Víkurfréttir - 29.06.2017, Page 15
15fimmtudagur 29. júní 2017 VÍKURFRÉTTIR
Misjafnt gengi hjá Suðurnesjaliðunum í knattspyrnu
Grindvíkingar náðu
einu stig í Kópavogi
Grindavík gerði markalaust jafntefli
við Breiðablik í Pepsi-deild karla í
vikunni. Breiðablik byrjaði leikinn
betur og voru betri allan fyrri hálf-
leikinn. Grindvíkingar komu ákveðn-
ir inn í seinni hálfleikinn og komust í
gott færi þegar Aron Freyr Róberts-
son skaut að marki en skotið fór fram
hjá markinu. Markalaust jafntefli því
staðreynd. Grindavík er því áfram í
öðru sæti deildarinnar, tveim stigum
á eftir toppliði Vals. Næsti leikur
Grindavíkur er heima við KA sunnu-
daginn 9. júlí.
Grindavíkurstúlkur komnar
áfram í Borgunarbikarnum
Grindavík vann Tindastól 3:2 í Borg-
unarbikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu í Grindavík sl. föstudag. El-
ena Brynjarsdóttir skoraði fyrstu tvö
mörk Grindavíkur. Fyrsta markið
kom á 33. mínútu og það seinna á 41.
mínútu. Isabel Jasmín Almarsdóttir
skoraði þriðja mark Grindavíkur
tveimur mínútum síðar. Staðan var
3:0 fyrir Grindavík í hálfleik. Emily
Key skoraði tvö mörk fyrir Tindastól
í seinni hálfleik en lokastaðan 3:2 og
Grindavík komið áfram í undanúrslit.
Keflavík í þriðja sæti
eftir sigur á Þór Akureyri
Keflavík sigraði Þór Akureyri 1:0 í
Inkasso deildinni í Keflavík á laugar-
daginn. Það var Jeppe Hansen sem
skoraði eina mark leiksins á 57. mín-
útu. Það voru ekki mörg marktæki-
færi í leiknum en Keflvíkingar nýttu
færin sín betur og uppskáru markið
úr einu þeirra. Frans Elvarsson átti
góðan leik og var gríðarlega vinnu-
samur og duglegur. Keflavík komst í
þriðja sæti deildarinnar við þennan
sigur og eru einu stigi á eftir Þrótti
Reykjavík sem er í öðru sæti.
Njarðvík á toppnum
eftir sigur á Vestra
Njarðvík sigraði Vestra 4:2 á Ísafirði
í 2. deild um síðustu helgi. Fyrsta
mark Njarðvíkur var sjálfsmark á 20.
mínútu. Annað markið gerði Andri
Fannar Freysson á 35. mínútu. Staðan
var 2:0 í hálfleik. Aurelien Norest
minnkaði muninn fyrir Vestra á 61.
mínútu. Arnar Helgi Magnússon
jók muninn aftur með marki á 66.
mínútu. Tvö mörk komu í uppbótar-
tíma. Fyrst var það Þórður Gunnar
Hafþórsson sem skoraði fyrir Vestra
á 92. mínútu og síðan Krystian Wik-
torowicz á 93. mínútu fyrir Njarðvík.
Njarðvík er á toppnum með 17 stig
ásamt Magna. Vestri er síðan í 3. sæti
með 13 stig. Næsti leikur Njarðvíkur
er við nágrannana úr Garðinum.
Markalaust jafntefni í Garðinum
Víðir og Tindastóll gerðu markalaust
jafntefli í 2. deild karla í Garðinum
á föstudaginn. Þetta var fyrsti leikur
Víðis í deildinni þar sem þeir fá ekki á
sig mark. Víðir er með tólf stig í 5. sæti
deildarinnar.
Keflavíkurstúlkur töpuðu
fyrir toppliði Þróttar
Keflavík tapaði fyrir 1:0 Þrótti Reykja-
vík á Nettó-vellinum í Keflavík í 1.
deild kvenna á þriðjudagskvöldið.
Það var Michaela Mansfield sem
skoraði sigurmarkið rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks fyrir Þrótt. Ekkert mark kom
í seinni hálfleik og því var lokaniður-
staðan 1:0 fyrir Þrótti. Keflavík er nú í
fimmta sæti með 11 stig.
Þróttur Vogum sótti
eitt stig í Garðabæinn
Þróttur Vogum gerðu 3:3 jafntefli
við KFG á Samsung-vellinum um
helgina. KFG byrjaði leikinn betur og
voru komnir 2:0 yfir þegar 27 mín-
útur voru búnar af leiknum. Þrótt-
arar náðu að minnka muninn fjórum
mínútum síðar. Fyrsta mark Þróttar
gerði Andri Björn Sigurðsson á 31.
mínútu. Hilmar Þór Hilmarsson gerði
annað markið á 68. mínútu og Krist-
inn Aron Hjartarson það þriðja á 89.
mínútu. Þróttarar eru í 5. sæti með 11
stig og eiga næst leik við Vængi Júpi-
ters heima.
Reynir í næst neðsta sæti
eftir enn eitt tapið
Reynir tapaði 3:0 fyrir KF frá Fjalla-
byggð í Sandgerði um helgina í 3.
deild karla. Það gengur ekki vel hjá
Reyni þessa dagana og enn eitt tapið
staðreynd. Reynir er með fjögur stig
og er í næst neðsta sæti deildarinnar.
Næsti leikur Reynis er við KFG á
Samsung-vellinum í Garðabæ á föstu-
daginn.
Íbúðakjarni við Túngötu 15-17
Starfsmenn óskast til starfa í íbúðakjarna við Túngötu 15 - 17 í Grindavík sem heyrir undir heima-
þjónustudeild Grindavíkurbæjar. Störfin byggja á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Um er að
ræða vaktavinnu og er starfshlutfall eftir samkomulagi.
