Víkurfréttir - 29.06.2017, Page 12
12 fimmtudagur 29. júní 2017VÍKURFRÉTTIR
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Agnes Agnarsdóttir,
Heimavöllum 3, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, miðvikudaginn 21. júní.
Útförin fer fram í Keflavíkurkirkju föstudaginn 7. júlí kl. 13.
Gunnlaugur Guðmundsson
Fanney Gunnlaugsdóttir
Guðmundur Davíð Gunnlaugsson Klara Hrönn Sigurðardóttir,
Júlíus Geirmundur Gunnlaugsson Elín Ása Einarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóhanna Sæmundsdóttir,
Vallargötu 25, Keflavík,
sem lést mánudaginn 12. júní, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju, föstudaginn 30. júní kl. 13:00.
Valdimar S. Gunnarsson
Sæmundur Valdimarsson Herdís Óskarsdóttir
Gunnar B. Valdimarsson Sigríður H. Guðmundsdóttir
Sveinn Valdimarsson Brynja Eiríksdóttir
Rúnar Gísli Valdimarsson Guðrún Huld Kristinsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Birgir Sveinsson,
Njarðarvöllum 6,
Reykjanesbæ,
lést á Landsspítala, Fossvogi, 21. júní.
Auður Guðvinnsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Ólafsson,
Jói á Lindinni,
lést á heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14. júní s.l. Útför hans fer
fram frá Ytri-Njarðvikurkirkju mánudaginn 3. júli kl. 13:00.
Jóna Björg Georgsdóttir
Guðbjörg Lilja Jónsdóttir Sigurður Ásgrímsson
Kristján Jóhannsson Svanhildur Eiriksdóttir
Rut Jónsdóttir Þórarinn Sveinn Jónasson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Bílaumboðið Askja hefur formlega
samið við fyrirtækið Bílar & Hjól
í Reykjanesbæ sem þjónustuverk-
stæði fyrir KIA bíla á Suðurnesjum.
Bílar & Hjól hafa annast þjónustuna
fyrir Öskju frá árinu 2011 en það er
ekki fyrr en nú sem formlega hefur
verið gengið frá samningum milli
fyrirtækjanna.
Mikill vöxtur hefur verið í sölu KIA
bíla á Suðurnesjum á síðustu árum en
frá árinu 2011 hefur K. Steinarsson í
Reykjanesbæ selt um 2.000 KIA bíla
á svæðinu.
Garðar Gunnarsson stofnaði Bíla &
Hjól árið 2003. Fyrst annaðist verk-
stæði hans bílasprautun og réttingar
ásamt tjónaskoðun á bifreiðum fyrir
tryggingafélögin. Starfsmenn fyrir-
tækisins voru þá þrír en eftir að verk-
stæðið tók að sér þjónustuviðgerðir
og þjónustuskoðanir fyrir Öskju á
KIA bílum hefur fyrirtækið stækkað
jafnt og þétt og í dag eru starfsmenn
átta talsins og má segja að þjónustan
við KIA bílana hafi skapað fimm störf
hjá fyrirtækinu. Með samningi við
Öskju er starfsmönnum fyrirtækisins
tryggð sérhæfð þjálfun og fræðsla í
öllu sem kemur að KIA bílum.
KIA bílar eru með sjö ára ábyrgð svo
framarlega sem þeir fái sínar reglu-
bundnu þjónustuskoðanir. Þær
verði að fara fram á viðurkenndum
þjónustuverkstæðum en ekki smur-
stöðvum.
Bílaþjónusta er orðin stór atvinnugrein
í Reykjanesbæ. Fjölmörg þjónustuverk-
stæði eru í bænum, enda hefur bæði
íbúum fjölgað ört og þá skipta bílaleigu-
bílar á svæðinu þúsundum og verkstæði
spretta upp í kringum þær. Garðar segir
að það sé nóg að gera í bílaviðgerðum af
öllu tagi. Það sé í raun vitlaust að gera og
í raun anni menn ekki eftirspurn þegar
kemur að viðgerðum og málningar-
vinnu.
