Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2017, Síða 22

Víkurfréttir - 19.10.2017, Síða 22
22 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. október 2017 // 41. tbl. // 38. árg. Miðflokkurinn – Afl sem þorir Nýtt kröftugt stjórnmálaafl hefur verið stofnað, Miðflokkurinn. Mið- flokkurinn er stofnaður af fólki víða að úr samfélaginu, sem vill vinna að heill landsins alls og leggur mikla áherslu á að hagsmunir okkar allra fari saman. Flokkurinn hefur nú þegar á örfáum dögum frá stofnun sett fram áherslur sínar í stærstu og veigamestu málum sem varða alla íslendinga. Stefnumálin eru róttæk og við ætlum að koma þeim til framkvæmda með því að vinna að réttu lausninni – skynsamlegustu lausninni – rökréttustu lausninni, sama hvaðan hugmyndirnar koma. Endurskipulagning fjármálakerfisins Miðflokkurinn ætlar að afnema verð- trygginguna og lækka vexti í landinu. Með því að fylgja eftir ákveðinni að- gerðaráætlun í endurskipulagningu fjármálakerfisins verður verðtrygg- ingin svelt í burtu af íslenskum fjármálamarkaði. Fyrst þá verður verðtrygging af neytendalánum gerð óheimil með lagabreytingu. Í öðru lagi þá mun ríkið nýta sér forkaupsrétt að Arion banka. Í þriðja lagi verða bank- arnir minnkaðir með því að greiða úr þeim það eigið fé sem er umfram í bönkunum til ríkisins. Eftir yfirtök- una á Arion og endurskipulagningu bankanna þá verði Landsbankinn enn í ríkiseigu en komi til með að stofna netbanka sem mun bjóða lægstu mögulegu vexti. Arion banka verður skipt í þrennt þar sem allir íslendingar munu eignast hlutabréf í bankanum endurgjaldslaust sem nemur einum þriðja af öllu hlutafé. Þriðjungur verður seldur í opnu út- boði og Ríkið heldur áfram ráðandi hlut í bankanum fyrst um sinn. Ný lög verða sett um Seðlabankann og lífeyrissjóðunum verði gert skylt að fjárfesta erlendis líkt og norski olíu- sjóðurinn gerir. Með ofangreindum aðgerðum og fleirum verður búið til lágvaxtaumhverfi, sem mun bæta lífskjör á Íslandi. Landið allt Við viljum auka skilning landsmanna á því að hagsmunir allra fari saman. Þetta á við til dæmis í sambandi við nýtingu fjárfestinga í heilbrigðisþjón- ustu, þar sem bæði er hægt að nýta þá aðstöðu sem þegar er til og um leið að færa þjónustuna nær fólkinu. Við viljum tryggja flugvöll áfram í Vatns- mýrinni og með því tryggja góð tengsl milli höfuðborgar og landsbyggðar. Nýtum kosningaréttinn Ágæti kjósandi. Frambjóðendur eru boðnir og búnir að koma til skrafs og ráðagerða. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á sudur@midflokkurinn. is. Mikilvægt er að allir nýti sinn kosningarétt því það skiptir máli hverjir eru við stjórnvölinn á Íslandi. Birgir Þórarinsson – skipar 1. sætið á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi Elvar Eyvindsson – skipar 2. sætið á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi Við þurfum samfélagslega skilvirkni í sjávarútvegi Sláandi tölur bárust frá Fiskistofu fyrir stuttu, þar sem kom fram að fjöldi fyrirtækja með aflahlutdeild hefur fækkað um tæplega 600 á rétt rúmum 10 árum, og standa nú aðeins 382 fyrirtæki eftir. Þessari gríðarlegu samþjöppun á að- gangi að fiskauðlindum Íslands hefur verið lýst af stuðningsmönnum þró- unarinnar sem "aukin skilvirkni". Það er að sumu leyti satt: stærri vinnslu- einingar og lóðrétt samþætting minnkar kostnaðinn við vinnslu á hverju þorskí- gildiskílói. Þetta er eitt form skilvirkni. Annað form skilvirkni er samfélags- legs eðlis. Það er engum til framdráttar að landsbyggðin leggist smám saman af. Það raskar lífi fólks, dregur úr fjöl- breytni og dregur úr möguleikum á atvinnu. Við það glatast bæði uppbygg- ingin sem hefur átt sér stað, og menn- ingin og tengslin sem móta sjálfsímynd íbúanna. Vísbendingar um samþjöppun Það er ekki stórfelld hætta á að heilu byggðirnar fari að leggjast af á næstu árum, en það er víða hægt að sjá vís- bendingar um að samþjöppunin í fisk- iðnaði sé að valda skaða. Við þurfum að ákveða hvort og þá hvernig við bregðumst við þeirri áskorun. Það er ekki gagnlegt að niðurgreiða óskilvirkni eða setja reglur sem koma í veg fyrir aukinni skilvirkni. Þau stóru og vel reknu fyrirtæki sem hafa byggt sig upp með góðum ákvörðunum eru mikilvægt fyrir samfélagið. Fáum fyrirtækjum líft til lengdar Hins vegar er gagnlegt að tryggja að leikreglurnar komi ekki í veg fyrir fjöl- breytni eða framþróun. Það er staðan í dag. Leikreglur sjávarútvegarins gera það að verkum að það er fáum fyrir- tækjum líft til lengdar öðruvísi en að vera stórvaxin og lóðrétt samþætt. Til að stemma stigu við þessu lögðu Píratar fram í vor frumvarp mitt og Gunnars I. Guðmundssonar um að auka verulega fjölda veiðidaga báta á strandveiðum. Strandveiðar eru sú aðgerð til stuðnings smærri fyrirtækja í