Víkurfréttir - 22.06.2017, Page 18
18 fimmtudagur 11. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Mikið var um að vera á leik-
skólanum Heiðarseli í síðustu
viku en börnin og aðstandendur
þeirra héldu upp á sumarhátíð
leikskólans. Ávaxtakarfan frá
Leikfélagi Keflavíkur mætti á
svæðið, börnunum til mikillar
gleði. Meðfylgjandi myndir tók
Sólborg Guðbrandsdóttir.
Keflvíkingar sigruðu ÍR-inga 3:1 á
Hertzvellinum á föstudaginn í Inkasso
deildinni.
Það voru Keflvíkingar sem voru sterk-
ari aðilinn í þessum leik og náðu þeir
forystunni á 25. mínútu með marki
frá Hólmari Erni. ÍR-ingar náðu þó
að jafna fyrir leikhlé og var það Andri
Jónasson sem að skoraði markið. 1-1
í leikhlé.
Í seinni hálfleiknum voru það Kefl-
víkingar sem sköpuðu sér meira af
færum og skilaði það sér á 63. mínútu
þegar Frans Elvarsson skoraði annað
mark Keflvíkinga og kom þeim yfir
á nýjan leik. Jeppe Hansen skoraði
þriðja markið á 80. mínútu og það
reyndist lokamark leiksins. Stigin þrjú
fóru til Keflavíkur og lokastaðan 3:1
fyrir Keflavík. Keflavík er í fjórða sæti
með 12 stig, fjórum stigum á eftir
Fylki og Þrótti og einu stigi á eftir Sel-
foss sem er í þriðja sæti. Næsti leikur
Keflvíkinga er á móti Þór Akureyri í
Keflavík.
GRUNNSKÓLINN Í SANDGERÐI
LAUS STÖRF
Grunnskólinn í Sandgerði óskar eftir að ráða til starfa ölhæft, áhugasamt
og skapandi fólk með hæfni í mannlegum samskiptum.
Grunnskólinn er Heilsueandi grunnskóli og vinnur eftir hugmyndafræði
Uppbyggingarstefnunnar. Leiðarljós skólans eru vöxtur, virðing, vilji og vinátta og
endurspeglast þau í daglegu star skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja
sig inn í starfshætti skólans og vinna með hópnum að því að mæta ólíkum
einstaklingum með ölbreyttum hætti.
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:
- Staða kennara í hönnun og smíði
- Staða kennara í myndlist
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um
störf við Grunnskólann í Sandgerði.
Frekari upplýsingar er að nna á heimasíðu skólans www.sandgerdisskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2017.
Umsóknir og ferilskrár skal senda á netfang skólastjóra:
holmfridur@sandgerdisskoli.is
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri holmfridur@sandgerdisskoli.is
og Elín Yngvadóttir, aðstoðarskólastjóri eliny@sandgerdisskoli.is
Keflvíkingar í fjórða sæti
Grindvíkingar steinlágu á heimavelli
fyrir Breiðabliki í Pepsi-deild kvenna
á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Blikas-
túlkur höfðu skorað þrjú mörk þegar
flautað var til hálfleiks og bættu svo
við tveimur mörkum til viðbótar í
síðari hálfleik.
Lánið hefur ekki leikið við grindvískar
knattspyrnukonur það sem af er Ís-
landsmótinu. Lykilleikmenn eru frá
vegna meiðsla. Þá hefur ekkert lið
fengið á sig eins mikið af mörkum en
28 sinnum hafa þær grindvísku þurft
að sækja knöttinn í eigið mark en hafa
aðeins skorað 6 mörk í fyrstu 9 um-
ferðum Íslandsmótsins.
Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi
í Grindavík en aðstæður til að spila
knattspyrnu voru erfiðar, rigning og
sterkur vindur af suð-austri.
Grindvískar hafa fengið á sig 28 mörk
Keflavík gerði 2:2 jafntefli við HK/
Víking í fyrstu deild kvenna .Leikur-
inn fór fram í blíðskaparveðri á Nettó-
vellinum í Keflavík. Keflvíkingar
byrjuðu betur og var það var Aníta
Lind Daníelsdóttir sem skoraði fyrsta
markið fyrir Keflavík á 15. mínútu.
Margrét Sif Magnúsdóttir jafnaði fyrir
HK/Víking á 53. mínútu og Linda
Líf Boama kom HK/Víking yfir á 65.
mínútu. Þannig var staðan þangað til
á lokamínútunni þegar Sveindís Jane
Jónsdóttir kom boltanum yfir mark-
línuna hjá HK/Víking fyrir Keflavík.
Lokastaðan var því 2:2 og Keflavíkur-
stúlkur eru í þriðja sæti í fyrstu deild
kvenna.
Keflavíkurstúlkur gerðu jafntefli við HK/Víking
Njarðvíkingar eru í 2. sæti 2. deildar
Íslandsmótsins í knattspyrnu en þeir
töpuðu á heimavelli sl. laugardag fyrir
Aftureldingu sem er um miðja deild.
Lokatölur urðu 0-3.
Víðismenn gerðu hins vegar betri ferð
til Hafnar í Hornafirði og unnu magn-
aðan 3-5 sigur. Víðismenn fengu á sig
mark á 36. mín. en svöruðu með jöfn-
unarmarki á 12. mín. Helgi Þór Jóns-
son skoraði. Síðan komu fjögur mörk
á tuttugu mínútna kafla frá Aleks-
andar Stojkovic, Dejan Stamenkovic,
Helga Þór Jónssyni og Róberti Erni
Ólafssyni. Sindramenn mættu með
tvö mörk í lokin.
Njarðvík er með 14 stig, tveimur á
eftir Magna sem er í efsta sæti. Vestri
er í 3. sæti með 13 stig og Víðir í 4. sæti
með 11 stig.
Í 3. deild eru Þróttur í Vogum í 5. sæti
með 10 stig og Reynir í Sandgerði eru
í þriðja neðsta sæti með aðeins 4 stig.
Sandgerðingar töpuðu fyrir Kára 4-1 í
síðustu umferð og Þróttarar unnu Dal-
vík/Reyni 3-1. Mörk Þróttar skoruðu
Tómas Ingi Urbancic og hinn síungi
Magnús Ólafsson sem skoraði þriðja
markið. Annað markið var sjálfsmark
Dalvíkur/Reynis.
Njarðvíkingar og Víðismenn í toppbaráttu
SPORT
Sumarhátíð
Heiðarsels