Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.06.2017, Page 16

Víkurfréttir - 22.06.2017, Page 16
16 Fimmtudagur 22. júní 2017VÍKURFRÉTTIR Gísli var að vinna sem þjónustustjóri í sölu- og markaðsdeildinni hjá Íslenska Gámafélaginu áður en hann tók við starfi rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar. „Ég var búinn að vera í tæp þrettán ár hjá Íslenska Gámafélaginu þegar ég ákvað að breyta til og sækja um stöðuna í Húsasmiðjunni. Það fór að meðaltali einn og hálfur tími á dag í að ferðast á brautinni en þetta var skemmtilegt starf. Ég var mikið á ferðinni og einnig þó nokkuð úti á landi í heimsóknum, hitti marga og þá var einnig mikið rætt um sportið og dómgæsluna. Þetta var góður tíma hjá Íslenska Gámafélaginu og þakka ég öllum hjá fyrirtækinu fyrir þann tíma. Ég er aðeins farinn að átta mig á því hvað það er þægilegt að vera eingöngu þrjár mínútur að keyra í vinnuna eða bara átta mínútur á hjóli en ég flutti í Njarðvík í byrjun janúar sl.“ Mikill uppgangur á svæðinu Það eru níu fastráðnir starfsmenn í Húsasmiðjunni og síðan leysa af sex einstaklingar í sumar þegar aðrir eru í sumarleyfi. „Það hefur verið nóg að gera síðan ég byrjaði, bæði hjá mér og einnig í versluninni á öllum víg- stöðvum. Ég tek mér tíma að komast inn í alla hluti og verð að vera þolin- móður. Það er ekki hægt að gera allt fyrstu vikurnar. Ég kem inn í sumar- vertíðina þannig að það er mikið að gera í timbursölunni og málningar- deildinni. Einnig er mikið að gera í búðinni í alls konar vörum. Sumar- blómin, mold og fleira koma sterk inn. Síðan er ávallt mikið að gera í pípulagninga-deildinni Ég vil koma Húsasmiðjunni á enn hærri stall en Þægilegt að vera bara þrjár mínútur í vinnuna ●● -●segir●Gísli●Hlynur●Jóhannsson,●nýr●rekstrarstjóri●Húsasmiðjunnar●í●Reykjanesbæ hún er á nú þegar, þ.e. að bjóða upp á fleiri vörur fyrir fólkið. Þar þurfum við öll að vinna saman, vöruhúsin í Reykjavík, birgjar og flutningur á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar. Það er mikill uppgangur á svæðinu og mörg tækifæri fyrir einstaklinga og verktaka og þá verðum við að eiga vöruna sem beðið er um.“ Búinn að leggja skóna, spjöldin og flautuna á hilluna Nú ert þú þekktur handboltadómari. Ertu ennþá að dæma? „Við félagarnir, ég og Hafsteinn, lögðum skóna, spjöld og flautur á hill- una sl. haust eftir 34 ár í dómgæsl- unni. Þetta var orðið gott og þægilegt að geta hætt á eigin forsendum og á toppnum eftir farsælan feril. Ég er aðeins byrjaður sem eftirlitsdómari í handboltanum og verð það kannski áfram. Síðan ég hætti að dæma í fót- Gísli Hlynur Jóhannsson er nýr rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. Hann tók við 16. maí sl. og segir að þetta leggist vel í sig. „Þetta er mikil áskorun fyrir mig að taka við þessu verkefni, ég þekki ágætlega til reksturs. Ég hef verið stjórnandi í ýmsu í gegnum árin, þekki marga og margir þekkja mig og þannig ætla ég m.a að reyna að auka umsvif Húsasmiðjunnar á Suðurnesjum.“ boltanum fyrir 11 árum hef ég verið í eftirliti þar og tekið að mér dómara- kennslu.“ Skiptir máli að fá heimamann í þetta verkefni „Ég vil bjóða alla velkomna í Húsa- smiðjuna í Reykjanesbæ. Þar er heitt er á könnunni og ávallt vel tekið á móti viðskiptavininum. Ég hlakka til að sjá öll þau andlit sem ég hef ekki séð í mörg ár þar sem ég hef verið mikið í Reykjavík að vinna. Sumir sem ég hef ekki séð lengi hafa sagt við mig að nú fari þau að sjá mig oftar, en hér áður gátu þau fylgst með mér í sjónvarpinu í dómgæslunni. Einnig hef ég heyrt að það skipti máli að fá heimamann í þetta verkefni,“ segir Gísli að lokum. Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjar- stjóri Reykjanesbæjar óskaði Gísla til hamingju með starfið. Gísli með samstarfsfólki sínu í Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.