sjávarútvegi sem hefur skilað mestri skilvirkni ? bæði samfélagslega og efnahagslega. Í dag eru um 650 bátar sem nýta strandveiðikerfið, en mis- munandi aðstæður landshluta hefur valdið misskiptingi innan kerfisins, þrátt fyrir mikinn áhuga á því að stunda strandveiðar. Frumvarpið lagar þessa landshlutamisskiptingu og eykur um leið heildaraflamarkið í kerfinu. Ótrúverðugar afsakanir Þetta frumvarp gekk til atvinnuvega- nefndar, þar sem Páll Magnússon hefur gegnt formennsku, en þar komst málið ekki á dagskrá nefndarinnar þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Ýmiskonar afsakanir voru gefnar, en í rauninni var hreinlega lítill áhugi á að leyfa frumvarp- inu að fá eðlilega umræðu, af ótta við að einhverjir hagsmunir myndu raskast. Það er miður, því frumvarpið var einmitt hannað með það fyrir augum að engum yrði meint af, en að leikreglurnar í sjávar- útvegi yrðu örlítið jafnari. Atvinnumálin á Íslandi eru að mörgu leyti í góðu standi, en þegar einstaka bæir eru skoðaðir vakna spurningar um hvernig framtíðin okkar lítur út. Atvinnutækifærin í mörgum bæjum fara minnkandi, og fyrir því eru margar ástæður. Við þurfum að kryfja allar ástæðurnar fyrir því og laga þær smám saman. Umræðan þarf í það minnsta að fá að eiga sér stað. Smári McCarthy, þingmaður Pírata, í 1. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi. Smári McCarthy. Vinnum að bestu lausninni, sama hvaðan hugmyndin kemur. Birgir Þórarinsson. Elvar Eyvindsson. Viðreisn þorir, þorir þú? Viðreisn er frjálslyndur flokkur sem hefur sýnt að hann þorir að takast á við verkefni af festu og með hagsmuni almennings að leiðarljósi. Viðreisn hefur sýnt þann vilja í verki sem þarf til þess að koma á mikil­ vægum kerfisbreytingum, öllum til hagsbóta. Í upphafi árs kom til verkfalls sjó- manna. Öll spjót stóðu á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og háværar kröfur um að hún gripi inn í deiluna með ríkisfé. Viðreisn og Þorgerður Katrín stóðust prófið. Hagur almenn- ings var settur framar sérhagsmunum sem varð til þess að deilan var leyst án aðkomu ríkisins. Þessi festa Við- reisnar sparaði hinu opinbera hálfan milljarð króna sem ella hefði runnið til útgerðarinnar. Með öðrum orðum: Viðreisn sýndi kjark. Kynbundinn launamunur hefur verið mikið í umræðunni enda ljóst að úrbætur hafa tekið alltof langan tíma. Viðreisn ákvað að viðurkenna þennan launamun og ráðast í aðgerðir í stað þess að samþykkja hann sem óbreytanlegt samfélagsmein. Lög- fest var jafnlaunavottun sem er eitt stærsta framfaraskref í jafnréttis- málum og vakið verðskuldaða athygli á heimsvísu. Næsta skref sem Við- reisn leggur til er að lagfæra laun svokallaðra kvennastétta, sem fást við fræðslu og umönnun. Konur hafa mátt búa við það alltof lengi að störf þeirra séu metin til lægri launa er karlar með sambærilega menntun og ábyrgð. Viðreisn blæs því til sóknar og leggur til þjóðarsátt um að eyða kynbundnum launamun með öllu. Til þess þarf sameiginlegt átak og sam- komulag allra aðila á vinnumarkaði. Skortur á lóðum til nýbygginga hefur verið mikill síðustu misseri sem hefur haft margvísleg áhrif á fasteigna- markaðinn. Viðreisn ákvað undir forystu Benedikts Jóhannessonar, fjármálaráðherra, að ráðast í að- gerðir til þess að bregðast við þessum mikla lóðaskorti. Gert var átak í sölu byggingalóða í eigu ríkisins og ríki og sveitarfélög tóku höndum saman. Þetta framtak er lýsandi fyrir Viðreisn og sýnir að þar er gengið í verkin. Við- reisn þorir að horfa fram á veginn og gera breytingar sem setja almanna- hagsmuni í öndvegi. Áhugi ungs fólks á stjórnmálum er í sögulegu lágmarki eins og sakir standa og svo virðist sem ungt fólk hafi einfaldlega ekki trú á stjórn- málum. Þessari þróun þurfum við að snúa við og hefur Viðreisn lagt sitt að mörkum til þess. Til að mynda hefur ungliðahreyfing Viðreisnar, Uppreisn, komið að stefnumótun og málefnavinnu flokksins á öllum stigum. Þá hefur Uppreisn komið beint að samningum þingmála sem snerta málefni ungs fólks beint eða óbeint. Viðreisn sýnir ungu fólki fullt traust til að móta samfélagið til jafns við aðra enda eru hagsmunir þeirra af góðu samfélagi síst minni en annarra. Viðreisn þorir, þorir þú? Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur Höfundur skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi Arnar Páll Guðmundsson.   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 SMÁAUGLÝSINGAR ÓSKAST Óska eftir 17 tommu, 6 gata, white spoke felgum undir Toyota Land­ cruiser. Verða að vera vel með farnar. Uppl. í síma 421 3711. ÍBÚÐ ÓSKAST Óska eftir 4-5 herbergja íbúð í Reykja- nesbæ. Greiðslugeta 160-170 þús. kr. Fyrir nánari upplýsingar, sendið póst á gugga@911.is AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.