Víkurfréttir - 22.06.2017, Síða 16
16 Fimmtudagur 22. júní 2017VÍKURFRÉTTIR
Gísli var að vinna sem þjónustustjóri í
sölu- og markaðsdeildinni hjá Íslenska
Gámafélaginu áður en hann tók við
starfi rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar.
„Ég var búinn að vera í tæp þrettán
ár hjá Íslenska Gámafélaginu þegar
ég ákvað að breyta til og sækja um
stöðuna í Húsasmiðjunni. Það fór að
meðaltali einn og hálfur tími á dag
í að ferðast á brautinni en þetta var
skemmtilegt starf. Ég var mikið á
ferðinni og einnig þó nokkuð úti á
landi í heimsóknum, hitti marga og þá
var einnig mikið rætt um sportið og
dómgæsluna. Þetta var góður tíma hjá
Íslenska Gámafélaginu og þakka ég
öllum hjá fyrirtækinu fyrir þann tíma.
Ég er aðeins farinn að átta mig á því
hvað það er þægilegt að vera eingöngu
þrjár mínútur að keyra í vinnuna eða
bara átta mínútur á hjóli en ég flutti í
Njarðvík í byrjun janúar sl.“
Mikill uppgangur á svæðinu
Það eru níu fastráðnir starfsmenn í
Húsasmiðjunni og síðan leysa af sex
einstaklingar í sumar þegar aðrir eru
í sumarleyfi. „Það hefur verið nóg að
gera síðan ég byrjaði, bæði hjá mér
og einnig í versluninni á öllum víg-
stöðvum. Ég tek mér tíma að komast
inn í alla hluti og verð að vera þolin-
móður. Það er ekki hægt að gera allt
fyrstu vikurnar. Ég kem inn í sumar-
vertíðina þannig að það er mikið að
gera í timbursölunni og málningar-
deildinni. Einnig er mikið að gera í
búðinni í alls konar vörum. Sumar-
blómin, mold og fleira koma sterk
inn. Síðan er ávallt mikið að gera í
pípulagninga-deildinni Ég vil koma
Húsasmiðjunni á enn hærri stall en
Þægilegt að vera bara
þrjár mínútur í vinnuna
●● -●segir●Gísli●Hlynur●Jóhannsson,●nýr●rekstrarstjóri●Húsasmiðjunnar●í●Reykjanesbæ
hún er á nú þegar, þ.e. að bjóða upp
á fleiri vörur fyrir fólkið. Þar þurfum
við öll að vinna saman, vöruhúsin
í Reykjavík, birgjar og flutningur á
milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar.
Það er mikill uppgangur á svæðinu
og mörg tækifæri fyrir einstaklinga
og verktaka og þá verðum við að eiga
vöruna sem beðið er um.“
Búinn að leggja skóna, spjöldin og
flautuna á hilluna
Nú ert þú þekktur handboltadómari.
Ertu ennþá að dæma?
„Við félagarnir, ég og Hafsteinn,
lögðum skóna, spjöld og flautur á hill-
una sl. haust eftir 34 ár í dómgæsl-
unni. Þetta var orðið gott og þægilegt
að geta hætt á eigin forsendum og
á toppnum eftir farsælan feril. Ég er
aðeins byrjaður sem eftirlitsdómari í
handboltanum og verð það kannski
áfram. Síðan ég hætti að dæma í fót-
Gísli Hlynur Jóhannsson er nýr rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. Hann
tók við 16. maí sl. og segir að þetta leggist vel í sig. „Þetta er mikil áskorun fyrir mig
að taka við þessu verkefni, ég þekki ágætlega til reksturs. Ég hef verið stjórnandi í
ýmsu í gegnum árin, þekki marga og margir þekkja mig og þannig ætla ég m.a að
reyna að auka umsvif Húsasmiðjunnar á Suðurnesjum.“
boltanum fyrir 11 árum hef ég verið
í eftirliti þar og tekið að mér dómara-
kennslu.“
Skiptir máli að fá heimamann í
þetta verkefni
„Ég vil bjóða alla velkomna í Húsa-
smiðjuna í Reykjanesbæ. Þar er heitt
er á könnunni og ávallt vel tekið á
móti viðskiptavininum. Ég hlakka til
að sjá öll þau andlit sem ég hef ekki
séð í mörg ár þar sem ég hef verið
mikið í Reykjavík að vinna. Sumir
sem ég hef ekki séð lengi hafa sagt við
mig að nú fari þau að sjá mig oftar,
en hér áður gátu þau fylgst með mér
í sjónvarpinu í dómgæslunni. Einnig
hef ég heyrt að það skipti máli að fá
heimamann í þetta verkefni,“ segir
Gísli að lokum.
Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar óskaði Gísla til
hamingju með starfið.
Gísli með samstarfsfólki sínu í
Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ.