Víkurfréttir - 29.06.2017, Blaðsíða 2
2 fimmtudagur 29. júní 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Sigurjónsbakarí er eina bakaríið í Keflavík. Það má segja að bakaríið sé rót-
gróið í Hólmgarði, þar sem Sigurjón Héðinsson hefur bakað í næstum þrjá
áratugi. Sigurjónsbakarí hefur nú fært sig um set og opnað á nýjum og betri
stað í sama húsi.
Sigurjónsbakarí opnaði á dögunum
stærra bakarí og kaffihús í Hólmgarði.
Þar er öll framsetning á vöruframboði
betri og þá hefur Sigurjónsbakarí
stóraukið þjónustu við viðskiptavini.
Eldri afgreiðsla bakarísins var þröng
og hillupláss lítið. Nú er allt stærra og
bjartara. Hægt er að setjast við borð
og fá sér rjúkandi kaffi og nýtt bakk-
elsi. Í hádeginu er svo í boði súpa og
brauð. Bakaríið er opið virka daga kl.
7 til 17 og um helgar frá kl. 8 til 17.
Sigurjón Héðinsson, bakarameistari,
sagði í samtali við Víkurfréttir að hann
hafi viljað opna barnvænt bakarí. Nú
er góð aðstaða fyrir börnin, barna-
horn og salernisaðstaða þar sem hægt
er að skipta á minnstu krílunum.
Sigurjón bakari hefur sjálfur séð um
uppbyggingu á nýja bakaríinu með
góðri hjálp. Hann tók sér góðan tíma
í verkið en framkvæmdir hófust fyrir
einu og hálfu ári síðan.
Framleiðsla Sigurjónsbakarís er enn
á sama stað í húsinu og gamla af-
greiðslan verður tekin undir veislu-
þjónustu Sigurjónsbakarís. Sigurjón
er stór þegar kemur að smurbrauði
og snittum fyrir veislur ýmis konar.
Hann fær nú betri aðstöðu til að sinna
því.
Talsverðar framkvæmdir eru nú í
Hólmgarði en þeim mun ljúka síðar á
árinu. Sigurjón á von á því að stækka
enn frekar þegar fram líður en hann
er að festa kaup á meira rými í húsinu.
Talsvert af verslunar- og þjónustu-
rými sendur þó ennþá autt í húsinu.
Fyrir nokkrum árum flutti Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins úr húsinu.
Það rými stendur ennþá óbreytt frá
því ríkið flutti út og bíður þess að þar
verði sett upp starfsemi.
Sigurjónsbakarí
opnar kaffihús í Hólmgarði
Veggurinn er klæddur með við
sem kom úr umbúðum utan af
nýjum ofni í bakaríinu.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Hægt er að setjast við borð á kaffi-
húsinu í bakaríinu og njóta veitinga.
Sigurjón Héðinsson bakari í
nýja bakaríinu. Hann hefur
verið bakari í 29 ár og aldrei
verið sprækari en einmitt nú.
Tæplega tíu kílómetrar lag-
færðir á Suðurnesjum í sumar
●● Garðmenn●óánægðir●með●litlar●vegaframkvæmdir
Framkvæmdum á Reykjanesbraut
er að mestu lokið, en samtals verða
lagðir rúmlega sex kílómetrar á ak-
reinum í sumar og rúmlega fjórir
kílómetrar á öxlum brautarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni verður ráðist í fleiri fram-
kvæmdir í sumar, meðal annars á
Reykjanesbraut, Hafnarvegi og á
Garðskagavegi, bæði milli Reykja-
nesbrautar og Garðs og á milli
Garðs og Sandgerðis. Einnig verður
áfram unnið við holuviðgerðir á
Reykjanesbraut.
Á Hafnarvegi verða lagaðar axlir og
klæðing lögð yfir, en áætlað er að þær
framkvæmdir eigi sér stað í júlí eða
ágúst. Þá verður Garðskagavegur milli
Garðs og Sandgerðis einnig lagfærður
á svipuðum tíma og Hafnarvegurinn,
en þar verða gerðar kantviðgerðir og
lagt verður yfir kanta með klæðingu.
