Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.07.2017, Side 14

Víkurfréttir - 13.07.2017, Side 14
14 fimmtudagur 13. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR Glæsilegt fimm herbergja 212 fm raðhús við Mardal 10 í Innri-Njarðvík. Húsið skilast múrað að utan, steypt innkeyrsla með snjóbræðslukerfi, steyptir veggir á milli eigna. Búið er að tyrfa og setja timburpall útfrá stofu. Að innan er húsið nánast tilbúið undir innréttingar, en búið er að sparsla en eftir á að pússa og mála. Nýji leik- og grunnskólinn í Innri Njarðvík verður byggður hinum megin við götuna. Frábærlega staðsett hús á 2 hæðum. Verð 47.900.000 kr Íþróttir á Suðurnesjum ■ Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Karen Guðnadóttir urðu klúbb- meistarar Golfklúbbs Suðurnesja. Guðmundur sigraði í níunda sinn og sigur Karenar var sá áttundi. Guðmundur stefnir að því að ná Erni Ævari Hjartar- syni sem hefur sigrað tólf sinnum en Þorbjörn Kjærbo, fyrir Íslandsmeistari GS, varð tíu sinnum klúbbmeistari. Karen Guðnadóttir getur á næsta ári jafnað við nöfnu sína Sævarsdóttur sem níu sinnum hefur unnið titilinn í Leiru. Guðmundur fékk harða keppni frá Björgvini Sigmundssyni en að lokum munaði sjö höggum á þeim. Guðmundur lék á 4 höggum yfir pari en aðstæður voru frekar erfiðar í Leirunni þar sem veðurguðirnir voru ekki sérstaklega góðu skapi. Þriðji varð Davíð Jónsson á 315 höggum en á sama skori var Róbert Smári Jóns- son og höggi á eftir Guðni Vignir Sveinsson. Karen Guðnadóttir sigraði örugglega í kvennaflokki á 306 höggum en önnur varð Laufey Jóna Jónsdóttir á 336. Korpak systurnar efnilegu tóku ekki þátt í mótinu þar sem þær fóru með U18 stúlknalandsliðinu á Evrópumót í Póllandi. ■ Hjá Golfkúbbi Sandgerðis var hart barist um sigurinn í öllum flokkum en klúbbmeistarar urðu þau Pétur Þór Jaidee og Milena Medic. Pétur lék mjög stöðugt golf og kom inn á 296 höggum og var sex höggum á undan Svavari Grétarssyni. Þriðji varð Erlingur Jónsson á 313 höggum. Milena lék 54 holurnar í 304 höggum, Steinunn Jónsdóttir varð önnur á 343 höggm og þriðja Katrín Benedikts- dóttir á 368. ■ Hjá G olf kúbbi Vatnsl e ysu- strandarhrepps sigraði Adam Örn Stefánsson í meistaraflokki karla en hann lék 72 holurnar á 297 höggum. Jóhann Sigurðsson varð annar á 301 og Guðbjörn Ólafsson þriðji á 304. Sigurdís Reynisdóttir sigraði í opnum kvennaflokki og lék á 272 höggum, Guðrún Egilsdóttir varð önnur á 280 og Oddný Þ. Baldvins- dóttir á 297. Guðmundur vann í níunda sinn Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Karen Guðnadóttir eru klúbb- meistarar GS 2017. Njarðvíkingar halda áfram sigur- göngu sinni í 2. deild Íslands- mótsins í knattspyrnu en þeir lögðu Völsunga frá Húsavík á Njarðtaks- vellinum í Njarðvík sl. laugardag. Lokatölur 3-2 fyrir heimamenn. Leikmenn með áhuga „Um mitt mót er staðan í deildinni skemmtileg fyrir alla sem koma að Njarðvíkurliðinu. Fyrir tímabilið lögðum við áherslu á að halda kjarna þeirra leikmanna sem spilað hafa með liðinu síðustu ár. Leikmönnum sem hafa mikinn áhuga og metnað til að koma félaginu ofar. Einnig að bæta við sterkum leikmönnum, mis- munandi karekturum úr mismunandi áttum til að gera atlögu að efri hluta deildarinnar. Leikmannahópurinn er ungur, samheldnin og kraftmikill.“ segir Rafn. Vel undirbúnir „Liðið kom vel undirbúið til leiks í vor, við spiluðum fjölda leikja á undir- búningstímabilinu. Við fórum í æf- ingaferð til Svíþjóðar og æfðum vel við topp aðstæður í Reykjaneshöll. Umgjörðin í kringum liðið er flott, stjórnin er virk og dugleg að styðja við bakið á liðinu. Fyrir utan flottan leik- mannahóp og stjórn er flott þjálfara- teymi sem á stóran þátt í stöðu liðsins. Með okkur Snorra Má Jónssyni eru Sævar Júlíusson markmannsþjálfari, Gunnar Ástráðsson sjúkraþjálfari og einnig aðstoðaði Steindór Gunnars- son sundþjálfari okkur við æfingar i vetur. Keflavík sigraði HK 3:1 í Inkasso deildinni á Nettóvellinum á þriðju- dagskvöldið. Það var Jeppe Hansen sem skoraði fyrsta markið fyrir Kefla- vík á 26. mínútu. Staðan var 1:0 í hálf- leik fyrir Keflavík. Seinni hálfleikur fór rólega af stað en á 52 mínútu var Jeppe Hansen aftur á ferðinni og skor- aði sitt annað mark sitt fyrir Keflavík. Reynir Már Sveinsson náði að minnka muninn fyrir HK á 80. mínútu. Sigur- bergur Elísson gulltryggði svo sigur- inn aðeins tveim mínútum síðar. Lokastaðan því 2:1 fyrir Keflavík. Keflavík er í 2. sæti í Inkasso deildar- innar en öll toppliðin unnu sína leiki í kvöld. Næsti leikur Keflavíkur verður á laugardaginn við Leikni úr Reykja- vík, en leikurinn fer fram í Keflavík. Grindavík sigraði KA 2:1 í Pepsi deild karla í miklum baráttuleik sl. sunnu- dag eftir að hafa lent undir. KA menn voru sprækari í fyrri hálfleik og Hall- grímur Már Steingrímsson skoraði mark á 19. mínútu fyrir KA. Grind- víkingar fengu víti á 22. mínútu en Andri Rúnar Bjarnason brenndi af. Seinni hálfleikur hófst með látum og voru Grindvíkingar betri aðilinn. Marinó Axel Helgason jafnaði fyrir Grindavík á 70. mínútu. Þetta var hans fyrsti leikur í byrjunarliðinu í sumar. Á 81. mínútu var aftur dæmt víti á KA. Andri Rúnar Bjarnason fór aftur á punktinn og núna brást honum ekki bogalistinn. Staðan því orðin 2:1 fyrir Grindavík og þetta lokaniðurstaðan. Grindavík er komið á topp í Pepsi deildar karla ásamt Val með 21 stig. Óli Stefán Flóvents son þjálfari Grindavíkur var að vonum ánægður með sína menn og sagði að þetta væri besti karaktersigur sem hann hefði séð undir sinni stjórn. Grindavík á toppinn eftir sigur á KA Keflavík heldur sigurgöngunni áfram Suðurnesjaliðin Reynir Sandgerði og Þróttur Vogum mættust á Sandgerðis- velli í 3. deild karla síðustu helgi. Það voru Þróttarar sem höfðu betur og sigruðu 3:2. Andri Björn Sigurðsson gerði fyrsta mark Þróttar á 36. mínútu. Staðan var 1:0 fyrir Þrótt í hálfleik. Þróttarar misstu mann út af í upphafi seinni hálfleiks en þrátt fyrir að vera manni færri skoraði Tómas Ingi Urbancic mark á 78. mínútu fyrir Þrótt og kom þeim í 2:0. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi þar sem að Tomislav Misura minnkaði munninn í uppbótartíma og hleypti lífi í leikinn á ný. Það líf var stutt þar sem að nánast í næstu sókn fengu Þróttarar vítaspyrnu sem Andri Björn Sigurðsson skoraði úr og kom þeim í 3:1. Reynismenn neituðu að gefast upp og á 96. mínútu skoraði Jóhann Magni Jóhannsson og minnkaði muninn aftur í eitt mark. Það reyndist vera lokamarkið og því niðurstaðan 3:2 sigur Þróttar. Þróttur er í 5. sæti en Reynir er á botni 3. deildar. Þróttur sigraði Reyni í Suðurnesjaslag Njarðvíkingar á góðu skriði ■ Njarðvíkingar hafa farið vel af stað 2. deildinni í sumar og þegar mótið er hálfnað eru þeir 1. sæti. Rafn Markús Vilbergsson þjálfari Njarðvíkur er sáttur með sína menn. Rafn er uppalin í Garðinum og hefur spilað með Njarðvík, Víði, Val og Keflavík á ferlinum. Hann hefur þjálfað frá árinu 2006, fyrst hjá yngri flokkum í Njarðvík. Aðstoðar- þjálfari hjá meistaraflokk Njarðvíkur 2011 og þjálfaði meistaraflokk Víðis í Garði 2014-2015 og tók við þjálfun Njarðvíkurliðsins í lok ágúst 2016. „Staðan á hópnum er nokkuð góð fyrir utan að Andri Fannar Freysson fyrir- liði sem spilað hefur mjög vel á tíma- bilinu hefur verið frá vegna meiðsla í síðustu leikjum. Hörður Fannar Björgvinsson verður í leikbanni gegn Huginn en annars eru allir klárir í að taka á móti Huginn á laugardaginn og fylgja eftir góðum leik gegn Völsungi. Ánægjulegt er að Ari Már Andrés- son hefur verið að koma sterkur inn en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla frá upphafi árs 2016. Davíð Guðlaugsson er á góðu róli eftir fót- brot sem hann varð fyrir í byrjun maí og á mánudaginn mætti hann á sína fyrstu æfingu í takkaskóm eftir brotið. Þrír markmenn „Við förum i alla leiki til að vinna, við spiluðum frábærlega í síðasta leik gegn Völsungi og vonandi verður framhald á þeirri spilamennsku á laugardaginn. Við reynum að undir- búa okkur eins vel og kostur er og skoða styrkleika og veikleika hjá Hug- inn. Huginn hefur verið a miklu skriði á síðustu vikum, eru taplausir frá því í 2. umferð. Ólíkt mörgum liðum þá höfum við þrjá flotta markmenn á æfingum hjá okkur. Það kemur sér vel á laugardaginn þar sem Hörður Fannar verður í leikbanni og kemur það í hlut Brynjars Atla Bragasonar að standa vaktina í markinu.“ Jákvæður stuðningur „Við erum bjartsýnir á að okkar unga og skemmtilega lið haldi áfram að safna stigum með það að markmiði að haldast í toppbaráttunni. Mikil aukn- ing frá fyrri árum hefur verið á áhorf- endafjölda á Njarðtaksvelli í sumar og jákvæður stuðningur hefur verið á pöllunum. Vonandi halda Njarð- víkingar og aðrir Suðurnesjamenn áfram að mæta á völlinn og styðja Njarðvíkurliðið í baráttunni fram á haust,“ segir Rafn að lokum. ●● Flott●umgjörð●og●samheldni●í●ungum●og●kraftmiklum●leikmannahópi,“●segir● Rafn●M.●Vilbergsson●þjálfari●UMFN●sem●er●á●toppi●2.●deildar● 100 leikir Brynjar Freyr Garðarsson lék sinn 100. leik með UMFN gegn Völsungum og stóð sig vel. Víðir tapaði 2:1 fyrir Magna á Grenivíkurvelli í 2. deild karla á laugardaginn. Það var Helgi Þór Jónson sem skoraði fyrsta markið fyrir Víði á 13. mínútu. Heimamenn jöfnuðu svo á 71. mínútu að Magni náði að jafna leikinn og skoruðu svo sigurmarkið á 83. mínútu. Lokastaðan því 2:1 fyrir Magna. Víðir hafa aðeins misst flugið eftir ágæta byrjun og eru í 6. sæti og eiga næst útileik á sunnudaginn við Hött. Víðismenn niður töfluna eftir tap á Grenivík Rafn og Snorri Már, þjálfarar UMFN. Andri markaskorari skallar boltann að marki KA. Jeppe er mikill markaskorari.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.