Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.06.2017, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 29.06.2017, Blaðsíða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001 S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir Hótel Lögga klikkar ekki frekar en fyrri daginn! Mundi Þeir sem fylgjast eitthvað með íslenskum körfubolta vita að val á erlendum leik- mönnum skiptir miklu máli. Aldr- ei hefur það þó skipt eins miklu máli og þegar „framsóknarleiðin“ var tekin upp af KKÍ og farið var að reka körfu- boltann á Íslandi eins og landbúnaðar- kerfið. Framsóknarleiðin felst auðvitað í hræðsluáróðri um að erlend vara sé mikið dýrari, hún komi í veg fyrir vöxt þeirrar íslensku og útrými henni alger- lega að lokum. Nauðsynlegt sé því að hygla íslensku vörunni á kostnað þeirrar erlendu með kvótasetningu. Íslenska varan er þar af leiðandi komin í einok- unarstöðu, hækkar í verði og minna verður um gæðavöru á markaði. Í ár eru liðin 12 ár síðan Hermann Helgason, fyrrum formaður KKDK, ákvað að ráða og reka Jimmy Miggins frá Keflavík. Þessi mikli heimspekingur var aðeins í þrjár vikur en skildi þó eftir minningar sem lifa að eilífu. Hann var gangandi „one-liner“, þ.e. svör hans og athugasemdir voru yfirleitt í stuttum frösum eða setningum. Ekki ósvipað Chevy Chase, einum besta gamanleikara sögunnar! Jimmy var handviss á fyrsta degi að kaninn í kvennaliðinu væri ekki fyrir karlmenn. Við félagarnir þrættum við hann um stund en sammældumst loks um að hann hringdi í hana til að komast að því. Símtalið var afar stutt en eftir að hún neitaði að hitta hann um kvöldið því hún ætti „partner“ í Bandaríkjunum endaði Minkurinn, eins og hann var kallaður, símtalið með þessari ódauð- legu línu; „Come on girl – it´s not like I´m asking you to bend over and touch your toes“. Þegar við ungu leikmennirnir í Keflavík @haskolinnireykjavik @haskolinn #haskolinnrvk @haskolinn Opið fyrir umsóknir til 1. ágúst Haftengd nýsköpun Nýtt diplómanám í viðskiptafræði með áherslu á sjávarútveg og nýsköpun. Hægt að taka í fjarnámi eða staðarnámi í Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar á hr.is LOKAORÐ Sævars Sævarssonar Framsóknarleiðin og Chevy Chase sóttum Jimmy á FIT-Hostel, þar sem hann gisti í byrjun, spurðum við hann hvort hann vildi ekki koma með okkur á sportbar sem byði upp á „tveir fyrir einn“ stóð ekki á svarinu; „Well, there sure ain´t no happy hour over here...”. Þess ber að geta að Jimmy Miggins var yfirleitt aldrei edrú, hvorki fyrir eða eftir æfingar né leiki. Drukknastur var hann líklega daginn fyrir úrslitaleik Norður- landamóts félagsliða í Osló í Noregi sem við enduðum á að vinna og hann átti glimrandi leik. Við vorum auðvitað ekki fyrr komnir upp í flugstöð á leið okkar til Noregs en okkar maður var búinn að að gera kaupsamning um miniature áfengisflöskur í fríhöfninni. Aðspurður hvað hann væri að hugsa sagði hann; „It´s gonna be a smooooth flight...