Á Garðskagavegi milli Reykjanes-
brautar og Garðs verður rúmur kíló-
metri malbikaður, á vegkaflanum
nálægt Rósaselshringtorgi, og nær
Garði verður malbik dregið í kanta
á rúmlega tveggja kílómetra kafla,
en þær framkvæmdir eru áætlaðar í
byrjun júlí.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur
lýst yfir vonbrigðum með þá við-
haldsáætlun sem fram kemur í svari
Vegagerðarinnar. Slæmt ástand Garð-
vegar og Garðskagavegar kallar á mun
meira viðhald og úrbætur en Vega-
gerðin áformar, segir í gögnum bæjar-
ráðs Garðs.
„Það verður að fara að gera hlut-
ina af alvöru og endurbyggja vega-
kerfið hér fyrir sunnan þannig að
hugsað sé tuttugu ár fram í tímann,“
segir Guðbergur Reynisson, einn af
stofnendum hópsins „Stopp hingað
og ekki lengra“, en hópurinn hefur
barist fyrir tvöföldun Reykjanes-
brautarinnar ásamt ýmsu öðru til að
auka umferðaröryggi landsmanna.
Guðbergur segir frábært að sjá allar
þær vegaframkvæmdir sem komnar
séu í gang á suðvesturhorninu. „Við
Krísuvíkuraf leggjara eru fram-
kvæmdir við mislæg gatnamót í fullum
gangi, vinna er hafin við hringtorgin
tvö á Aðalgötu og Þjóðbraut og miklar
lagfæringar á Reykjanesbrautinni,
sem mættu þó vera enn meiri. Aðrir
vegir hér eru komnir að þolmörkum
og ber að nefna fyrstan Grindavíkur-
veg. Mér finnst til skammar hversu
langan tíma öryggisúttekt tekur eða
hvað það er sem tefur ákvarðanatöku.
Hafnaveg þyrfti að lagfæra frá byrjun
til enda. Garð- og Sandgerðisvegir eru
líka komnir að þolmörkum og Vega-
gerðin getur ekki hunsað þessa vegi
eða hent í þá smáaurum.“
Hópurinn bíður eftir svari frá sam-
gönguráðherra og vegamálastjóra
varðandi erindi hópsins um hvort
ekki megi hefjast handa við hönnun
tvöföldunar á þeim köflum Reykja-
nesbrautarinnar sem eftir eru. Guð-
bergur segir þá vinnu þurfa að gerast
hvað svo sem ákveðið verði í gjald-
tökumálum.
„Fyrir hönd Stopp hingað og ekki
lengra-hópsins og allra íbúa Suður-
nesja skora ég á þingmenn kjör-
dæmisins að vinna betur í að tryggja
að svæðið hér fái almennilega fjár-
mögnun svo hægt sé að klára þessar
löngu tímabæru vegaumbætur. Ef það
er vilji þá er vegur.“
●● Hópurinn●„Stopp●hingað●og●ekki●lengra“●vill●meiri●framkvæmdir
Vegagerðin getur ekki
hunsað þessa vegi
Frá malbikun á Reykjanesbraut
við Grindavíkurveg á dögunum.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Kóngareið á
laugardaginn
Karlakvartettinn Kóngar mun hjóla í
allar kirkjur á Suðurnesjum þann 1.
júlí nk. og taka lagið en markmiðið
er að safna áheitum í orgelsjóð Kefla-
víkurkirkju.
Kóngar munu hjóla á milli kirkna á
einum degi og eru allir velkomnir að
taka þátt og hjóla með.
Þeir munu syngja í hverri kirkju
nokkur lög og sálma og verður bíll á
staðnum sem getur hvílt hjólreiða-
menn á leiðinni ef þörf krefur en
leiðin er samtals 113 km. Þeir sem vilja
sleppa hjólreiðaferðinni en hlýða á þá
kappa geta nýtt sér kóngarútuna verð
kr. 1.000. Lagt verður af stað frá Kefla-
víkurkirkju kl. 9:00.
Við hvetjum sem flesta til að heita á,
en allur ágóði fer í orgelsjóð Kefla-
víkurkirkju. Þeir sem vilja styðja kóng-
areiðina geta lagt inn á reikn. 0121-15-
350005, Kt. 680169-5789.