Víkurfréttir - 22.06.2017, Qupperneq 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Hilmar Bragi á VF
ætlar að fljúga með mig í
drónanum upp í vitann á
Garðsakga. Sjáumst þar!
STARFSMAÐUR Í ÁHAFNAVAKT
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á vef Icelandair www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 30. júní 2017.
Icelandair óskar eftir starfsmanni í áhafnavakt á Keflavíkurflugvelli
sem hefur áhuga á kreandi starfi í hröðu og síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.
Starfssvið:
- Dagleg áhafnavakt
- Tengiliður milli áhafna og ugdeildar
- Fylgjast með og uppfæra vinnuskrá áhafna
- Samskipti við áhafnahótel og áhafnir á erlendri grundu
- Halda utan um áætlunar- og leiguugsskrá áhafna
- Samskipti við viðskiptavini ugdeildar
auk annarra verkefna
Hæfniskröfur:
- Góð menntun/reynsla sem nýtist í star
- Mjög góð enskukunnátta er nauðsynleg
þar sem hluti af starnu fer fram á ensku
- Góð tölvufærni
- Jákvætt hugarfar, frumkvæði og rík þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
og góð samstarfshæfni
Við leitum að liðsmanni til framtíðarstarfa með framúrskarandi samskiptahæleika
og markvissan áhuga á að ná góðum árangri í star.
Hér er um vaktavinnu að ræða. Starfsstöð er á Keavíkurugvelli.
Nánari upplýsingar veita:
Álfheiður Sívertsen, netfang: alfheidur@icelandair.is
Kristín Björnsdóttir, netfang: starf@icelandair.is
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur
Ekki átti ég von á því að verða vitni
að einhvers konar formi sjálfsþurftar-
búskaps nú á dögum. Það breyttist í
síðustu viku þegar ég heimsótti Vestfirði
í vettvangsferð með stjórn Íslandsstofu,
í þeim tilgangi að heimsækja fyrirtæki
sem starfa í ferðaþjónustu, sjávarútvegi
og útflutningi.
Þegar talað er um ferðaþjónustu, sjávar-
útveg og útflutning þá hugsar maður
ósjálfrátt um mikinn vöxt, hagnað og
möguleika á frekari skattlagningu. Þrátt
fyrir 35% aukningu í fjölda ferðamanna
til landsins þá eru hótel á Vestfjörðum
að kljást við 30% samdrátt seldra gisti-
nátta milli ára. Styrking krónunnar
hefur einnig hoggið umtalsverð skörð
í framlegð sjávarútvegsins en fyrirtæki
eins og Arnarlax, sem er með starfssemi
á Bíldudal, hefur náð að verjast að mestu
leyti með því að binda allan kostnað
nema laun við evruna. Það sama á við
hjá iðnaðarfyrirtækjum eins og Íslenska
kalkþörungafélaginu ehf. og húðlækn-
ingafyrirtækinu Kerecis sem flytja út
nánast alla sína framleiðslu og blæðir
með sífellt sterkari krónu. Þessar at-
vinnugreinar sem eru burðarásar at-
vinnulífsins á Vestfjörðum blæðir öllum
í núverandi ástandi. En neyðin kennir
naktri konu að spinna og allt það og með
þrautseigjuna að vopni hafa þau aðlagað
sinn rekstur að því marki að nánast er
um sjálfsþurftarbúskap að ræða. Haldi
áfram sem horfir munu fyrirtækin flýja
byggð og mögulega land. Það versta er
að þessi þróun er ekki eingöngu bundin
við Vestfirði.
Íslenska krónan er sem fyrr í aðalhlut-
verki í efnahagslífinu, þökk sé galla í
lögum um Seðlabanka Íslands. Í 3. gr.
þessara laga er meginhlutverk bank-
ans skýrt sem „að stuðla að stöðugu
verðlagi. Seðlabankinn skal stuðla að
framgangi stefnu ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum, enda telji hann það
ekki ganga gegn meginmarkmiði sínu.“
Stöðugt verðlag, lesist: lág verðbólga,
er meginmarkmiðið. Stjórntæki Seðla-
bankans eru stýrivextir, en eftir að öll
gjaldeyrisviðskipti í landinu voru sett
undir valdsvið bankans í kjölfar banka-
hrunsins þá hefur stjórntæki bankans
verið gengi íslensku krónunnar. Þar
sem bankinn stýrir genginu og stjórn-
endur bankans eru metnir út frá lágri
verðbólgu þá er ekki flókið að sjá fyrir
afleiðingarnar; sterk króna (what you
measure is what you get). Þessi skekkja
í lögunum og völd Seðlabankans eftir
hrun hafa gert bankann að miklu stærri
geranda í íslensku efnahagslífi en ríkis-
stjórnina.
Seðlabankinn býr þannig til falska vel-
megun til skemmri tíma í gegnum auðs-
áhrif sem verður með þessu áframhaldi
fylgt eftir með vænu efnahagshruni
þegar fjöldi ferðamanna hrynur og eftir
standa illa nýtt hótel og ferðaþjónustu-
fyrirtæki sem ekki geta staðið við sínar
skuldbindingar. Pendúllinn sveiflast
alltaf of langt áður en jafnvægi er náð og
því eru fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar
um að auka álögur á ferðþjónustuna
mögulega vanhugsaðar og gætu hraðað
vegferð okkar inn í næstu kreppu, eða?
Sjálfsþurftarbúskapur og ISK
■ Sólseturshátíð Garðmanna verður haldin hátíðleg um
komandi helgi, en hátíðin hefur verið árlegur viðburður
í Garði frá árinu 2005. Um er að ræða fjölskylduhátíð
sem haldin er með fjölbreyttri dagskrá. Má þar nefna
stuttar gönguferðir, menningar- og sögutengda fræðslu
fyrir börn og fullorðna, fjöruferð, leiki og leiktæki, tón-
listaratriði og málverkasýningar. Sólseturshátíðin hefst
í dag, fimmtudag, og stendur til sunnudagsins. Laugar-
dagurinn verður þó sem fyrr hápunktur hátíðarinnar en
þá verður vegleg fjölskyldudagskrá á Garðskaga.
Einar Karl Vilhjálmsson, framkvæmdarstjóri Víðis sem
einnig sér um öryggis- og upplýsingasíma hátíðarinnar,
sagði í samtali við Víkurfréttir að allur undirbúningur gengi
vel fyrir sig.
„Við förum í kvöld að setja upp allt svæðið á Garðskaga. Þar
eru bara sjálfboðaliðar, leikmenn félagsins, stjórn og aðrir
í kringum félagið. Annars er allt annað klappað og klárt.
Stemningin í bænum er þokkaleg en það eru ennþá þó
nokkrir í burtu úr bænum.“
Sólseturshátíð í Garði um helgina