Víkurfréttir - 29.06.2017, Page 10
10 fimmtudagur 29. júní 2017VÍKURFRÉTTIR
Deildarstjóri
Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Sumarstörf á B-tímabili
Leikskólakennarar
Þroskaþjálfi
Textílkennsla á mið- og elsta stigi
Leikskólakennari
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
LEIKSKÓLINN HJALLATÚN
HEIÐARSKÓLI
VINNUSKÓLI 9. OG 10. BEKK
LEIKSKÓLINN HJALLATÚN
HÁALEITISSKÓLI
HEIÐARSKÓLI
LEIKSKÓLINN HOLT
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Keflavík er að hverfa í skóg! Þetta er
það sem blasir við þeim sem skoða
gróðurfar í bænum. Gróður í Reykja-
nesbæ hefur tekið mikinn vaxtar-
kipp á síðustu árum. Hlý sumur og
mildir vetrarmánuðir eiga örugg-
lega stóran þátt í því. Hús eru víða að
hverfa í trjágróðri og opin svæði eru
orðin mikið gróin. Það sést vel t.a.m.
á Vatnsholtinu og við gönguleiðir,
m.a. á svokölluðu rómantíska svæði,
ofarlega í Keflavík.
Á árunum upp úr 1950 er byggð farin
að þróast ofan Hringbrautar í Kefla-
vík. Húsin við Skólaveg, gengt gamla
malarvellinum, eru byggð á þessum
árum. Það voru allt starfsmenn varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli sem
tóku sig saman og byggðu húsin við
götuna og hjálpuðust að við húsbygg-
ingar.
Jón Stefánsson og Guðrún Sigurbergs-
dóttir, Jón og Gunna, voru fyrst til
að flytja inn í hús við Skólaveg ofan
Hringbrautar en þau byggðu að Skóla-
vegi 22. Þau fluttu inn snemmsumars
1953. Jón var þá starfsmaður varnar-
liðsins en þar vann hann í 10 ár áður
en hann tók við skósmíðaverkstæði
tengdaföður síns, sem hann rak þar
til fyrir fáeinum árum. Jón verður ní-
ræður í haust.
Heiðurshjónin Jón og Gunna á Skóla-
vegi 22 tóku á móti blaðamanni Vík-
urfrétta. Jón hafði þá nýverið lokið
við slátt í garðinum en þau hjón hugsa
vel um garðinn við heimili sitt. Í garð-
inum þeirra eru tuttugu tegundir af
trjám og þau hæstu örugglega um og
yfir sex metra há. Gullregnið er þar í
uppáhaldi en það blómstrar ekki strax.
Trén eru allt frá því að vera þessi hefð-
bundnu íslensku yfir í tré af erlendum
uppruna. Þannig eru tvö eplatré í
garðinum þeirra en hvorugt þeirra
hefur gefið af sér ávöxt.
Aðspurð hvenær fyrstu trjáplönturnar
hafi verið gróðursettar, segir Gunna
að það hafi verið strax. Hún segir að
í gamla daga hafi verið talað um að
það væri varla hægt að rækta rabbar-
bara í Keflavík. Jón er hins vegar alinn
upp austur á Héraði og með Hall-
ormsstaðarskóg sem leiksvæði sitt í
æsku. Hann hafi því viljað hafa trjá-
gróður fyrir augunum og strax hafið
gróðursetningu í garði þeirra hjóna
og hugsað um hann alla tíð síðan.
Trén veita í dag mikið skjól og draga
úr vindi. Að sama skapi er útsýnið
frá heimilinu við Skólaveg ekki eins
mikið og í gamla daga, en það kemur
ekki að sök að sögn þeirra hjóna.
●● Jón●Stefánsson●og●Guðrún●Sigurbergsdóttir●settu●niður●fyrstu●trén●árið●1953
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Skógi vaxin Keflavík með Skólaveginn fremstan og svo horft yfir byggðina til norðurs. VF-myndir: Hilmar Bragi
Heiðurshjónin Guðrún Sigurbergsdóttir og Jón Stefánsson í garðinum sínum að Skóla-
vegi 22 í Keflavík. Þar fluttu þau inn í nýbyggt hús snemmsumars 1953 og hófu þegar
að gróðursetja.
KEFLAVÍK HVERFUR Í SKÓG!
Sirena í blóma.
Jón Stefánsson hugar að gróðri við innkeyrsluna að heimilinu við Skólaveg 22.
Súluöspin þarf
ekki mikið pláss,
er grönn og
spengileg og rís
hátt til himins.
Grindverkið að Skólavegi 22 var staðsteypt í bílskúrnum.
Grindverk sem þessi voru algeng á árum áður og voru mikil prýði.
Koparreynir með fallegum blómum.
Gunna virðir fyrir sér garðinn
að Skólavegi 22 en Jón hafði
nýlokið við að slá blettinn.
Rós í garðinum sem mun
blómstra á næstu dögum.