Helsu verkefni og ábyrgð:
• Einstaklingsmiðaður og persónulegur stuðningur við þjónustunotendur í þeirra daglega lífi
• Samvinna við starfsfólk og þátttaka í faglegu starfi
• Almenn heimilisstörf
Menntun, hæfni og reynsla:
• Reynsla af störfum með fötluðu fólki æskileg
• Góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þolinmæði og hvetjandi í starfi
• Æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi
stéttarfélag.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hlín Sigurþórsdóttir í síma 426-9909 eða á
netfanginu hlin.s@grindavik.is
Umsóknum með upplýsingum um starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið
hlin.s@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí næstkomandi.
ATVINNA
LAUSAR STÖÐUR VIÐ
FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURNESJA
SÉRKENNARI / ÞROSKAÞJÁLFI
KENNARI Í RAFIÐNGREINUM
Óskum eftir að ráða sérkennara eða þroskaþjálfa og kennara í rafiðngreinum næsta skólaár.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun, réttindi og reynslu sem hentar kennslu á viðkomandi
sviðum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfni og áhuga á vinnu með ungu
fólki.
Starf sérkennara eða þroskaþjálfa felur meðal annars í sér vinnu með nemendum á starfsbraut
skólans sem þarfnast sérstakrar umönnunar og hæfingar.
Umsóknum með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og annað sem viðkomandi telur
skipta máli skal skila til skólameistara eigi síðar en 20. júlí 2017.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttar-
félags.
Nánari upplýsingar má fá hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, kras@fss.is og Guð-
laugu M. Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, gp@fss.is. Öllum umsóknum verður svarað
eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna upplýsingar um hann og sjá myndir úr skóla-
lífinu.
Skólameistari
Vantar starfsmann á verkstæði
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að ráða
mann í vinnu við bílasprautun og réttingar.
Upplýsingar í síma 421-4117.
Íþróttir á Suðurnesjum
●● Rétt●misstu●af●meistaratitlinum●sjöunda●árið●í●röð
Sundlið ÍRB náði frábærum árangri
á AMÍ, Aldursflokkameistaramóti
Íslands í sundi 2017, sem haldið var
í Laugardalslaug í Reykjavík um
síðustu helgi. Liðið átti þrjá af sex
stigahæstu sundmönnum mótsins
og endaði í öðru sæti ásamt því að fá
verðlaun fyrir að vera prúðasta lið
mótsins. Eva Margrét Falsdóttir var
stigahæst í meyjaflokki ásamt því að
vinna Ólafsbikarinn fyrir frábæran
árangur, Aron Fannar Kristínarson
var stigahæstur í í drengjaflokki og
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir var stiga-
hæst í stúlknaflokki.
Margir sundmenn frá ÍRB urðu Ís-
landsmeistarar á mótinu. Aron Fannar
Kristínarson varð Íslandsmeistari í
400m skriðsundi, 200m skriðsundi,
200m baksundi, 100m baksundi og
400m fjórsundi. Eva Margrét Fals-
dóttir varð Íslandsmeistari í 400m
skriðsundi, 100m bringusundi, 800m
skriðsundi, 200m fjórsundi, 200m
bringusundi og 100m fjórsundi. Eydís
Ósk Kolbeinsdóttir varð Íslands-
meistari í 400m skriðsundi, 200m
skriðsundi, 800m skriðsundi og 400m
fjórsundi. Þá varð Thelma Lind Ein-
arsdóttir Íslandsmeistari í 200m bak-
sundi, 200m skriðsundi, 100m bak-
sundi og 100m skriðsundi. Stefanía
Sigurþórsdóttir varð Íslandsmeistari
í 200m fjórsundi, Gunnhildur Björg
Baldursdóttir í 200m flugsundi og
Fannar Snævar Hauksson í 200m
flugsundi og 100m flugsundi.
Einnig urðu meðlimir Meyjasveitar
ÍRB Íslandsmeistarar í 4 x 50m skrið-
sund en hana skipuðu þær Thelma
Lind Einarsdóttir, Bergþóra Árna-
dóttir, Rebekka Marín Arngeirsdóttir
og Eva Margrét Falsdóttir. Meyjasveit
ÍRB í 4 x 50 m fjórsundi, sem saman-
stóð af þeim Thelmu Lind Einars-
dóttur, Stefaníu Ósk Halldórsdóttur,
Evu Margréti Falsdóttir og Bergþóru
Árnadóttur, urðu einnig Íslands-
meistarar. Þá varð drengjasveit ÍRB í 4
x 100m fjórsundi það einnig, en hana
skipuðu þeir Aron Fannar Kristínar-
son, Kári Snær Halldórsson, Fannar
Snævar Hauksson og Flosi Ómarsson.
Steindór Gunnarsson, einn af þjálf-
urum liðsins segir að annan eins ár-
angur á AMÍ móti hafi þjálfararnir
ekki upplifað. „Sundmennirnir okkar
stóðu sig hreint stórkostlega. Frábært
mót að baki þar sem við misstum
af efsta sætinu með ótrúlega litlum
mun og því varð meistaratitill sjöunda
árið í röð ekki staðreynd. En upp úr
stendur frábært mót hjá frábæru
sundfólki sem lagði allt í sölurnar,
gaf liðinu sínu stig eða sýndi gott for-
dæmi með góðum bætingum eða
öflugri hvatningu.“
Glæsilegur árangur ÍRB
á AMÍ mótinu í sundi
Lið ÍRB var prúðasta lið mótsins.
Eva Margrét með Ólafsbikarinn
og verðlaunapeningana.