Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.07.2017, Side 11

Víkurfréttir - 13.07.2017, Side 11
11fimmtudagur 13. júLí 2017 VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Starfsmaður óskast í afgreiðslu á Fitjabakka 2 - 4. Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími frá kl. 12:00 til 18:00. Umsóknareyðublöð eru á staðnum einnig er hægt að sækja um á steinar@olis.is Æskilegt að umsækjandi sé ekki yngri en 20 ára. flügger.is Starfsmaður óskast Flügger óskar eftir að að ráða starfsmann/konu í hálfsdagsstarf í verslun sína í Keflavík. Í starfinu felst afgreiðsla á málningarvörum til viðskiptavina auk annars sem tilheyrir starfinu. Vinnutími er 13:00 – 18:00 virka daga og 10:00 – 15:00 annan hvern laugardag. Einnig vantar starfsfólk um helgar í vetur. Umsóknir óskast sendar á netfangið eirag@flugger.com Nánari upplýsingar veitir Einar L. Ragnarsson í verslun Flügger í Reykjanesbæ. Hagnaður ríkis á kostn- að Reykjanesbæjar ■ Það hefur nú feng- ist staðfest að ríkið hefur haft u.þ.b. 10 milljarða í beinan hagnað af sölu fast- eigna á gamla varn- arsvæðinu. Nú er svo komið að flestar fast- eignir eru komnar í hendur einkaaðila sem ætla sér að há- marka arð sinn af þessum fjárfest- ingum. Það setur aukna fjárhags- lega pressu á sveitarfélagið sem þarf að auka þjónustu á svæðinu m.a. með því að fjölga leikskóla- rýmum og stækka grunnskóla, á sama tíma og verið er að glíma við miklar skuldir fortíðar. Reykjanesbær hefur alveg frá árinu 2006 þjónustað þá sem fluttu inn á varnarsvæðið og hafa útgjöld verið umtalsverð umfram tekjur. Á sama tíma setti ríkisvaldið sérlög fyrir sjálft sig til þess að þurfa ekki að greiða fasteignagjöld til sveitar- félagsins og juku þannig enn meira við hagnað sinn. Ætla má að sú hagnaðaraukning hafi numið nokkur hundruð milljónum á kostnað Reykjanes- bæjar. Núverandi og fyrrverandi fjármála- ráðherrar hafa ekki ljáð máls á því að skilja eftir eitthvað af þessum mikla hagn- aði hér á svæðinu. Mé r f i n n s t h i n s vegar eð l i legt að r ík ið endurgreiði okkur fasteignagjöldin sem tekin voru af okkur með sérlögum. Rökin fyrir þessum sérlögum voru að þessar eignir væru ekki í notkun. Ég veit hins vegar ekki til þess að við íbúar höfum fengið einhvern afslátt af fasteignagjöldum bara af því að húsin okkar hafi staðið auð. Það er ósanngjarnt að krefjast þess af Reykjanesbæ að veita þjónustu á sama tíma og tekjumöguleikar sveitarfélagsins voru skertir. Ríkið bara selur og eftirlætur Reykjanesbæ að vinna úr þeim afleiðingum sem þessari sölu fylgir. Það er gott að geta verið stikkfrí. Guðbrandur Einarsson oddviti Beinnar leiðar -aðsent pósturu vf@vf.is   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 Til leigu Einstaklings Íbud til leigu í Keflavik. Aðeins fyrir Reyklausan, reglusaman karlmann með fasta vinnu. Ekkert dyrahald. 8630733. Milli 13- 19 Óska eftir Óska eftir herbergi til leigu í Reykja- nesbæ eða nágrenni. Er á fertugsaldri, hámenntaður, í öruggri vinnu og hef fín meðmæli. Hermann sími: 696- 0431. SMÁAUGLÝSINGAR Við stöndum fréttavaktina alla daga vikunnar á vefnum okkar, vf.is ■ „Ég kom hingað til Keflavíkur af því að ég vildi nýjar áskoranir. Ég lít á Keflavík sem eitt af stærstu liðunum á Íslandi. Lið með góða aðstöðu og mikinn metnað. Eftir fyrstu æfinguna með liðinu í nóv- ember, fann ég að mórallinn var góður innan liðsins, sem skiptir mig miklu máli. Eftir það var ég viss um að ég vildi koma til liðsins. Mér líður mjög vel hér og finnst liðið vera orðið eins og önnur fjölskyldan mín.