Víkurfréttir - 13.07.2017, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 13. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
11fimmtudagur 22. júní VÍKURFRÉTTIR
Það borgar sig ekki að
bíða of lengi með að fá sér
heyrnartæki
Tekið er á móti
tímapöntunum
í heyrnarmælingu,
ráðgjöf eða stillingu
á heyrnartækjum í
síma 568 6880 eða á
www.heyrnartaekni.is
Heyrnarskerðing er þriðja algengasta króníska heilsufarsvandamálið sem hrjáir eldri borgara. Um það bil 30% einstaklinga
á aldrinum 65 ára og eldri eru með einhverja skerðingu á heyrn og er talið að tíðnin fari upp í 70-90% hjá þeim sem eru
85 ára og eldri. Þrátt fyrir algengi og heilsufarslegar afleiðingar þá er heyrnarskerðing oft vangreind og þarf af leiðandi
ómeðhöndluð. Vaxandi heyrnarskerðingu fylgir oft aukinn pirringur og félagsleg einagrun. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í
ljós að ómeðhöndluð heyrnarskerðing tengist aukinni áhættu á vitrænni hrörnun.
Anna Linda Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur hjá Heyrnartækni
segir að það sé afar mikilvægt að greina
heyrnarskerðingu sem fyrst svo hægt sé
að bregðast við snemma í ferlinu. „Með
notkun heyrnartækja verður auðveldara
að eiga samskipti og taka þátt í ýmsum
félagslegum viðburðum. Það hjálpar
heilanum að halda sér í formi“, segir
Anna Linda.
Heyrnarmælingar og
heyrnartækjaþjónusta í Reykjanesbæ
Nýlega bætti Heyrnartækni
Reykjanesbæ í hóp þeirra staða á
landsbyggðinni þar sem boðið verður
upp á reglulega heyrnartækjaþjónustu.
Árni Hafstað, heyrnarfræðingur
mun sjá um heyrnarmælingar,
ráðgjöf, sölu heyrnartækja og
þjónustu við heyrnartækjanotendur á
Heilbrigðisstofunun Suðurnesja. Árni
hefur sinnt landbyggðarþjónustu fyrir
Heyrnartækni í um 15 ár og í dag sækir
hann heim um 20 staði á landsbyggðinni.
„Margir eiga erfitt með að sækja þjónustu
til Reykjavíkur vegna ýmissa ástæðna og
vonum við að íbúar á Suðurnesjum verði
ánægðir með að þjónustan færist nú nær
þeim,“ segir Anna Linda.
Heyrnartæki til prufu
Hjá Heyrnartækni er hægt að fá
heyrnartæki til prufu í vikutíma en það
getur verið mikilvægt fyrir þá sem eru að
fá sér heyrnartæki í fyrsta sinn að vera
með þau í einhvern tíma áður en tækin
eru keypt. „Vikuprófun getur gefið þér
nokkuð góða mynd af því hvernig þér
líður með tækin, bæði hvernig það er að
vera með þau í eyrunum og eins hvernig
þau hljóma. Fyrsta skrefið er að bóka
tíma í heyrnarmælingu til að sjá hvort
tímabært sé að fara að nota heyrnartæki,“
segir Anna Linda
KYNNING
■ Krak karnir í Vinnuskóla
Reykjanesbæjar hafa verið að
vinna við að fegra og hreinsa í
sveitarfélaginu síðustu vik-
urnar. Einn hópurinn var að
snyrta við Heiðarskóla og stilltu
þau sér upp fyrir myndatöku.
Nú er fyrra tímabili Vinnu-
skólans í Reykjanesbæ lokið.
Keppni hefur verið í gangi á
milli hópa þar sem teknar hafa
verið fyrir og eftir myndir af
þeim svæðum sem þau hafa
unnið í og gefin stig fyrir flott-
ustu svæðin. Í gær var svo til-
kynnt hvaða hópar höfðu sigrað
og fengu þau pizzuveislu í verð-
laun fyrir vel unnin störf. Næsta
tímabil í vinnuskólanum hefst á
mánudaginn og þá mæta nýir og
erskir krakkar tilbúnir að taka til
hendinni.
Líf og fjör í Vinnuskóla
Reykjanesbæjar Á sunnudaginn var gengið frá Út-skálakirkju og Keflavíkurkirkju að
prestsvörðunni þar sem séra Sigurður
B. Sívertssen varð næstum úti fyrir
margt löngu. Glaðir göngumenn
komu að vörðunni í blíðskaparveðri.
Gengið var ca. 7 km frá hvorri kirkju.
Sr. Bára Friðriksdóttir og sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir leiddu göngurnar
og sáu um helgistund við vörðuna.
Kristjana Kjartansdóttir (Sjana) sagði
söguna af hrakningum sr. Sigurðar
og englavernd Guðs yfir honum þessa
nótt í hríðarbylnum. „Við nutum þess
besta sem veður býður upp á Suður-
nesjum," segir sr. Bára Friðriksdóttir,
en þetta var hennar síðasta opinbera
helgistund við Útskálakirkju. Göng-
unni lauk í Golfskálanum þar sem var
boðið í messukaffi.
Gengið að prestvörðunni í blíðskaparveðri
Blái herinn fékk
umhverfisstyrk
Blái herinn fékk nýlega 500.000
kr. umhverfisstyrk úr Samfélags-
sjóði Landsbankans. Blái herinn
er 22 ára í ár og hefur frá upphafi
fjarlægt um 1.340 tonn af rusli úr
náttúru Íslands. Hreinsunarverk-
efnin eru orðin 140 talsins. Það
voru 15 verkefni sem hlutu styrki
í ár. Tómas J. Knútsson stofnandi
Bláa hersins tók við styrknum
fyrir hönd Bláa hersins á sérstakri
afhendingu verðlaunana.