Víkurfréttir - 22.06.2017, Síða 10
10 fimmtudagur 22. júníVÍKURFRÉTTIR
Fjölmenni sótti hátíðarhöld þjóðhátíðardagsins 17. júní í Reykjanesbæ. Hefðbundin dagskrá var í skrúðgarðinum í
Keflavík. Axel Jónsson, veitingamaður dróg stærsta fána á Íslandi að húni í blíðskaparveðri og Guðbrandur Einars-
son, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar setti hátíðina.
Fida Abu Libdeh, frumkvöðull, sem fædd er í Palestínu flutti ræðu dagsins og Erna Hákonardóttir, fyrirliði
meistaraliðs Keflavíkur í körfubolta kvenna, flutti ávarp fjallkonu. Fjölbreytt skemmtiatriði voru í skrúðgarðinum,
m.a. söng Jón Jónsson og þá voru flutt atriði úr ávaxtakörfunni af félögum úr Leikfélagi Keflavíkur. Kaffisala var á
nokkrum stöðum í bæjarfélaginu, söfn voru opin og síðan var einnig kvölddagskrá í ungmennagarði.
Sjónvarp Víkurfrétta sýndi beint frá stórum hluta af hátíðinni í skrúðgarðinum.
Kæru bæjarbúar, gleðilega hátíð!
Það er mér mikill heiður að standa
fyrir framan ykkur í dag og vera með
ræðu dagsins.
Ég heiti Fida Abu Libdeh og er fædd
og alin upp í Palestínu. Ég og fjöl-
skyldan mín fengum nóg af góða
veðrinu, sólinni og sælunni alla daga,
þannig við ákváðum að finna stað
þar sem er vindasamast. Við leituðum
hvar í heiminum væri hvassast og þá
kom Reykjanesbær efst á lista, þess
vegna er ég með ykkur hér í dag.
Að öllu gríni slepptu, þá komum við
að sjálfsögðu til Íslands til að leita að
betri framtíð, betri menntun og betra
lífi.
Við erum komin hingað saman í dag
til að fagna lýðræði. Ég tek ekki lýð-
ræði sem sjálfsögðum hlut. Ég er alin
upp í landi sem hefur ekkert lýðræði,
fólkið mitt hefur ekki einu sinni kosn-
ingarétt. Mest allan tímann sem ég var
að alast upp var faðir minn í fangelsi
fyrir það eitt að vera blaðamaður og
skrifa sínar skoðanir.
Ég tek ekki lýðræði sem sjálfsögðum
hlut og fagna deginum í dag með
ykkur sérstaklega! Ég veit að með lýð-
ræðinu fylgir ábyrgð, jafnrétti og jöfn
tækifæri. Ég get sagt það með stolti
að við hérna í Reykjanesbæ tökum
ábyrgð um jafnrétti og jöfn tækifæri
alvarlega. Í dag eru akkúrat tíu ár frá
því að ég flutti til Reykjanesbæjar. Það
er ótrúlegt að horfa til baka á líf mitt
fyrir 10 árum. Svo margt hefur gerst;
frá því að vera með grunnskólapróf í
Axel Jónsson dró stærsta
fána landsins að húni
Fjölmenni við
hátíðarhöld 17. júní
í Reykjanesbæ
●● Sjónvarp●Víkurfrétta●sýndi●beint●frá●hátíðinni●í●skrúðgarðinum●í●Keflavík
Tek ekki lýðræði sem
sjálfsögðum hlut
●● Fida●Abu●Libdeh,●frumkvöðull●og●framkvæmdastjóri●flutti●
þjóðhátíðarræðu●dagsins●í●Reykjanesbæ
að vera með meistaragráðu, frá því að
vinna í láglauna starfi í að vera með
mitt eigið fyrirtæki. Við yrðum í allan
dag ef ég ætti að telja upp allt sem
Reykjanesbær hefur fært mér.
Þegar fólk sem þekkir mig ekki, þá
aðalega fólk utan Reykjanesbæjar,
(því ég er auðvitað svo fræg hérna:),
spyr mig hvaðan ég sé, þá segi ég
Suðurnesjum, þá spyrja þau aftur; nei
hvaðan ertu? Ég segi Reykjanesbæ,
þá segja þau aftur; ,,nei, nei, hvaðan
ertu?“ …Ég; „Já, já, Keflavík, Ásbrú…
,,Nei, hvaðan ertu ættuð?“ Þá fatta ég
hvað þau eru að meina og segi að ég sé
fædd í Palestínu .
En einmitt eitt af grundvallarþörfum
okkar er að tilheyra samfélagi. Fyrsta
skipti frá því ég flutti til Íslands finnst
mér eins og ég tilheyri samfélagi, að ég
sé jafningi, það er horft á það sem ég
hef, en ekki það sem ég hef ekki.
Ég tek ykkur ekki, sambæjarbúum
mínum, sem sjálfsögðum hlut. Ég
tek ekki tækifærum sem ég fékk hér
í Reykjanesbæ sem sjálfsögðum hlut.
Ég er þakklát þessum tækifærum sem
ég hef fengið og vil hvetja ykkur til að
halda áfram að gefa öllum jöfn tæki-
færi. Sýnum umburðarlyndi, því við
erum öll jafningjar og eigum skilið
jafnrétti.
Ég vil enda á því að segja: Hér á ég
heima og vil hvergi annars staðar búa!
átar í Heiðarbúum tóku að venju stór-
an þátt í hátíðarhöldunum og settu
skemmtilegan svip á þau.
Fyrirliði meistaraliðs Keflavíkurstúlkna í körfubolta, Erna
Hákonardóttir flutti ávarp fjallkonu.
Fida Abu Libdeh, frum-
kvöðull, flutti ræðu
dagsins í skrúðgarðinum í
Keflavík. VF-myndir/pket.
Axel Jónsson, veitingamaður, fékk þann heiður að draga stærsta fána landsins að húni. VF-myndir/pket.
Grindvíkingar héldu 17. júní hátíðlegan líkt og undanfarin ár og var há-
tíðarsviðið við íþróttahúsið. Hestamannafélagið Brimfaxi sá um fánareiðina í
skrúðgöngunni sem hófst á Landsbankatúninu og endaði við íþróttahúsið. Há-
tíðardagskrá var með hefðbundnum hætti og Inga Fanney Rúnarsdóttir, flutti
ávarp fjallkonunnar. Þá var karamellum dreift yfir svæðið og leiktæki af ýmsum
gerðum biðu gesta. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur buðu upp á leik-
tækin í samvinnu við Grindavíkurbæ. Arctic Horses leyfðu börnum svo að fara á
hestbak við íþróttahúsið.