“. Fljótlega eftir að heim var komið var hann rekinn, ekki aðeins vegna lakrar frammistöðu á vellinum heldur einnig vegna þess að honum þótti sopinn ein- um of góður. Þegar Gunnar Stefánsson var á leið með kappann upp í flugstöð tók hann eftir útvarpi sem Jimmy hafið keypt í Samkaup með „matarmiðum”. Gunnar spyr hann furðulostinn hvort hann ætli virkilega að fara með útvarpið með sér heim enda annað rafmagnskerfi í Bandaríkjunum. Svarið kom á óvart; „No, drive by Hermann´s store! I´m going to throw this into his window...”. Áðurnefndur Hermann hafði þá verið sá sem rak hann og vildi Jimmy launa honum lambið gráa með því að brjóta rúðu í skóverslun hans áður en hann færi úr landi. Já, ekki er öll vitleysan eins en á meðan framsóknarleiðin er við líði er ólíklegt að svona líflegir karakterar heiðri okkur með nærveru sinni. Sveitarfélagið Vogar ákvað f y rir nok k r u að setja sér reglur um heiðursborgara og voru þær samþykktar í bæjar- stjórn í febrúar 2016. Samkvæmt reglunum er heimilt að útnefna hvern þann íbúa, fyrr- verandi sem núverandi, sem heiðursborgara. Við valið skal m.a. hafa í huga að störf viðkom- andi hafi haft veruleg, já- kvæð áhrif á samfélagið, störf og framganga hafi verið til fyrirmyndar og til eftirbreytni og að viðkomandi hafi skapað jákvæða ímynd bæði innan sveitarfélagsins sem utan. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum þann 29. maí 2017 að útnefna tvo heiðursborgara í sveitarfélaginu. Það eru þau Guðrún Lovísa Magnúsdóttir og Magnús Ágústsson. Þau eru bæði fædd árið 1922 og verða því 95 ára í ár. Þau eru jafnframt elstu íbúar sveitarfélagsins. Guðrún Lovísa, sem oftast er kölluð Lúlla, hefur látið til sín taka í samfélaginu á margvíslegan hátt. Hún og eigini- maður hennar, Guðmundur Björgvin Jónsson, eignuðust 12 börn, sem öll komust á legg. Afkomendur Lúllu er nú orðnir 126 talsins, margir þeirra búsettir í Vogunum. Til margra ára hafa afkomendurnir safnast saman á heimili Lúllu á laugardagsmorgnum, þar sem stórfjölskyldan kemur saman hjá ættmóðurinni. Lúlla hefur haldið dag- bók allt frá árinu 1959 og gerir enn. Þannig er til í handriti drög að endur- minningum hennar, sem er ómetanleg heimild um líf fólksins í Vogum og á Vatnsleysuströnd. Í viður- kenningarskjali bæjar- stjórnar segir svo: Bæjar- stjórn samþykkir að Guð- rún Lovísa Magnúsdóttir verði kjörin heiðursborgari Sveitarfélagsins Voga fyrir framlag sitt til mannlífs og menningar í sveitarfélag- inu. Magnús lauk vélstjóraprófi árið 1944. Hann stundaði útgerð frá unga aldri, fyrst á árabátum úr Halakots- vör. Róið var til fiskjar í Garðssjó með eina tíu neta trossu. Upp úr 1940 var frystihús byggt í Vogum og síðar voru kaup fest á mótorbátum. Síðar voru stærri skip keypt og útgerðarfélagið Valdimar stofnað. Útgerðin var alla tíð mikil lyftistöng í samfélaginu. Kona Magnúsar var Hallveig Árnadóttir, sonur þeirra er Árni Magnússon. Magnús lét til sín taka í félagsmálum í sveitarfélaginu, var m.a. í hreppsnefndinni í 28 ár samfleytt frá árinu 1965. Hann var jafnframt oddviti hreppsnefndar í átta ár. Í viðurkenningarskjali bæjarstjórnar segir svo: Bæjar- stjórn samþykkir að Magnús Ágústsson verði kjörinn heiðursborgari Sveitarfélagsins Voga fyrir framlag sitt til atvinnuuppbyggingar, þátttöku í sveitarstjórn sem og fyrir framlag sitt til mannlífs og menningar. Guðrún Lovísa og Magnús heiðursborgarar í Vogum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.