að hreinsun lokinni.
Verkefnið er liður í samfélagslegri
ábyrgð Nettó en fyrirtækið hefur
beint sjónum sínum að því sem betur
má fara í umhverfismálum á síðustu
árum. Markmið strandhreinsunará-
taksins er að safna saman rusli og færa
það til endurvinnslu, en það er ekki
síður til þess fallið að vekja athygli á
mikilvægi umhverfismála á Íslandi.
Garður tekinn með trompi í strandhreinsiátaki
●● Átakið●yfirstaðið●í●Grindavík●þar●sem●1500●kg.●af●rusli●voru●tínd
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Úrbætur í fjarskiptamálum á Vatnsleysuströnd og Hvassahrauni voru til umræðu hjá bæjarráði Voga á dögunum.
Bæjarráð samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að gera samstarfssamning við Gagnaveitu Suðurlands
um uppsetningu útsendingabúnaðar netmerkis fyrir dreifbýli sveitarfélagsins.
Stofnframlag sveitarfélagsins er tvær og hálf milljón króna sem rúmast innan framkvæmdaáætlunar ársins.
Setja upp útsendingarbúnað fyrir
netmerki á Vatnsleysuströnd
Verslanir Nettó hafi verið öflugar í að
beina sjónum sínum að því sem betur
megi fara undir formerkjum átaka á
borð við Minni sóun og Allt-nýtt.
„Við höfum dregið gríðarlega úr sorp-
magni frá verslunum okkar undan-
farin ár og stefnum á að draga úr því
um 100 tonn í ár. Við stefnum á að
halda þessu áfram og viljum endilega
hvetja fleiri fyrirtæki til að leggja sitt
á vogarskálarnar líka,“ segir Gunnar
Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verslunarsviðs Samkaupa sem reka
Nettó.
Megi aðeins gista á sérmerktum svæðum
Stjórn Reykjanes UNESCO Global Geopart leggur til við sveitarfélögin
á Suðurnessjum að þau breyti lögreglusamþykktum þannig að gisting í
tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum verði aðeins heimiluð á sér-
merktum svæðum, hvort heldur sem er í þéttbýli eða dreifbýli. Þetta var sam-
þykkt á fundi jarðvangsins í lok maí sl.
Frá Vatnsleysuströnd á vordögum. Kirkjustaðurinn Kálfatjörn og golfvöllurinn fremst á myndinni. VF-mynd/hilmar.