“ Marko Nikolic er nýr leikmaður meistaraflokks Keflavíkur en hann kom í byrjun keppnistímabilsins. Hann er frá Sebíu og lék með þremur liðum þar í landi áður en hann kom til landsins það eru Radnicki Pirot, Rad- nicki Nis og Timok Zajecar. Marko kom til Íslands árið 2012 og lék með Huginn á Seyðisfirði fyrstu fimm árin á Íslandi. Hann spilar í stöðu vinstri bakvarðar hjá Keflavík en lék líka vinstri kanntinn hjá Huginn. Ertu orðin Keflvíkingur? „Nei, en ætli það komi ekki bara með tímanum. Það er erfitt að hrista Seyðfirðinginn úr sér.“ Marko líkaði vel á Seyðisfirði þó að stundum hafi verið erfitt á veturnar þar sem var vegurinn til Egilsstaðar var stundum lokaður. Á Seyðisfirði kynntist hann konu sinni, þau eiga von á sínu fyrsta barni á árinu og eru búin að koma sér vel fyrir í Keflavík. „Markmið okkar Keflvíkinga er að komast upp í Pepsi-deildina á ný og auðvitað að fá bikarinn í haust. Í hverjum leik höfum við þá stefnu að vinna leikinn. Við erum búnir að undirbúa okkur vel fyrir næsta leik og erum klárir í slaginn.“ Marko talar um að uppáhaldsliðið sitt sé Rauða stjarnan frá heimalandinu Serbíu, uppáhaldsleikmenn eru Dejan Stankovic frá Serbíu og Cristiano Ro- naldo frá Portúgal. Þessa dagana starfar Marko í Nettó Krossmóa og líkar vel. „Ég starfa við að baka í bakaríinu í Nettó Kross- móa og baka bestu kleinuhringina í bænum,“ sagði Marko að lokum. Keflavík orðið eins og önnur fjölskylda mín ●● segir●Marko●Nikolic●leikmaður● Keflavíkur●sem●bakar●bestu● kleinuhringina Útivist í Reykjanes UNESCO Geopark Útivist í Reykjanes UNESCO Geop- ark er samstarfsverkefni Reykjanes Geopark, Bláa Lónsins og HS Orku hf. Markmið verkefnisins er að fólk kynnist einstöku umhverfi í gegnum útivist, fróðleik og skemmtun. Dagskrá sumarsins 2017 hófst með Jónsmessugöngu laugardaginn 24. júní. Boðið var upp á hjólaferð í sam- starfi við 3N þann 6. júlí. Gengið verður um Eldvörp þann 13. júlí undir leiðsögn Guðmundar Ómars, jarðfræðings hjá HS Orku hf. Gangan þann 20. júlí verður um umhverfi Garðs og Sandgerðis undir leiðsögn Sunnu Bjarkar Ragnarsdóttur, frá Náttúrufræðistofunni í Sandgerði. Reynir Sveinsson mun leiða göngu frá Sandgerði að Garðskagavita þann 10. ágúst. Þann 17. ágúst býðst göngu- fólki að ganga um söguslóðir tón- listarsögunnar í Höfnum með söng og undirspili. En systkinin Ellý og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn ólust upp í Höfnum. Loks verður gengið á Há- leyjarbungu þann 24. ágúst undir leiðsögn Eggerts Sólbergs Jónssonar, verkefnastjóra Reykjanes Geopark. Eggert Sólberg segir það vera mikil- vægt fyrir Reykjanes Geopark að geta boðið upp á útivistarverkefnið. “Ein af megináherslum okkar er að veita fjölbreytta fræðslu og hvetja fólk til að upplifa einstaka náttúru svæðisins. Stuðningur Bláa Lónsins og HS Orku við verkefnið gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreytta útivistardag- skrá þátttakendum að kostnaðarlausu.” Dagskráin er kynnt á Facebook síðu verkefnisins. https://www.facebook.com/geopar- kutivist/?fref=ts Gengið verður um Eldvörp þann 13. júlí .

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.