Víkurfréttir - 22.06.2017, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 22. júníVÍKURFRÉTTIR
Hjúkrunarráð lýsir yfir þungum
áhyggjum vegna hlutaúttektar Land-
læknisembættisins. Það er ljóst að
ýmislegt þarf að breyta til þess að
mönnunarmál hjúkrunarfræðinga og
öryggi sjúklinga fari í betri farveg.
Á meðan komufjöldi t.d á bráða-
móttöku hefur aukist gríðarlega þá
er mönnun hjúkrunarfræðinga ófull-
nægjandi miðað við fjölda skjólstæð-
inga. Slysa- og bráðamóttaka er með
minnstu mönnun miðað við aðrar
stofnanir á landinu þrátt fyrir að vera
ein af þremur stærstu slysa- og bráða-
móttökum landsins.
Á bráðamóttökunni eru tveir hjúkr-
unarfræðingar á morgnana og tveir á
kvöldin, enginn hjúkrunarfræðingur
er á næturnar þrátt fyrir ítrekaða
beiðni hjúkrunarráðs á sl. tveimur
árum til framkvæmdarstjórnar. Þetta
er óásættanlegt og kemur skýrt fram
í úttektinni.
Einnig hefur álagið á legudeildinni
aukist mikið, mjög oft eru sjúklingar
innlagðir á „ganginn“ sem sagt lagðir
inn á ganga deildarinnar og einnig í
dagsstofu sjúklinga. Álagið á heima-
hjúkrun og skólahjúkrun hefur einnig
aukist, sem og hjúkrunarmóttöku.
Það er vel þekkt hvað gerist við lang-
varandi álag á heilbrigðisstarfsfólk, þá
aukast veikindi starfsmanna, aukin
hætta er á kulnun í starfi og hætta
er á að góðir starfsmenn með mikla
reynslu fara til annarra starfa eða
starfsgreina þar sem launin eru betri
og álagið minna. Svo að dæmi séu
nefnd eru 4 af 11 hjúkrunarfræðing-
unum á bráðamóttöku HSS búin að
minnka við sig í starfi eða eru að fara
að starfa alfarið annars staðar. Þetta
eru næstum 25% starfsmanna deildar-
innar.
Ljóst er að stefnumótun og stjórnun
heilsugæslu HSS uppfyllir í mörgum
tilfellum ekki kröfur um góða stjórnun
og skýra stefnumótun. Það er því erfitt
að meta gæði og öryggi þjónustunnar.
Það liggur því nokkuð ljóst fyrir að
umbóta er þörf og telur hjúkrunarráð
ansi brýnt að það sé farið í þá stefnu-
mótunarvinnu.
Læknar eru einir á næturvöktum á
bráðamóttökunni, þ.e. enginn hjúkr-
unarfræðingur er á næturvakt og að
sögn framkvæmdastjórnar hefur ekki
fengist fjármagn til að ráða hjúkrunar-
fræðing á næturvaktir, mikið álag er
því á vakthafandi lækni. Lítið má bera
út af vegna mönnunar lækna, þarf
ekki annað en að einn veikist þá skap-
ast mikil vandræði. Húsnæði heilsu-
gæslunnar í Keflavík er barn síns tíma
og mjög þröngt miðað við þá starf-
semi sem þar fer fram. Skoðunar- og
viðtalsherbergi eru lítil og ekki vistleg.
Bráðamóttakan er sömuleiðis mjög
lítil þótt hún taki við mörgum sjúkl-
ingum og er ástandið á húsnæði þar
mjög ábótavant þrátt fyrir að búið er
að gera einhverjar breytingar til hins
betra þá er langt í land. Um helgar
sinna læknar sólarhringsvöktum með
einn hjúkrunarfræðing frá kl.11-19
en annars eru þeir einir á bráða og
slysa-og bráðamóttöku HSS sem er
er óásættanlegt og ógnar öryggi þjón-
ustunnar.
Upptökusvæði HSS er stórt, 24 þús-
und manns og til viðbótar er milli-
landaflugvöllurinn og allir sem þar
starfa, auk ferðamanna. Heilsu-
gæslan þjónustar einnig íbúa í Ásbrú
sem margir eiga lögheimili annars
staðar á landinu. Því er fjármagni
ekki úthlutað á sanngjarnan hátt til
stofnunarinnar þar sem miðað er
við lögheimili þeirra. Hjúkrunarráð
hvetur þingmenn umdæmisins til
þess að bregðast við þessari skýrslu á
sanngjarnan hátt með hærri fjárfram-
lögum til HSS.