Þar sem KIA bílar eru fjölmargir á
Suðurnesjum fara margir bílar í
gegnum þjónustu- og málningar-
verkstæðið hjá Garðari í hverri viku.
Lætur nærri að hans fólk afgreiði um
tug bíla á hverjum virkum degi.
Garðar segir að í dag skipti tölvur í
bílum orðið miklu máli og með því að
tengja bíl við tölvu og lesa af honum
upplýsingar megi finna bilanir sem
útilokað væri að finna án tölvugrein-
ingar. Þess vegna leggur hann áherslu
á að eigendur KIA bíla komi á sérhæfð
KIA verkstæði eins og Toyota-eig-
endur fari á sérhæfð Toyota verkstæði
o.s.frv.
Við báðum Garðar að horfa til baka
og segja okkur hvað hefði breyst frá
því hann stofnaði sitt verkstæði árið
2003. Hann sagði tæknina hafa breyst
mikið en vildi þó fara aðeins lengra
aftur í tímann. Félagi hans hafi stofnað
bílasprautun árið 1990. Þá var notast
við heimasmíðaðan málningarklefa
og kvittanahefti. Það er eitthvað sem
gengi ekki í dag. Þá er mikið meira
um það í dag að skipt sé um bílaparta
í stað þess að rétta þá sem skemm-
ast. Það séu helst afturbretti bíla sem
þurfi að rétta því þau séu soðin föst
við skrokk bílsins og það því í raun
meiri skemmd á bílnum að losa um
allt brettið í stað þess að rétta og mála
upp á nýtt.
Í dag er vöntun á starfsmönnum í
bílaviðgerðir. Verkstæðin eru eins
og aðrir að keppa við flugvöllinn
um starfsmenn. Vaktavinnan heillar
marga en það er eitthvað sem þjón-
ustuverkstæðin geta ekki boðið.
Garðar sagði að verkstæðin væru þó
að bjóða fín laun en því miður væri
lítil endurnýjun í bransanum. Hann
sagði líka að bílaviðgerðir væru ekki
auðveld vinna. Þar er hröð þróun og
mikil endurmenntun t.a.m. hjá bif-
vélavirkjum. Garðar segist þó vera
heppinn með starfsfólk og sé með
starfsmenn sem brenna af áhuga fyrir
starfinu.
Viðskipti & atvinnulíf á Suðurnesjum
Bílar & Hjól þjónusta bíla frá KIA
-yfir 2000 KIA bílar seldir á Suðurnesjum frá 2011
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, Harpa
María Sturludóttir og Garðar Gunnarsson, frá Bílar &
Hjól, og Óskar Páll Þorgilsson, forstöðumaður þjón-
ustusviðs Öskju, við undirritun samninga um þjónustu-
verkstæði KIA á Suðurnesjum. VF-mynd: Hilmar Bragi
Bílar & Hjól eru í þessu húsi við Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ.
KIA bifreið í þjónustuskoðun.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, og langalangamma,
Stefanía Bergmann,
Hrafnistu, Reykjanesbæ,
áður Skólavegi 14, Keflavík,
lést þann 21. júní.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 13.
Hulda Matthíasdóttir Magnús Björgvinsson
Stefán B. Matthíasson Ingunn Ingimundardóttir
Ingólfur H. Matthíasson Sóley Birgisdóttir
Magnús B. Matthíasson Mekkín Bjarnadóttir
Guðlaug B. Matthíasdóttir Birgir Þór Runólfsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Unnur Magnúsdóttir,
Faxabraut 11, Keflavík,
lést á Hlévangi miðvikudaginn 21. júní.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 4. júlí kl. 13.
Magnús Kristinn Ásmundsson María M. Sissing
Þórarinn Ásmundsson Arndís Kristjánsdóttir
Hildur Kristín Ásmundsdóttir Ásþór Kjartansson
Jón Örn Ásmundsson Jóhanna Sturlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.