Landshagir - 01.11.1998, Side 5
Formáli
Landshagir 1998 er tólfta yfirlitsrit Hagstofunnar frá upphafi
með hagtölum fyrir hin ýmsu svið þjóðlífsins og áttunda
ársritið sem hún gefur út undir þessu heiti.
Landshögum er ætlað að vera uppsláttarrit á sviði hag-
skýrslna og gefa á samandregnu formi yfirlit yfir tölulegar
upplýsingar um flesta þætti efnahags- og félagsmála á Islandi.
Bókin á einnig að vera til leiðbeiningar og upplýsingar um
innlendar hagskýrslur með tilvísunum til heimilda, bæði
stofnana og skýrslna, sem efnið er sótt til.
Með Landshögum 1991 var útgáfa þessi endurskipulögð
með hliðsjón af hagskýrsluárbókum nágrannaþjóðanna og
hefur bókin komið út árlega síðan. Með hverri nýrri útgáfu
hefur verið leitast við að auka og endurbæta bókina til þess að
hún gæfi sem best yfirlit um þá efnisflokka sem hún spannar.
í þessu riti hefur nokkrum nýjum töflum verið aukið við,
aðrar felldar niður og ýmsar endurbætur gerðar, bæði hvað
snertir efni og framsetningu. Meginbreytingin felst í því að
tímaraðir hafa verið styttar. A móti kemur að Landshagir
1998 eru einnig gefnir út á geisladiski og spanna þá fleiri ár
en unnt er að birta með góðu móti í ársriti. Af nýju efni og
endurbættu má nefna töflur um umhverfismál, vörufram-
leiðslu, fyrirtæki, neyslu og starfsfólk grunnskóla.
Islensk hagskýrslugerð er eðli málsins samkvæmt háð
takmörkunum vegna smæðar þjóðfélagsins og stofnana þess.
Bókin ber þess merki; efnisflokkar eru misjafnlega ítarlegir
og endurspeglar það aðallega misgóða stöðu skýrslugerðar-
innar á hverju sviði.
Við efnisöflun í Landshagi 1998 hefur Hagstofan sem fyrr
notið liðsinnis margra stofnana og starfmanna þeirra, eins og
glöggt kemur fram í heimildartilvísunum. Jafnframt hafa
margir innanhússmenn lagt til efni í þeim málaflokkum sem
þeir fara með. Hagstofan kann öllum þessum aðilum bestu
þakkir fyrir aðstoð þeirra og samvinnu.
A Hagstofunni hefur Helga Einarsdóttir haft umsjón með
þessari útgáfu, en Sigurborg Steingnmsdóttir annast umbrot
bókarinnar.
Hagstofu íslands í október 1998
Hallgrímur Snorrason
Preface
The Statistical Yearbook of Iceland 1998 is the twelfth such
publication from the beginning and the eighth one since the
Yearbook was reorganized in 1991. The present issue con-
tains several new tables, for instance on the environment,
manufacturing products, enterprises, consumption and com-
pulsory school employees. Several tables have also been
changed, both in substance and presentation, while the main
change is that time series have been shortened. However, the
Statistical Yearbook 1998 is also published on a CD, which
contains longer time series than can conveniently be pub-
lished in the printed version.
The Statistical Yearbook is intended to serve as a statistical
reference work in a number of economic and social fields.
The publication is also intended as a guide to other statistical
sources through detailed references to sources, both the
relevant institutions and publications.
In preparing this publication, Statistics Iceland has en-
listed the help of many institutions and individuals as well as
drawing extensively on the resources of its own staff. For all
the assistance and work provided I would like to express my
appreciation.
For Statistics Iceland, Helga Einarsdóttir has served as
editor of the Yearbook, while the lay-out has been in the
hands of Sigurborg Steingrímsdóttir.
Statistics Iceland in October 1998
Hallgrímur Snorrason