Mikill mönnunarvandi hefur einnig
verið í geðteyminu og vantar meðal
annars hjúkrunarfræðing þar og yfir-
sálfræðing og lækna sem þurfa að
sinna geðheilbrigðismálum en íbúa-
samsetning svæðisins kallar á slíkt.
Ekki hefur verið starfandi yfirhjúkr-
unarfræðingur á heilsugæslu síðan
2015. Tvívegis hefur hjúkrunarráð
síðan 2015 haft samband við fram-
kvæmdastjórn HSS til að reyna að fá
úr þessu bætt en það hefur ekki ennþá
gerst.
Í skýrslu Landlæknisembættisins eru
ábendingar sem hjúkrunarráð hvetur
framkvæmdarstjórn til þess að sinna
þeim brýnu málefnum sem fyrst til
að auka öryggi skjólstæðinga og halda
utanum þann mannauð sem vinnur
á HSS og skapa þeim viðunandi að-
stæður til þess að vinna sína vinnu
faglega og örugglega.
Við sem störfum á HSS vitum að það
hefur verið naumt skammtað af fjár-
munum af hálfu stjórnvalda og vissu-
lega hefur framkvæmdastjórn farið
fram á úrbætur og reynt að frá auka-
fjárveitingar en ekki haft erindi sem
erfiði.
Framundan er samstarfsverkefni
stjórnenda og starfsmanna HSS ásamt
þingmönnum þar sem allir verða að
taka á honum stóra sínum. Nú er lag
að í ljósi þessarar hlutaúttektar að fara
fram á frekari fjárveitingar HSS til
handa til þess að geta haldið áfram
að stækka og dafna og þannig haldið
áfram að geta tryggt okkar skjólstæð-
ingum það öryggi og þjónustu sem
þeir þurfa á að halda.
Hjúkrunarráð HSS,
Jón Garðar Viðarsson,
Katrín Guðmundsdóttir
Steina Þórey Ragnarsdóttir
Vigdís Elísdóttir.
Nú verða allir að taka
á honum stóra sínum
●● Ályktun●hjúkrunarráðs●eftir●hlutaúttekt●Landlæknisembættis●
Íslands●á●HSS●●sem●gerð●var●í●apríl-maí●2017
Nú nýlega varð uppi fótur og fit þegar
verktakar, sem unnu að vegagerð ofan
Iðavalla, urðu varir við tjörumengun
í jarðveginum. Margir Keflvíkingar
sem eru komnir vel yfir miðjan aldur
muna vel eftir því að varnarliðið fór
ekki hefðbundnar leiðir við förgun
úrgangsefna.
Ef við lítum til baka um það bil 60 ár,
þegar við, nokkrir pollar vorum að
leik á fyrrnefndum stað, veittum við
því athygli að fjöldi fugla voru fastir í
einhvers konar leðju. Þegar betur var
að gáð sáum við að stórt svæði var
þakið tjöru og þarna voru hundruðir
fugla, sem sátu fastir í tjörubaðinu og
fjöldi þeirra voru soknir á kaf. Þarna
höfðu Vendararnir opnað fleiri tuga
tunna og látið renna úr þeim, án þess
að biðja um leyfi, eða láta bæjaryfir-
völd vita.
Það var vor í lofti og sólin glampaði
þannig á heita tjöruna og fuglarnir
sem voru að koma yfir hafið renndu
sér niður og álitu þetta vatn, en urðu
fastir. Við pollarnir sóttum pappa-
kassa, tókum c.a. 10 stk fugla úr leðj-
unni, og geystumst niður á lögreglu-
stöð og báðum lögregluna að gera eitt-
hvað í málunum. Það síðasta sem við
heyrðum þegar við lokuðum hurðinni
hjá lögreglunni, var að annar lögreglu-
maðurinn sagði við hinn: „Komdu
með kutann, við skulum taka af þeim
hausinn.“ Um það hvort eitthvað hafi
verið gert í málunum veit enginn.
En eitt vitum við bæjarbúar, að við-
skilnaður varnarliðsins var ekki til
fyrirmyndar í mengunarmálum. Þar
má nefna Nikkelsvæðið, þar sem olía
lak niður á grunnvatnið árum saman
og lausnin við því var að færa leiðsl-
una annað.
Ég er hræddur um að einhverjum
hefði brugðið ef olía hefði komist inn
á dreifikerfi bæjarbúa. Hver var svo
lausnin? Var henni dælt upp til eyð-
ingar eða eitthvað gert til að lámarka
skaðann. Nei, eins og svo oft áður fékk
bærinn litla kommisjón. Thank you
mister kommisar.
Ég held að það sé löngu kominn tími
til að við lifum í sátt við nátturuna, og
framkvæmum eins vistvænt og mögu-
leiki er hverju sinni. Látum Rögnu-
nefndina ekki byggja flugvöll ofan á
vatnsverndarsvæðunum okkar, hún
gleymdi víst að kíkja undir yfirborðið.
Friðrik Georgsson.
Löngu kominn tími til að
lifa í sátt við nátturuna
„Það er okkar skylda sem þjóð að
sýna útlendingum sem koma hingað
í leit að betra lífi samhug, tillit-
semi og þolinmæði er þau festa sig
í sessi hér á landi og gera allt sem
við getum til að létta þeim lífið,“
segir Atli Rafn Eyþórsson, en á dög-
unum var hann staddur í fyrirtæki í
Reykjanesbæ þar sem einstaklingur
neitaði að leyfa útlendingum að af-
greiða sig sökum þess að þeir töluðu
ekki góða íslensku.
Í fyrirtækinu voru tveir afgreiðslu-
menn af erlendu bergi brotnir og segir
Atli þá hafa reynt að gera sitt besta til
að þjóna viðskiptavinum sínum. „Allt
gekk vel þangað til að einstaklingur
neitaði að láta þessa aðila afgreiða
sig. Eftir leiðinda orðaskipti kom ís-
lenskur afgreiðsluaðili og leysti málið,
en þessum útlendingum leið mjög illa
út af þessari neikvæðni gagnvart þeim.
Staðreyndin er sú að hér er orðið al-
þjóðlegt samfélag og ég tel það gott.
Sýnum nýbúum að við erum sann-
gjörn þjóð sem bjóðum alla þá, sem
hér vilja búa og vinna, velkomna og
burt með rasisma.“
Atli segir einstaklinginn hafa sýnt
afgreiðslufólkinu mikla vanvirðingu
og ókurteisi. „Það fór alveg óskap-
lega í taugarnar á henni að þau töluðu
litla sem enga íslensku. Hún var bara
hin versta og æst. Þá kom þarna kona
sem bjargaði því, að ég held verslunar-
stjóri, og spurði bara hvað hægt væri
að gera fyrir hana. Hún sagði: „Ég vil
fá íslenskan afgreiðslumann. Ég er á
Íslandi, ég er íslensk og ég kann ekk-
ert útlendingamál,“ eða eitthvað í þá
áttina. Hún fær þá afgreiðslu sem hún
vildi og þessi kona var afgreidd.“ Atli
segir þó afgreiðslufólkið hafa afgreitt
sig án allra vandkvæða. „Maður getur
alltaf einhvern veginn reynt að útskýra
fyrir fólki með einhverjum handa-
bendingum eða slíku. Allir sem voru
þarna inni voru bara brosandi og allt
í lagi. Það vantaði hjá henni alla til-
litssemi og almenna kurteisi gagnvart
fólki sem er að reyna að standa hérna í
fæturna og lifa lífinu.“
Atli vill benda fólki á að það þurfi
ekki þessi læti og að grunnatriðið sé
að sýna virðingu og kurteisi því ef það
sé gert gangi allt betur. „Það er alveg
nauðsynlegt að fá mismunandi menn-
ingu til Íslands. Mér finnst voðalega
gott að hafa þetta svona. Þetta gerir
fjölbreytnina meiri og lífið skemmti-
legra.“
Sýnum nýbúum að við
erum sanngjörn þjóð
Bílabúð Benna, Reykjanesbæ, fagnar
sumrinu með Suðurnesjamönnum
á löngum fimmtudegi, 22. júní. Í
fréttatilkynningu kemur fram að á
svæðinu verði glæsilegt úrval af bílum
frá fyrirtækinu og boðið uppá spenn-
andi tilboð og ljúfar veitingar. Gestir
eiga því von á góðu; Sumarævintýri
SsangYong, með kaupaukum og ferða-
vinningum verður í fullum gangi,
sértilboð á völdum bílum frá Opel
og lúxusbílar frá Porsche á svæðinu.
Grillaðar pylsur og gos verða svo í
boði milli kl. 16:00 og 21:00. Fólk er
hvatt til að mæta og gera sér glaða
stund á löngum fimmtudegi hjá Bíla-
búð Benna, Njarðarbraut 9. Allir eru
velkomnir.
Langur fimmtudagur
hjá Bílabúð Benna
Vinnuslys varð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni þegar karlmaður féll úr
sex metra hæð og lenti á steyptu undirlagi. Maðurinn var að vinna á vinnupalli
í nýbyggingu í flugstöðinni þegar óhappið átti sér stað. Hann steig á gluggapóst
sem lét undan þunga hans og féll hann fram fyrir sig. Hann var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á bráðamóttökuna á Landspítala. Ekki er
vitað um líðan hans.
Féll úr sex metra hæð í Leifsstöð